Tíminn - 26.03.1976, Side 7
Föstudagur 26, marz 1876
TÍMINN
7
Ávallt tilbúin í
bílhólfinu eða
úlpuvasanum
Kynnið ykkur þessa frá-
bæru nýjung.
Kostar aðeins kr. 5.100.-
Sendum í póstkröfu.
KAFBORG SF.
Rauðardrstíg 1
Sími 1-11-41
Jóhann Guömundsson fráfarandi ritari U.S.A.H. flytur skýrslu sina.Hilmar Kristjánsson þiugforseti til
vinstri, en Magnús Sigurössoii varaform. U.S.A.H. til hægri. Fremst á myndinni eru bikarar, sem keppt
er um i skólakeppni U.S.A.H.
| Ungmennasamband
j Austur-Húnvetninga:
Ungmennasamband Austur-
Húnvetninga hélt 59. þing sitt i
Félagsheimilinu á Blönduósi á
laugardaginn var. Þingið sóttu á
fjórða tug fulltrúa auk stjórnar
sambandsins og gesta, en þeir
voru Hannes Þ. Sigurðsson,
stjórnarmaður i Iþróttasambandi
Islands, Hermann Guðmundsson
framkvæmdastjóri I.S.I., ólafur
Oddsson félagsmálaleiðbeinandi
og stjórnarmaður i U.M.F.Í.,
Sigurður Geirdal framkvæmda-
stjóri U.M.F.I. og Árni S.
Jóhannsson kaupfélagsstjóri
K.H. og hreppsnefndarmaður á
Áherzla
Blönduósi. Magnús Ólafsson
form. sambandsins setti þingið en
þingforseti var kjörinn Hilmar
Kristjánsson.
I skýrslu stjórnar kom fram, að
unnið hafði verið að margvisleg-
um verkefnum á siðasta ári, og
iþróttafólk hafði keppt bæði
heima og heiman. Sambandið sá
um framkvæmd Norðurlands-
meistaramóts i frjálsum iþrótt-
um og var mótið haldið á Blöndu-
ósi. A árinu var áherzla lögð á
keppni i yngri aldursflokkunum
og m.a. hófst á liðnu hausti
keppni á vegum sambandsins
Ljósm. M.Ó.
milli allra skóla i héraðinu i
nokkrum greinum iþrótta.
Af samkomum, sem sambandið
gekkst fyrir, bar Húnavökuna
hæst. og fóru þar fram fjölbreytt
dagskráratriði til fróðleiks og
skemmtunar. Ritið Húnavaka
kbm út um Húnavökuna, og var
það á þriðja hundrað blaðsiður að
stærð með fjölbreyttu efni.
A þinginu voru samþykktar
margartillögur, m.a. um að sam-
bandið réði sér framkvæmda-
stjóra næsta sumar. Fram-
kvæmdastjóri starfaði hjá sam-
bandinu i þrjá mánuði á siðasta
sumri og þótti ljóst að nauðsyn
væri að halda áfram á þeirri
braut.
Úr stjórn sambandsins gengu
Hilmar Kristjánsson og Jóhann
Guðmundsson, en i þeirra stað
voru kjörnir Páll Kristinsson og
Karl Lúðviksson.
lögð á unglíngastarfíð
Góð og ódýr
FERMINGARGJÖF
Ný veiðistöng
með inn-
byggðu hjóli
Mó—Reykjavik. — I ræðu sem
Gunnar Thoroddsen iðnaðarráð-
herra flutti á miðsvetrarfundi ís-
lenzkra rafveitna rakti ráðherr-
ann, hver væru helztu viðfangs-
efnin i orkumálum á næst-
unni, og sagði:
Koma verður skipulagsmálum i
höfn til þess að tryggja ábyrga og
hagkvæma öflun innlendrar orku.
Iðnaðarráðuneytið hefur lagt
áherzlu á aukin áhrif sveitar-
félaga á ákvarðanir i orkumálum
sinum með skipun landshluta-
nefnda.
Stefna ber að aukinni nýtingu
jarðvarma til húshitunar, þar
sem tök eru á, en að rafhitun, þar
sem jarðvarma er ekki til að
dreifa.
Kyndistöðvar gætu komið að
góðu haldi, sem bráðabirgða-
lausn, þar sem hagkvæmt þykir.
Auka má raforkunotkun i
margs konar smáiðnaði þar sem
nú er notuð olia. Er hér einkum
áttvið útrýmingu á oliunotkun til
gufuframleiðslu i iðnaði.
Auk þess má benda á, að nota
má raforku til kjarnfóðursfram-
leiðslu og heyþurrkunar i miklu
stærri stil en tiðkazt hefur.
Leggja ber aukna áherzlu á
leiðir til sparnaöar og aðferðir til
aö koma i veg fyrir hvers konar
sóun orku.
Ráðuneytið telur rétt að örva
viðleitni af þessu tagi.
Gera þarf hagræna úttekt á
orkubúskap íslendinga og gaum-
gæfa viðhorfin allmörg ár fram i
timann. Þetta starf er þegar haf-
ið.
Varðar mest til allra oröa, að
undirstaðan sé réttilega fundin.
Aukin áherzla á orkufram-
kvæmdir útheimta stærra átak i
rannsóknum og hvers konar
undirbúningi og viðbúnaði.
Finna verður frambúðarlausn á
þeim fjárhagsvanda, sem raf-
orkuiðnaðurinn stendur nú
frammi fyrir.
Að lokum kvaðst ráðherrann
leyfa sér að vona að við berum
gæfu til að finna lausn á þessum
mikilvægu málum og að sam-
staða og samvinna megi takast
með öllum þeim, er að þeim
vinna.
Byggung Kópavogi
Aðalfundur félagsins verður haldinn laug-
ardaginn 27. marz kl. 1 i Félagsheimili
Kópavogs.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Stjórnin.
Iðnaðarráðherra:
GERA ÞARF HAGRÆNA ÚT
TEKT Á ORKUBÚSKAPNUM
Hver boigar
Húseigendatiygging
borgar tjón á innréttingum, málningu, veggfóðri,
flísum o.fl.þ.h.
Heimilistrygging
borgar tjón á innbúi (húsgögnum, gólfteppum o.fl.þ.h.)
Ábyrgðartrygging húseigendatryggingar
borgar tjónið á 3., 2.,l.hæð og í kjallara.
Allt með því skilyrði þó að húseigenda- og
heimilistrygging sé fyrir hendi - annars ekki.
Veitum tryggingarbeiðnum móttöku í síma 38500.
SAMVIINIMJTRYGGIINGAR GT.
$2%/ ÁRMÚLA3.SIMI 38500
GAGNKVÆM TRYGGINGAFÉLÖG ERU SAMTÖK HINNA TRYGGÐU
SAMVINNUTRYGGINGAR ERU GAGNKVÆMT TRYGGINGAFELAG