Tíminn - 26.03.1976, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Föstudagur 26. marz 1976
ttlllUUIi llll | .11 Slllll 111
!I8I:II lllj II L...
Ég elska að vera kölluð kynæsandi
Þetta er stúlkan, sem nýlega
var kosin mest kynæsandi kona
i heimi. Af hverjum? Af
náungum, sem vita um hvað
þeir eru að tala, — itölskum
ljósmyndurum.
Hún heitir Nadiuska (borið
fram Nadúska), er 25 ára og
þykir líkjast mjög Sophiu
Loren, annarri eftirlætiskvinnu
italskra ljósmyndara. Reyndar
gerði Carlo Ponti eitt sinn til-
raun til að fá hana til að leika á
móti Sophiu sem sytstur
hennar, i einni mynda sinna, en
hún hafnaði boðinu.
Móðir hennar er pólskur
Gyðingur og faðir hennar Rússi.
Hún fæddist i Þýzkalandi, en
var alin upp i Israel og Rúss-
landi. I allmörg ár starfaði hún
sem ballettdansari i Þýzka-
landi, en eftir að hafa fariö i
sumarfri til Spónar 1971, komst
hún á kvikmyndasamning þar.
Og siðan þá hefur hún getið sér
gott orð sem kvikmyndaleik-
kona þar i landi. Núna lifir hún i
voninni um að fá tækifæri til að
reyna sig utan Spánar, og ætti
það vi'st ekki að vera neinum
vandkvæðum bundið fyrir hana,
— með útlit sem fær hvern karl
til að súpa hveljur. Myndin
sem hún bindur mestar vonir
við að fleyti henni yfir i kvik-
myndaverBretlands, heitir
Spænskar flugur, og er mót-
leikari hennar þar Terry
Thomas.
Hún ásjálfsagt bjarta framtið
fyrir sér stúlkan sú arna og á
myndunum sjáum við, að það er
engum ofsögum sagt um fegurð
hennar.
DENNI
DÆMALAUSI
,,Ef hann missti eins mikið hár og
þú segir væri hann orðinn
sköllóttur núna.”