Tíminn - 26.03.1976, Blaðsíða 19
Föstudagur 26. marz 1976
TÍMINN
19
1111 iðlfol
III
Þrátt fyrir heit mitt um aö
láta Martein M. Skaftfells hvfla
i friði við rógsiðju sina gegn
okkur Arna Asbjarnarsyni,
kemst ég ekki hjá því að biðja
Timann fyrir nokkur orö i tilefni
af grein hans i Landfara i gær.
Hún varpar nefnilega nýju ljósi
á tilgang hans með herferðinni á
hendur Arna, auk þess sem hún
opinberar virðingu hans fyrir
sannleikanum, sem hann metur
nú i prósentum, en það er
kannski ekki óeðlilegt af fyrr-
verandi kennara og heildsala.
í greininni^egir hann það „100
% ósannindi”/ a) ,,aö samein-
ing pöntunarfélagsins og NLFÍ
hafi nokkru sinni verið sam-
þykkt”, b) ,,aö formaður P.fél.,
Zóphónias Pétursson hafi borið
fram sameiningartillögur”, c)
„að nokkur bein tillaga um
sameiningu hafi verið borin
fram, d) ,,að nokkur slik tillaga
hafi verið rædd á tveim aðalf.
P.fél.”, e) ,,að ákveðið hafi ver-
ið, að P.fél. skyldi lúta stjórn
NLFl, hefðu þau sameinazt”.
Og ölí þessi „100% ósannindi”
eru frá undirrituðum komin.
Litum nú á heimildir öruggari
en fullyrðingar okkar Marteins.
1 fundargjöröum og fylgiskjöl-
um frá 14. landsþingi NLFl,
sem háð var 6. okt. 1973, er að
finna tillögu svohljóðandi:
„Þar sem fram er komin ósk
frá Pöntunarfélagi Náttúru-
lækningafélags Reykjavikur,
samanbersamþykkt stjórnar og
félagsfundar félagsi- þ. 28.
sept. sl., um aö félagið samein-
istNLFI þannig, að Pöntunarfé-
lagið heyri framvegis undir
stjórn NLFI, þá samþykkir
landsþing NLFI, haldiö i Sogni
6.okt. 1973, að verða viö þessum
tilmælum, aö því tilskyldu, að
framkvæmilegar leiöir finnist
til sameiningarinnar”.
Undir tillöguna rita eigin
hendi: Hafsteinn Guðmundss.,
Zóphónias Pétursson (form.
fél.), Asta Jónasd., Eggert V.
Kristinsson, Friögeir Ingi-
mundarson og Árni Ásbjarnar-
son.
Tillögu þessari var visað til
allsherjarnefndar þingsins, og
frá henni kom svohljóðandi til-
laga:
„Allsherjarnefnd leggur til að
tilmæli stjórnar og félagsfundar
Pöntunarfélags NLFl verði
samþykkt af 14. landsfundi
NLFI”.
Undir þá tillögu rita: Zóphón-
ias Pétursson, Haraldur Sigur-
geirsson, Friðgeir Ingimundar-
son, Hafsteinn Guðmundsson og
Ingþór Sigurbjörnsson.
I fundargerðarbók NLFI, bls.
54, segir: „Form. allsherjar-
nefndar Zóphónias Pétursson
gerði grein fyrir tillögu um
sameiningu PNLFR og NLFl,
og var tillagan borin undir at-
kvæði og samþykkt”.
I gjörðabók P.fél., sem undir-
ritaður hefir ekki aðgang aö,
mun vera að finna hliðstæða til-
lögu, undirritaða af Zóphóniasi
og fleiri úr stjórn félagsins, sem
samþykkt var á síðasta aðal-
fundi félagsins 20. apr. 1974
Staðhæfingar Marteins heföu
þvi verið réttar, ef hann hefði
sagt „100% sannindi” i stað
„100% ósannindi”. Og það getur
maður kallað að hafa hausavixl
á hlutunum eða „segja að hvitt
sé svart og svart hvitt”, eins og
hann kemstsjálfur aðorði. Eftir
þennan fund litu allir svo á, að
stjórn NLFI ætti að fara meö
mál NLF-búðanna, þar á meðal
Zóphónias Pétursson, þáver-
andi varaforseti NLFI, sem
fjallaöi um mál búðanna á fund-
um stjórnar NLFI unz hann
hvarf úr stjórninni á síðasta
landsþingi NLFI haustið 1975.
