Tíminn - 26.03.1976, Page 10
10
TÍMINN
GRÓÐUREYÐINGU Á NESJA-
VÖLLUM VERÐUR AÐ STÖÐVA
FJ—Reykjavik. Ein þeirra til-
lagna, sem borgarfulltrúar
minnihluta-flokkanna fluttu sam-
eiginlega á si&asta fundi borgar-
stjórnar, fjallaöi um jöröina
Nesjavelli I Grafningi, sem er i
eigu Hitaveitu Reykjavlkur.
Tillagan var svohljóöandi:
„Borgarstjórn samþykkir, aö
nú þegar veröi teknar upp
viöræöur viö ábúanda Nesjavalla
um verulega fækkun sauöfjár á
býlinu næsta haust, Náist ekki
samkomulag um slikt, þannig aö
viöunandi geti talizt, taki borgin
sjálf jöröina til ábúöar.
Jafnframt samþykkir borgar-
stjórn aö hefja nú á þessu ári
framkvæmdir viö aö giröa land
Nesjavalla. Verði um þær fram-
kvæmdir höfö samvinna og sam-
ráö viö eigendur nágranna-
jaröa.”
1 framsöguræöu með tillögunni
komst Kristján Benediktsson
m.a. svo aö orði, en hann hafði
orö fyrir flutningsmönnum i
þessu máli:
„Grafningurinn er eitt þeirra
svæða á landinu, þar sem stór-
felld gróðureyðing hefur átt sér
stað. A það jafnt viö um gras- og
skóglendi. Munu vart finnast i
byggð staðir, sem verr hafa orðið
úti varðandi gróöurspjöll hin síð-
ari ár. betta má öllum ljóst vera
sem ferðast um þessa fögru sveit,
og ekki sizt þeim, sem muna,
hvernig þarna var umhorfs fyrir
einum til tveimur áratugum.
Arið 1974 gerði magister Ingvi
Kristján Benediktsson.
borsteinsson itarlega rannsókn á
ástandi gróðurs i landi Nesjavalla
og áætlaöi út frá þvi beitarþol á
jörðinni. Skal hér tilfærður kafli
úr skýrslu hans, sem um þetta
fjallar. bar segir:
„Útreiknað beitarþol i landi
Nesjavalla er um 650 ærgildi i
þrjá mánuði. En miðað við raun-
verulegan beitartima i Nesja-
vallalandi er beitarþolið ekki
meira en 350 ærgildi. -Gróður á
þessu svæði ber þess augljós
merki, að hann hefur verið of-
beittur um langt skeið. Skóglendi,
sem þekur um 166 ha. svæði, er
illa útleikið og i hraðri afturför.
bað sama er að segja um gras-
lendið og raunar mest allt gróður-
lendi Nesjavalla. Gróður og jarð-
vegseyöing er ör i landinu eins og
viðast i Grafningnum.
betta land þyrfti nær algerrar
friðunar við i lengri tima, svo að
gróður nái að endurnýjast. Með
núverandi beitarþunga er ekki
annaö sjáanlegt, en að gróður og
jarðvegur hverfi þarna með öllu á
næstu áratugum.”
Óhætt er að fullyrða, að veru-
lega hafi ástandið versnað þau
tvö ár, sem liðin eru frá þvi
magister Ingvi gerði skýrslu sina.
Reykjavikurborg keypti Nesja-
velli á sinum tima vegna þeirra
hitaréttinda, sem þar eru, en ekki
i þeim tilgangi, að þar yrði rekiö
slikt stórbú, að ógnaði lifriki
staðarins, þótt jöröinni yröi hald-
ið i sómasamlegri ábúð.
Framangreind tillaga gripur að
okkar dómi á þeim úrræðum,
sem fyrir hendi eru.
