Tíminn - 26.03.1976, Qupperneq 20
20
TÍMINN
Föstudagur 26. marz 1976
Skotar
berjast í
Englandi....
— um markakóngstitilinn eftirsótta
TKM MacHOUGALL.
Jon.\ nu.xcAM
Skotarnir Ted MacDougall
hjá Norwichog John Dunc-
an hjá Tottenham berjast
nú um markakóngstitilinn i
Englandi. Þessir mark-
sæknu leikmenn hafa nú
skorað flest mörkin í ensku
l. deildarkeppninni/ —
MacDougall hefur skorað
20 og Duncan 18.
Þeir sem hafa skorað flest
mörkini 1. deildarkeppninni, eru:
MacOougall, Norwich........20
Ouncan, Tottenham..........18
George, Oerby............. 16
Gowling, Newcastle.........14
MacPonald, Newcastle.......14
McKenzie, Leeds............14
Torshack, Liverpool........14
Francis, Birmingham........13
Pcarson, Man. Utd..........13
A. Taylor, W. Ham .........13
Jimmy Greaves er mesti
markakóngur Englands, eftir sið-
ari heimsstyrjöldina — þessi
skotfasti leikmaður, varð fimm
sinnum markakóngur. Greaves
var markakóngur með Chelsea
1959 — 33 rriörk og 1961 — 41 mark.
Þá varð hann markakóngur með
Tottenham 1963 — 37 mörk, 1964
— 35mörkog 1969 — 27 mörk. Hon
Mavies er næstur á blaði, hann
varð tvisvar sinnum markhæstur
i 1. deildarkeppninni — með Sout-
hampton 1967 — 37 mörk og 1968
— 28 mörk.
JIMMY GHEAVES.... skotfast-
asti knattspyrnumaður, sem
England hefur átt.
MARKAKÓNG AR....
1967: — Ron Davies, Southampton..........................37
1968: —George Best, Manchester United....................28
Ron Da vies, Southampton...........................28
1969: — Jimmy Greaves, Tottcnham.........................27
1970: —Jeff Astle, West Bromwich Albion .................25
1971: —Tony Brown, West Bromwich Albion..................28
1972: — Francis Lee, Manchester City........-............33
1973: — Bryan „Pop” Robson, West Ham.....................28
1974: — Mike Channon, Southampton....................... 21
1975: —Malcolm MacDonald, Newcastle......................21
STÚLKAN í
BAÐINU HANS
„BIG MAL"...
Þegar Malcolm Allison, hinn frægi framkvæmdastjóri Crystal Palace-liðsins, eða „Big-Mal”,
eins og hann er kallaður, skellti sér i bað sl. viku, brá honum heldur betur I brán — það var bcr
kvenmaður i baðinu hans. Hann lét það þó ekki á sig fá — enda vanur ýmsu í sambandi við
kvenfólk — heldur skcmmti sér konunglega undir sturtunni, eins og sést á myndinni.
jUngverjar hafq
eiqnazt nýjan
Puskas
Ungverjar hafa mi eignazt undrabarn í knattspyrnu — 19 ára piltur
Tibor Nyilasi hefur nú skotizt upp á stjörnuhimininn. Þessi piltur er
potturinn og pannan i leik ungverska landsliðsins, skipað leikmönnum
undir 23ja ára aldri, sem sló Englendinga út úr Evrópukeppninni.
Nyilasi skoraði 2 mörk gegn Englendingum i Budapest, þar sem hann
lék ensku leikmennina grátt. Þessi nýi knattspyrnusnillingur Evrópu,
er einn aðalmáttarstólpinn i landsliði Ungverja, sem þeir hafa verið að
byggja upp fyrir heimsmeistarakeppni i Argentinu 1978, en þar ætla
Ungvernjar sér stóra hluti.
Nyilasi er spað miklum frama á
knattspyrnusviðinu — hann á
örugglega eftir að verða heims-
frægur og á hróður hans eftir að
aukazt næstu árin, þar sem hann
er ekki enn búinn að ná fullum
þroska. Hæfileikar þessa unga
Ungverja eru geysiiegir og
honum hefur verið likt við knatt-
spyrnusnillinginn Puskas.
Nyilasi hefur yfir sömu eigin-
leikum aö ráða og Puskas, þegar
hann var að nálgast toppinn.
Ensku knattspyrnukapparnir
Gerry Francis (q.p.r.), Trevor
Francis (Birmingham) og Alan
Hudson (Stoke) munu örugglega
seint gleyma Nyilasi, þvi að Ung-
verjinn lék þá mjög grátt i Buda-
pest — þar ruglaði hann þá svo i
riminu, að þeir voru eins og
lærlingar i kennslustund hjá
honum.
Ungverjar eru nú að byggja
upp nýtt landslið og hafa þeir lagt
mikla rækt við þá uppbyggingu
undanfarin ár. Þeir haga upp-
byggingunni þannig, að þeir
fylgjast með öllum ungum knatt-
spyrnumönnum á aldrinum 11-12
ára — siðan taka þeir beztu ung-
lingana og senda þá til Budapest,
þar sem sterkasta félag
Ungverjalands, Ferenovaros,
tekur við þeim og elur þá upp.
Þannig fá Ungverjar alla efni-
legustu knattspy rnumenn
Þeir binda miklar
vonir við 19 óra
knattspyrnu
snilling, sem lék
Englendinga
grótt ó dögunum
landsins undir sama þak.
Árangurinn er að koma í ljós — 7
leikmenn frá Farenovaros eru nú
i landsliði Ungverjalands. Nyilasi
ereinn af þessum ungu leikmönn-
um, sem sendur var til Budapest.
Það er Lajos Baroti, sem sér
um þessa uppbyggingu, en hann
stjórnaði landsliði Ungverja-
lands, sem lagði Brasiliumenn að
velli i HM-keppninni i Englandi
1966, og stöðvaði þar með 12 ára
sigurgöngu Brasiliumanna.
Þegar Baroti var spurður um,
hvort Nyilasi væri bezti leik-
maður Ungverjalands, sem hann
hafi haft, siðan Florian Albertvar
á toppnum 1966, sagði hann: —
„Hann er nú þegar orðinn betri en
Albert og kominn i hóp allra beztu
knattspyrnumanna heims”. Þeir
sem hafa séð Nyilasi leika, taka
örugglega undir þessi orð Baroti.
Þarna er á ferðinni knattspyrnu-
maður, sem á örugglega eftir að
verða heimsfrægur.
AAyndin fræga....
Þetta er myndin, sem nær var búin að binda endi á knattspyrnuferil
Sten Bowles hjá Lundúnarliöinu Queens Park Rangers. Þegar hún
birtist i einu Lundúnarblaöanna, varö konan hans æf — og ákvaö aö
yfirgefa stórborgina og haida heim til Manchester og Bowles fór
fram á, aðvera setturá sölulista og neitaði að leika með Q.P.R. En
nú er allt falliö i ljúfa löö — Anna ákvað aö vcra áfram i London og
Stan cr aftur byrjaður að leika meö QP.R.-liðinu, sem stefnir aö
Englandsmcistaratitlinum.