Hingvegar fórst það fyrir að
ganga formlega frá sameiningu
félaganna. Og þegar hinni ný-
kjömu stjórn NLFÍ varð þetta
ljóst, ritaði hún Z.P. bréf og
benti honum á þessi mistök og
fór fram á, að hann tæki málin i
sinar hendur, ásamt stjórn
P.fél. Þannig standa málin nú,
I og mun stjórn P.fél. væntanlega
| boða senn til fundar i félaginu til
| frdcari aðgerða.
Marteinn býsnast yfir þvi, að
á nýafstöðnum aðalfundi NLFR
hafi ekki verið bomar upp til-
lögur framkomnar á fundinum.
! Um þessar tillögur drógust um-
ræður svo á langinn, að komið
var undir miðnætti, þegar Mar-
teinn steig i ræðustólinn i 3. eða
4.sinn,oggenguþáalliraf fundi
i nema fundarstjóri (BLJ), ritari
i og 2—3 fundarmenn, sem voru á
mælendaskrá. Var þvi ekki um
; annað að ræða en að slita fundi,
en fundarstjóri kvað tillögurnar
1 verða til athugunar hjá stjórn-
inni og bomar fram á félags-
fundi siðar.
| Eins og drepið var á i upphafi
þessarar greinar, ljóstrar Mar-
teinn upp i Timagrein sinni hin-
I um raunverulega tilgangi sm-
um með þessum siendurteknu
árásum. Hann er sá að bola
Arna Ásbjarnarsyni frá sem
framkvæmdastjóra NLFI og
heilsuhælisins. Og hver á eftir-
maöur hans að verða? Enginn
annar en Ásbjörn Magnússon,
verzlunarstjóri NLF-búðanna
og meðeigandi heildverzlunar-
innar Elmaró, ásamt syni Mar-
teins. Og nú er reiknimeistarinn
vafalaust að reikna út, fyrir hve
margar milljónir Elmaró gæti
selt „hollvörur” til hælisins i
viðbót við þær 15.5 milljónir,
sem fyrirtækið selur NLF-búð-
unum (skv. reikningi 1974), ef
þetta snjallræöi kemst i fram-
kvæmd.
Hveragerði, 17. marz 1976
Björn L. Jónsson
Landfari vill láta þess getið,
að hér með er lokið birtingu
greina um þetta deiluefni, á
hans vegum enda ætti það að
vera rætt til þrautar, svo mikil
blaðaskrif hafa orðiö um það.
BYGGING SF.
Bygging s.f. reisir hús yfir
starfsemi sina. Sigurjón
Ólafsson annar eigandinn i
miðið.
FARIN AÐ BYGGJA
FYRIR BLÖNDUÓSBÚA
MO-Reykjavik — Bygging s.f.
heitir fyrirtæki, sem var stofnað
fyrir einu ári á Blönduósi. Það
hefur nú flutt starfsemi sina inn i
nýtt húsnæði, sem er uin 400 fer-
metrar að stærð. Helmingurinn af
húsnæðinu er nú þegar tilbúinn,
en hinn hlutinn verður tekinn i
notkun I sumar.
Fyrirtækið annast hvers konar
byggingar og i vetur hefur það
steypt upp eitt ibúðarhús á
Blönduósi og búið er að slá upp
fyrir öðru. Er það fremur sjald-
gæft, að hægt sé að vinna úti við
byggingarframkvæmdir á
Blönduósi um miðjan vetur.
Sigurjón ólafsson, annar eig-
enda Byggingar h.f., sagði i við-
tali við blaðamann Timans, að
næg verkefni væru framundan
hjá fyrirtækinu og þá vantaði
smiði i vinnu. Nú vinna 8 menn i
Byggingu.
Sigurjón sagði, að þeir hefðu
smiðað sér mót sjálfir. Þau eru úr
krossviði á trégrind. Mótin eru
létt, og er þægilegt að vinna með
þeim. Þessi mót spara hús-
byggjendum mikil timburkaup,
enda eru þau notuð á hvert húsið
eftir annað.
VASANÁAASKEIÐUM
SLEGIÐ SAMAN í EITT
VASA-námskeiðunum i ár
verður slegið saman i eitt nám-
skeið, sem haldið verður i Óð-
in-leikhúsinu i Holstebro 13,—19.
júni. Komudagur er sunnudagur-
inn 13. júni og brottfarardagur
laugardagurinn 19. júni.
Námskeiðið mun fjalla um leik-
hústónlist/tónlist i leikritum.