Borgin getur ekki verið þekkt
fyrir, sem eigandi og ábyrgðar-
aðili Nesjavalla, að láta þessa
kostamiklu jörð á einum fegursta
stað við bingvallavatn verða að
gróðurlausri auðn.”
Samþykkt var breytingartil-
laga frá Elinu Pálmadóttur, sem
gekk i sömu átt og upphaflega til-
lagan, en öllu fastar að orði kveð-
ið.
Nú er að sjá, hvernig til tekst
með framkvæmdina, en allir
borgarfulltrúar virtust einhuga i
afstöðunni til þessa máls.
Misjafnar undirtektir
tillögur minnihlutans
við
FJ-Reykjavík. Auk þeirra til-
lagna, sem borgarfulltrúar
minnihlutans fluttu sameiginlega
á siðasta fundi borgarstjórnar og
getið hefur verið um i Timanum,
fluttu þeir tillögur um ibúðar-
byggingar, framkvæmdir hjá
bæjarútgerðinni, stuðning við
Félag einstæðra foreldra við kaup
á húsnæði, og að borgin beiti sér
fyrir þvi aö koma upp vinnustöð-
um fyrir öryrkja.
Tillögur þessar fengu misjafn-
ar undirtektir hjá meirihlutan-
um. bannig var tillögunni um
áætlanagerö um ibúðabyggingar
visaö frá. BÚR-tillögunni var vis-
að til útgeröarráðs. Stuöningur
við einstæða foreldra var sam-
þykktur, en tillögunni um vernd-
aða vinnustaði fyrir öryrkja
breytt til hins verra og þannig
samþykkt með 9 atkvæðum gegn
6.
Framangreindar tillögur
minnihlutans birtast hér á eftir:
„barsem ætla má, að fyrirhug-
uð kaup Félags einstæðra for-
eldra á húsnæði, sem notað verð-
ur til skammtima lausnar á
vanda einstæðra foreldra, sem
lenda i húsnæöiserfiðleikum,
verði til mikils gagns og fækki
þeim vandamálum, sem Félags-
málastofnun borgarinnar þarf aö
sinna, samþykkir borgarstjórn aö
veita félaginu fjárhagslegan
stuðning i þessu skyni.”
O
„Borgarstjórn samþykkir að
fela borgarráði aö gera áætlun
um byggingu 450 ibúða á árunum
1977-1982.
1. Byggðar veröi 150 tveggja her-
bergja ibúðir, sem leigðar
verði ungu fólki, sem er að
stofna heimili. Leigutimi sömu
fjölskyldu i þessum ibúöum
verði 3-5 ár.
2. Byggðar verði 200 ibúðir
tveggja, þriggja og fjögurra
herbergja, sem leigðar verði
efnalitlu fólki i húsnæðisvand-
ræðum.
Verkakvennafélagið Framsókn
Aðalfundur
félagsins verður haldinn sunnudaginn 28. marz nk. kl.
14.30 i Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. önnur mál.
Félagskonur, fjölmennið og mætið stundvislega. Sýnið
skirteini við innganginn. — Stjórnin.
Dóms- og
kirkjumálaráðuneytið
24. marz 1976.
Orðsending
til eigenda tengivagna og festivagna
Athygli eigenda skráningarskyldra tengivagna og
festivagna, sem eigi hafa enn veriö skráöir, er hér meö
vakin á þvi, aö þeim ber aö snúa sér til viökomandi lög-
reglustjóra (bifreiöaeftirlits), þannig aö ökutæki þessi
veröi skráö og á þau sett skráningarmerki.
Frestur til að skrá umrædd ökutæki er til 15. april
næstkomandi að þvi er varöar tengi- og festivagna,
sem eru 6.000 kg að leyfðri heildarþyngd eöa meira, en
til 1. júní næstkomandi að þvi er varöar aðra skráning-
arskylda tengi- og festivagna, þ.e. vagna, sem eru 500
kg að eigin þyngd eða meira (þ.á.m. svonefnda hús-
vagna). Eftir það verður notkun óskráðra en skráning-
arskyldra vagna óheimil.
