Tíminn - 26.03.1976, Page 16
]6
TÍMINN.
Föstudagur 26. marz 1976
r
r r
\
A FLOTTA FRA ASTINNI
Eftir Rona Randall
lika. Hún fylgdi henni eins og skuggi hvert sem hún fór.
Og nú — nú var Venetia sjálf að koma til Parísar. Hún
átti að dansa í óperunni, það yrði skrifað um hana, talað
um hana og hún tignuð. Hún kæmist ekki hjá að verða
minnt á hana og Brent um leið...
Hún hrökk upp úr hugsunum sínum við að doktor Bai-
ley kom inn.
— Ég hitti Gabriellu þína, sagði hann um leið og hann
sá David. — Við borðuðum á La Belle Aurore, höfðum
það verulega notalegt — og ég kyssti hana góða nótt.
— Það hefurðu fjárann ekki gert!
— Jú.. og henni geðjaðist að þvi.
— Hún er frönsk. Hún hefur bara verið að þakka þér
fyrir matinn.
David stóð upp, deplaði öðru auganu til Myru og fór
f ram.
— Þessi ungi maður ætti að fara að verða fullorðinn,
sagði Bailey og hellti kaff i í bolla handa sér.
— Hvernig var svo þessi Gabrielle? spurði Myra for-
vitin.
— Alveg eins og ég bjóst við, mín kæra. Nákvæmlega
eins. Ég hef hitt tvifara hennar í London og víðar. Har-
wey ætti að líta í kringum sig eftir arftaka hennar á
heimaslóðum...hann gæti f undið indælis hjúkrunarkonur
hérna, ef hann nennti að taka eftir þeim.
Og þá sérstaklega einni, eftir orðum lafði Lowell að
dæma, hugsaði Myra. Hafði hún á réttu að standa, hvað
Pollý Friar viðvék? Hún hafði á tilfinningunni, að
Estelle Lowell skjátlaðist sjaldan. Það gæti orðið gaman
að gera sig fína eitt kvöld og vera ekkert annað en ung
kona í samkvæmi, í staðinn fyrir doktor Henderson í
hvítum slopp.
Dyrnar opnuðust aftur og Mark Lowell kom inn.
— Ég veit, að þið eruð vön að fá ykkur kaff i á þessum
tíma, sagði hann.— Er til bolli handa mér lika?
Mayra hellti í handa honum og hann horfði athugándi á
hana, meðan hann drakk.
— Þér lítið ekki hressilega út, þrátt fyrir frídaginn,
sagði hannm — Hvernig eydduð þér honum?
— Éq fór í qönquferð —anzi langa reyndar.
— Það hefði átt að hressa yður.
Hún átti ekkert svar við þessu, svo hún sagði ekkert
— Sváfuð þér vel í nótt? spurði hann.
— Já, skrökvaði hún.
— Ekki er svo að sjá. Þér haf ið skugga undir augunum
og ég get ekki sagt, að mér geðjist að því.
Hún leit hissa á hann. Gat verið, að þessi maður bæri
einhverja umhyggju fyrir henni? Eins og hann hefði les-
ið hugsanir hennar, sagði hann stuttlega: — Það er
sjúkrahúsið, sem ég er að hugsa um. Hvorki ég né sjúk-
lingarnir höfum nokkuð að gera með þreytta lækna.
Sér til undrunar heyrði hún sjálfa sig segja: — Hefðuð
þér yfirleitt nokkuð að gera við kvenkyns lækni, doktor
Lowell?
Höndin með kaffibollann nam staðar á leiðinni upp að
andliti hans. Hann leit snöggt á hana, en sagði svo: —
Þegar skortur væri á öðru betra, yrði hún að minnsta
kosti að reyna að verða að gagni.
Þetta hafði hún nánast beðið um. Síðan sagði hún
alvarlega: — Afsakið, ég var svolítið frökk, ég ætlaði
ekki að vera það.
Henni til undrunar fór hann að hlæja. — Ó, jú, þér
ætluðuð það. Þér urðuð reið og brugðust við á dæmigerð-
an, kvenlegan hátt. Takk fyrir kaff ið. Hann setti frá sér
bollann og fór fram.
Myru fannst að henni hefði aldrei verið jafn illa við
nokkurn mann.
8. kafli.