Ekki verður þó fjallað um óperur,
operettur eða söngleiki heldur um
þátt tónlistar og mikilvægi i
„venjulegum” leiktexta. Nám-
skeiðiö er ætlað: leikritahöfund-
um, leikhúslónskáldum, leik-
stjórum, leikurum, hljóöfæraleik-
urum sem starfa i leikhúsum og
leiklistarkennurum. Námskeiðið
verður helmingi fjölmennara en
tiðkast um VASA-námskeiðin,
þar eð tveimur er hér slegið sam-
an i eitt. Gert er ráð l'yrir, að ts-
lendingar geti sent allt að 8 þátt-
takendur. Til undirbúnings og til
grundvallar verklegum þætti
námskeiðsins hefur veriö samin
stutt leiklýsing, sem gefur mögu-
leika a breytilegri túlkun bæði
lyrir litla leikhópaog stór leikhús
— og sem stillega má nota við
margs konar kringumstæður:
lágmarkseinfaldleika, jass- eða
beat-tónlist, llókna nútimatónlist
o.s.frv.. Samin verða 5 tónverk
við umrædda leiklysingu og verða
þau notuð á námskeiöinu til
greiningar, áframhaldandi þró-
unar og til verklegra æfinga og
endanlegrar útlærslu. Ennlremur
veröa lyrirlestrar og umræður.
þótt námskeiðið sé einkum hugs-
að sem vinnunámskeið með verk-
legum æfingum, sem þátttakend-
ur taka þátt i.
VASA-námskeiðin eru Iram-
haldsmenntunarnámskeið á sviði
leiklistar. Þau eru fjármögnuð ai
norræna ráðherraráðinu, hafa
sem skrifstofu Norrænu menn-
ingarmálaskrifstofuna, Snare-
gade 10, 1205 Köbenhavn og eru
skipulögð af VASA-nefndinni,
sem nú er þannig skipuð: Holger
Perfort, leikari (Danmörk),
Kristin Olsoni, leikhússtjóri
(Finnland), Heikki MakelS, leik-
stjóri (Finnland), Stefán
Baldursson, leikstjóri (tsland),
Knut Thomassen, leikhússtjóri
(Noregur) og Pierre Frá'nckel,
rektor (Sviþjóð).
Til undirbúnings námskeiðsins
i ár hefur verið skipuð undirbún-
ingsnefnd, sem þannig er skipuð:
Jörgen Plaetner, borgartónskáld,
Holstebro, Göran O. Eriksson,
leikstjóri og leikritahöfundur,
Stokkhólmi, og (til skiptis) Hen-
rik Otto Donner og Kaj Chydeni-
us, tónskáld, Helsingfors.
AUGLÝSIÐ í tímanum
Rangæingar
Opnum í dag
i góðu húsnæði á Hvolsvelli ódýran
vörumarkað, sem hefur að bjóða allar al-
gengar matvörur og hreinlætisvörur á
mjög lágu verði.
Og húsgagnaverzlun með fjölbreyttu úr-
vali af húsgögnum, gólfteppum, gólfdúk-
um og fleiri vörum.
Markaðurinn verður opinn 5 daga vikunn-
ar frá kl. 10 til 12 og 13,30 til 17,30. nema á
föstudögum til kl. 18,30.
Bjóðum mjög hagstæð viðskipti.
Verið velkomin.
'lJ^aupfélag
angæinga
Auglýsing
um aðalskoðun bifreiða i iögsagnarum-
dæmi Keflavikurflugvallar fyrir árið 1976.
Aðalskoðun bifreiða fer fram við stöðvar
bifreiðaeftirlitsins við ,,Turner”-veg,
eftirtalda daga frá kl. 9.00—12.00 og
13.00—16.30:
Miðvikudaginn 31. marz J-l-^J-100
Fimmtudaginn 1. april J-101—J-200
Föstudaginn 2. april J-201 og yfir.
Við skoðun skal framvisa kvittun fyrir
greiðslu bifreiðagjalda og tryggingaið-
gjalds og ökumaður skal framvisa öku-
skirteini.
Geti bifreiðareigandi eða umráðamaður
bifreiðar ekki fært bifreið til skoðunar á
auglýstum tima, skal hann tilkynna mér
svo bréflega.
Vanræki einhver að færa bifreið tii skoð-
unar á áður auglýstum tima, verður hann
látinn sæta ábyrgð að lögum og bifreiðin
tekin úr umferð hvar sem til hennar næst.
LÖGREGLUSTJÓRINN
Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
24. marz 1976.