3. Byggðar verði 100 ibúöir ætlað-
ar öldruðu fólki. íbúðirnar
verði bæði fyrir einstaklinga og
hjón og seldar þvi fólki, er býr
i óhentugu eigin húsnæði. Borg-
in hafi forkaupsrétt á þessum
ibúðum.”
O-
„Borgarstjórn Reykjavikur
leggur áherzlu á nauðsyn þess að
hraða uppbyggingu Bæjarútgerð-
ar Reykjavikur, m.a. vegna hins
ótrygga atvinnuástands i borg-
inni. Borgarstjórn telur, að næsti
áfangi uppbyggingar BÚR eigi að
felast i eftirfarandi framkvæmd-
um:
1. Eflingu skipastóls fyrirtækis-
ins með kaupum á 2 skuttogur-
um af minni geröinni.
2. Byggingu nýs fullkomins
frystihúss i Bakkaskemmu.
Undirbúningur framan-
greindra framkvæmda verði þeg-
ar hafinn.
A þessu ári álitur borgarstjórn,
að verkefnin eigi að vera þessi:
Auk kaupa á 1 skuttogara af
minni gerðinni, sem samningar
standa nú um, samkvæmt
ákvörðun borgarráös, verði hafin
innrétting á hluta af Bakka-
skemmu fyrir fiskmóttöku togara
BÚR.
Borgarstjórn leggur sérstaka
áherzlu á, að það þolir enga bið að
bæta aðstöðu BÚR til fiskmót-
töku. Visar borgarstjórn i þvi
sambandi i álit sérfræðinga, er
telja, að aðstaða til fiskmóttöku i
Fiskiðjuverinu sé mjög ófullkom-
in. Hin slæma aðstaða til fiskmót-
töku rýrir verögildi hráefnis þess,
sem unnið er úr.
Ný fiskmóttaka i Bakka-
skemmu mundi gera kleift að
stórlækka löndunarkostnað, þar
eð unnt væri þá að landa beint úr
togurum BÚR i hina nýju fisk-
móttöku. Má þvi telja vist, að inn-
rétting nýrrar fiskmóttöku i
Bakkaskemmu mundi fljótlega
bæta rekstrarafkomu BÚR.
Borgarstjórn telur, aö BÚR eigi
að vanda sem mest fiskfram-
leiðslu sina og gæta þess, að
fiskurinn fái sem bezta meðferð i
togurunum, m.a. með aukinni
notkun fiskkassa.”
-O-
„Þar sem mikið skortir á, að
fólk með skerta vinnugetu eigi
kost á störfum við sitt hæfi,
ákveður borgarstjórn að koma
upp vinnustöðvum fyrir öryrkja.
Borgarstjórn felur félagsmála-
ráði að undirbúa framkvæmdir i
samráði við endurhæfingarráð.
Jafnframt beinir borgarstjórn
þvi til þeirra, sem annast manna-
ráðningar i stofnunum og fyrir-
tækjum borgarinnar, að þeir hafi
jafnan tiltekinn fjölda öryrkja i
vinnu og sjái til þess, að Reykja-
vikurborg fullnægi á sómasam-
legan hátt þvi ákvæði i lögum um
endurhæfingu, að þeir, sem notið
hafa endurhæfingar, eigi for-
gangsrétt að öðru jöfnu til at-
vinnu hjá riki og bæjarfélögum.”