Jósep gamli leit í kring um sig. Einhver kom til hans,
kona i hvítum slopp. Hún sagði: — Allt í lagi, hjúkrunar-
kona, þú skalt bara halda áfram og stúlkan, sem horft
hafði spyrjandi á hana, hélt áfram verki sínu.
Myra nam staðar við rúm Jóseps gamla og hann sá, að
hlustunartæki stóð upp úr vasa hennar. — Almáttugur.
Þér ætlið þó ekki að segja mér, að þér séuð læknir? Svei
mér, ef ég vil láta telpukrakka skoða mig!
— Ég rannsaka yður, þegar ég er á vakt, sagði Myra
róleg. Hún var stutt í spuna, en augun og röddin voru vin-
gjarnleg.
Falleg augu, hugsaði hann. — Snúið yður upp í birtuna,
sagði hann. — Mig langar til að skoða yður svolítið nán-
ar.
Undrunarsvipur leið yfir andlit hennar og hann hló of-
an í skeggið. — Nú, svo þér eruð hissa? Það er greinilegt,
að þér eruð ný hér, annars væruð þér ekki hissa á neinu,
sem ég segi. Ekkert hinna er það, hvorki hjúkrunar-
konurnar né læknarnir. Nú þekkið þér mig.
Ef eitthvað væri
að myndum við
Svona hættu þessu
j Geiri.bú hjálpaöii
'þeim til sjálfstæðis
mainstu? Þaðer’
éitthváð meira en
þetta fíjá þér núna.
■
iHWltt
FÖSTUDAGUR
26. marz
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: „Safnarana”
9.30. Þingfréttir
Spjallað við bændur kl.
10.05. Úr handraðanum kl.
10.25: Sverrir Kjartansson
sér um þáttinn. Morguntón-
leikarkl. 11.00:
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Þess
bera menn sár” eftir
Guðrúnu Lárusdóttur Olga
Sigurðardóttir les (3).
15.00 Miðdegistónieikar
Sinfóniuhljómsveit
Lundúna leikur Sinfóniu nr.
5 i B-dúr op. 100 eftir
Prokofjeff, André Previn
stjórnar (Hljóðritun frá
austurriska útvarpinu).
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.10 Útvarpssaga barnanna:
Spjall um Indiána Bryndis
Viglundsdóttir heldur
áfram frásögn sinni (10).
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 'Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál Guðni Kol-
beinsson flytur þáttinn.
19.40 Þingsjá Kári Jónasson
sér um þáttinn.
20.00 Tónleikar Sinfóniuhljóm-
sveitar islands i Háskóla-
biói kvöldið áður. Einleikari
á selló: Eric Wilson frá
Bandarikjunum. Stjórn-
andi: Páll P. Pálsson a.
Karlakór Reykjavikur
syngur „Svarað i
sumartungl” tónsmið fyrir
karlakór og hljómsveit við
kvæði Þorsteins Valdimars-
sonar (frumfl.) b.
„Schelomo”, hebresk
rapsódia fyrir selló og
hljómsveit eftir Ernst
Bloch. c. Sinfónia nr. 3 i c-
moll eftir Camille Saint-
Saens. — Jón Múli Arnason
kynnir tónleikana.
21.30 Útvarpssagan: „Siðasta
freistingin” eftir Nikos
Kazantzakis Kristinn
Björnsson islenzkaði.
Sigurður A. Magnússon les
(9).
22.00 Frétir.
22.15 Veðurfregnir Lestur
Passiusálma (33).
22.25 Dvöl Þáttur um bók-
menntir. Umsjón: Gylfi
Gröndal.
22.55 Afangar Tónlistarþáttur
i umsjá Asmundar Jónsson-
ar og Guðna Rúnars Agn-
arssonar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur
26. mars
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Kastljós Umsjónarmað-
ur Eiður Guðnason
21.40 Grænienskar verkakonur
Dönsk heimildamynd um
konur á Grænlandi, sem
vinna við rækjuvinnslu, og
viðhorf þeirra til starfsins.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son. (Nordvision — Danska
sjónvarpið)
22.00 Heimferðin (The Ride
Back) Bandarisk biómynd
frá árinu 1957. Aðalhlutverk
Anthony Quinn, William
Conrad og Lita Milan.
Kallen hefur orðið manni að
bana og flýr til Mexikó.
Vörður laganna finnur hann
þar og leggjur af stað með
hann til Bandarikjanna.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
23.15 Dagskrárlok