Tíminn - 26.03.1976, Page 5
Föstudagur 26. marz 1976
TÍMINN
5
stjórnmálaioringi hafi haft
jafn ncikvæöa forystu T stjórn-
málaflokki og Gylfi T>. hcfur
haft í Alþýöuflokknum.
Kommagælur Gylfa
En raunir Gylfa eru þó ekki
enn taldar. f>essa dagana er
hann að gæla við kommúnist-
ana i Aiþýðubandalaginu, eins
og alþjóð varð vitni að I sjón-
varpinu fyrir fáeinum dögum,
þótt reyndar Lúðvik verðist
ástieitni Gylfa af frcmsta
megni. Þessar gælur Gylfa
eru gerðar i algerri óþökk
fiokksmanna hans, eins og svo
margt annað, sem þessi sein-
heppni stjórnmá iam aður
hefur veriö að bralla um dag-
ana. Gyifa væri hollt aö lesa
viðtalið við Guðmund R.
Oddsson, sem vitnaö er til hér
að framan, cn þar segir þessi
aidna kempa m.a.: „Sumir
mcnn eru umburðalyndir viö
kommúnistana. Við hinir
treystum þeim ekki og viljum
ekkert með þá hafa.”
En sjálfsagt þurfa kratar
ckkert að óttast i þessum cfn-
um. Svo hláiega vill nefnitega
til, að Alþýðubandalagið vill
ekkcrt samneyti við Gylfa,
eins og greinilega kom fram i
sjónvarpsviðtalinu á dögun-
um. Þannig virðast raunir
Gylfa vcra óendaniegar.
—a.þ.
''Vísls-mafían"
ekki Mafía
Sérstök ástæða cr til að óska
ritstjórn VIsis, og öðrum að-
standendum blaðsins, til ham-
ingju með þann úrskurð borg-
ardóms, að „Visis-maflan”
teljist ekki Mafia.
Liggur beinast við, að
„Visis-mafíán” stefni al-
menningsálitinu næst fyrir
borgardóm Reykjavikur, þvi
af einhverjum ástæðum cru
orðin Visir og Mafla tengd ó-
rjiifandi bönduin i huga al-
mennings, og veröur það sjálf-
sagt um alla framtið.
Harður dómur
Einn af elztu forystumönn-
um krata, Guðmundur R.
Oddsson, forstjóri Alþýðu-
brauögerðarinnar, fellir þung-
an dóm yfir forystumönnum
Alþýðuflokksins i viðtali, sem
birtist við hann I Alþýðublað-
inu I fyrradag, Hann segir
m.a.:
„Mér finnst hart, að flokk-
urinn skuli ekki ciga nema
einn mann i borgarstjórn nú,
og reyndar mjög óeðlilegt.
Hann ætti fremur aö hafa 3—4
menn, cf allt væri með
felldu....” „Við eigum bara
ekki nógu röggsama forystu.
Það er ekki nóg aö geta haidiö
góðarræður, ef menn slitna úr
tengslum við fólkiö.”
Forysta niður á við
Enginn vafi leikur á þvi, að
hverjum hinn aldni forystu-
maður Alþýðuflokksins beinir
skeytum sinum. Undir forystu
Gylfa Þ. Gislasonar hcfur Al-
þýöuflokkurinn misstsvo mik-
iö fylgi, aö við borð hefur lcg-
ið, að flokkurinn þurrkaðist út.
Eini borgarfulltrúi Alþýðu-
flokksins, Björgvin Guð-
mundsson, hefur heldur ekk-
ert farið i grafgötur með það,
hvers vegna flokknum hefur
vegnað svona illa i undan-
gengnum kosningum. liann
tclur sökina vera Gylfa Þ.
Gislasonar, enda eru þess fá
eða engin dæmi, að einn
Bjorgvin Guðmundsson, borg-
arfulltrúi Alþýðuflokksins,
hefur ekkert farið i grafgötur
með það, hverjum hann telur
raunir flokksins að kenna.
Hér á myndinni eru þau (frá v.) Hafsteinn Gilsson, Agústa Aradóttir, Ólafur Laufdal og Jón Hjaltason,
en þau eru öll meöal eigenda hins vinsæla skemmtistaðar Óðals við Austurvöll i Reykjavik. óðal hefur
nýlega fært út kvíarnar og nú hefur verið opnaður bar á neðstu hæðinni. Staðurinn er nú opinn I hádeg-
inu alla daga frá 12-14,30. Akvöldin er opiðfrá kl. 19. Tfmamynd Gunnar
Bandalag kvenna ályktar:
Útibú frá slysavarðstofu fyrir meiðsli
á börnum
1. Aðalfundurinn vill þakka
menntamálaráðuneytinu fyrir að
hafin skuli vera endurskoðun
barnaverndarlaganna og treystir
þvi að hún verði sem fyrst til
lykta leidd.
2. Fundurinn beinir þeirri
áskorun til heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins, að komið
verði hið bráðasta upp ráðgjafar-
og hjálparstöð fyrir andlega og
likamlega þroskaheft börn, þar
sem sjúkdómsgreining geti farið
fram. Ætti þá einnig að koma til
tilkynningaskylda af hálfu lækna,
ljósmæðra, fæðingarheimila og
ungbarnaeftirlits.
3. Fundurinn óskar eindregið
eftir þvi, að athugaður verði sá
möguleiki að koma upp fleiri dag-
heimilum handa þroskaheftum
börnum, og einnig vistheimili fyr-
ir þau börn utan af landi, er verða
að dveljast i Reykjavik til lækn-
inga vegna sjúkleika sins.
4. Fundurinn vill skora á
menntamálaráðuneytið að reglu-
gerð um sérkennslu verði gefin út
svo fljótt sem unnt er.
5. Aðalfundurinn fer þess á leit
við borgaryfirvöld að komið verði
á ungbarnaeftirliti i öllum út-
hverfum borgarinnar og óskar
eindregið eftir, að slikar deildir
séu undir umsjón barnalækna.
Jafnframt fagnar fundurinn þvi
sem áunnizt hefur i þessum efn-
um.
6. Aðalfundurinn beinir þeirri
eindregnu ósk til borgaryfir-
valda, að svo fljótt sem unnt er
verði gerðar ráðstafanir til að
auðvelda fötluðum að fara ferða
sinna (t.d. i hjólastól) og þá
meðal annars með þvi að hafa
hliðsjón af sliku við gerð og lag-
færingar opinberra bygginga og
skipulagningu umferðar.
7. Aðalfundurinn skorar á
borgaryfirvöld, að hlutast til um
að komið verði upp i borginni úti-
búi frá Slysavarðstofu Borgar-
spitalans sem hefði það hlutverk
að sinna minni háttar meiðslum
barna frá kl. 9-6 á daginn. Aður
fyrr létu Landspitalinn og Landa-
kotsspitalinn slika þjónustu i té.
Fundurinn vill benda á, hve nauð-
synlegt slikt er vegna mikils
álags á Slysavarðstofunni.
8. Aðalfundurinn skorar á
borgaryfirvöld að fjölga nú þegar
dagvistunarstofnunum, þ.e. dag-
heimilum, leikskólum og skólaat-
hvörfum.
Fermingar-
SKÓR
Tegund 286:
Herraskór
Litur svartir
með rauðum
saumum
Stærðir:
6 til 12
Verð 7.040
Tegund 346:
Kvenskór
Litur svartur
Stærðir:
3 1/2 til 7 1/2
Verð 7.005
Tegund 353:
Kvenstigvél
Litur svart
og brúnt
Stærðir:
4 til 7 1/2
Verð 8.885