Víðtæk samvinna Landsýnar
og Úrvals er að hefjast
Flogið verður með Boing 727 þotum Flugleiða
FB-Reykjavfk. Feröaskrifstof-
urnar Landsýn h.f. og Úrval hf.
hafa ákveöið að efna til samvinnu
um ferðirtil Júgóslaviu, Mallorca
og Ibiza i sumar. Farnar verða
sex ferðir til Portoroz i Júgó-
slaviu, 15 ferðir til Mallorcá og
fjórar ferðir til Ibiza. Flogið verð-
ur með Boeing 727 þotum Flug-
leiða, og verður beint flug til
þessará staða, sem tekur um
fjóra tíma á hvern stað.
t fréttatilkynningu frá ferða-
skrifstofunni Landsýn segir, að
skrifstofan hafi á undanförnum
árum gert tilraun til að auka fjöl-
breytni ferðamöguleika tslend-
inga. t þeim tilgangi hafi Landsýn
haft samvinnu viö Air Viking og
Sunnu á siðasta ári um flug til
Júgóslaviu. A siðasta hausti lágu
fyrir tilboð frá Air Viking, Flug-
leiöum og júgóslavnesku flugfé-
lagi (JAT) um leiguflug á þessar
slóðir, og reyndist tilboð Flug-
leiða lægst. Nú hyggjast sem sagt
Landsýn og Úrval nýta sameigin-
legt flug til ákveðinna staöa.
Til Júgóslaviu veröur flogið á
miðvikudögum, fyrst 2. júni og
siðast 6. október. Þangað verða
farnar þriggja vikna ferðir. 1
Portoroz verður sérstök skrif-
stofa þar sem starfandi veröur
reynt starfsliö, tslendingar og
Slóvenar.
Til Mallorca verður flogiö á
föstudögum, fyrst 14. mai og sið-
ast 8. október. Verður til skiptis
um að ræða tveggja og þriggja
vikna ferðir. Tii Ibiza verður
sömuleiðis flogiö á föstudögum,
fyrst 28. maiogsiðast 23. júli, en
ferðir eftir það verða samtvinn-
aðar Mallorcaferðum.
A Mallorca og Ibiza verða sér-
stakar skrifstofur reknar af
ferðaskrifstofunum, þar sem is-
lenzkir starfsmenn munu veita
fyrirgreiðslu og þjónustu.
Ferðaskrifstofurnar hafa enn-
fremur ákveöið aö efna til sam-
starfs um ferðir til Norðurlanda
og munu verða vikulegar sameig-
inlegar ferðir til Kaupmanna-
hafnar, Oslóar og Stokkhólms, en
þessar ferðir yrði einnig hægt að
tengja ferðum til Helsinki. Verð
þessara ferða mun verða hag-
kvæmara en annarra, þar sem
þær byggjast á svokölluðum ,,IT
group” fargjöldum, sem eru þau
lægstu á markaðinum i dag.
Einnig eru fyrirhugaöar vikuleg-
ar ferðir allt árið til London, en
undirbúningur þeirra ferða er
skemmra á veg kominn.
Ferðaskrifstofurnar hafa
tryggt sér leyfi gjaldeyrisyfir-
valda fyrir sólarlandaferðum sin-
um.
Landsýn hefur ákveöið að veita
félögum verkalýðsfélaganna svo-
kallaðan Alþýðuorlofsafslátt af
sólarlandaferðum. Þurfa menn
aðeins að framvisa skilrikjum um
að þeir séu i verkalýösfélagi, og
gildir afslátturinn einnig fyrir
fjölskyldur félagsmanna.
1 fréttatilkynningunni segir
ennfremur, að nokkuð hafi dregið
úr ferðum Islendinga til útlanda á
siðasta ári. Þó mun láta nærri, að
um fjórði hver íslendingur hafi
farið utan. Að sjálfsögðu er ekki
um það að ræða, að allir hafi þeir
farið i orlof, og erfitt er að áætla,
hversu stór hluti það er, þar sem
ekki liggja fyrir itarlegar skýrsi-
ur um ferðir manna. Ætla má að
það sé helmingur og að um helm-
ingur þess hafi farið til svokall-
aðra sólarlanda, eða um sextándi
hluti íslendinga.
JBT
II
EGA]
____________
LAMDVERIMD