Tíminn - 26.03.1976, Blaðsíða 24
METSÖUJBÆ8CUR]
Á ENSKU í
VASABROTI
SÍS-FÓWUlt
SUNDAHÖFN
Hættulegur inflúensu
vírus í herbúðum
Hörð mótmæli gegn óréttlótum efnahags-
róðstöfunum ríkisstjórnarinnar ó Ítalíu
Reuter, London. — Influensa,
sem breiðst hefur út i bandarisk-
um herbúðum, hefur valdið
nokkrum ugg meðal heilbrigðis-
yfirvalda. Er þar um að ræða
sömu tegund inflúensu og geisaði
Risauppboð
á rauðvíni
Reuter, London. Eitt stærsta
uppboð þessarar aldar á rauð-
vini hófst i London i gær og voru
þá boðnar upp 180 þúsund
flöskur, sem seldust fyrir um
435 þúsund sterlingspund.
Sex hundruð vinkaupmenn,
viða að úr heiminum eru staddir
á uppboðinu og einn þeirra,
Bandarikjamaður, keypti i gær
meðalannars tólf flöskur af vini
fyrir þrjú hundruð sterlings-
pund.
t dag verða seldar á upp-
boðinu aðrar 180 þúsund ílöskur
af rauðvini, þannig að alls verða
það um þrjú hundruð og sextiu
þúsund.
árið 1918, en þá létust um tuttugu
milljónir manna úr henni.
Er nú spurt hvort virus sá sem
veldur inflúensunni sé jafn smit-
andi nú og hann var þá og hvort
hann sé jafnan banvænn.
Leit að svörum við þessum
spurningum hefur engan árangur
borið enn sem komið er, en allar
inflúensumiðstöðvar sem reknar
eru á vegum Heilbrigðisstofnun-
ar Sameinuðu þjóðanna hafa ver-
ið varaðar við og þeim skipað að
hafa strangt eftirlit með þvi hvort
inflúensa brýzt út á svæðum
þeirra.
Þeir ibúar veraldar sem eru
undir fimmtugu nafa ekki komizt
i næga snertingu við virus þennan
til þess að hafa byggt uppp ónæmi
gegn honum, likt og á við um
venjulega inflúensu.
Einn af embættismönnum
heilbrigðisstofnunar Sameinuðu
þjóðanna (WHO) sagði i gær við
fréttamenn i London, að ef virus-
inn breiddist jafn hratt út og hann
gerði 1918, þá yrði hann mjög
hættulegur, þar sem mótaðgerða
yrði þá ekki nægilega kostur.
Foot efstur í fyrstu umferð, en....
Milljónir verkamanna
lömuðu landið í gær
Reuter, Róm. — Milljónir
verkamanna hófu i gær verkfall
á ttaliu, til þess að mótmæla
aðgerðum rikisstjórnarinnar
gegn verðbólgu i landinu.
Um það bil tiu milíjónir
verkamanna hlýddu verkfalls-
boðun þriggja helztu verka-
mannasambanda landsins og
lömuðu þar með iðnað, sam-
göngur, skóla , sjúkrahús og
póst og sima allt að átta klukku-
stundir. I sumum greinum stóð
verkfallið þó um styttri tima.
Einn af leiðtogum verka-
manna á Italiu sagði i gær á
fundi i Genúa, að verkamenn —
viti að nauðsyn ber til harka-
legra ráðstafana til að vinna
bug á verðbólgu og samdrætti i
landinu og þeir hafi ekki i
hyggju að neita að bera sinn
hluta af bagganum. —
Hins vegar, sagði leiðtoginn,
— vilja verkamenn vita, og það
ekki að ástæðulausu, hvaða
gagn fórnir þeirra vinna og
hvort tekjuhærri þjóðfélags-
stéttir verði einnig látnar bera
sambærilega bagga. Til þess
hefur ekki verið ætlazt af þeim
tekjuhærri hingað til og virðist
ekki vera I dag. — i
Sagði leiðtoginn, Luciano
Lama, að til þyrftu að koma að-
gerðir sem gætu talizt réttlátar,
ekki aðgerðir sem fyrst og
fremst kæmu niður á verði
helztu neyzluvara og kæmu
þannig verst við lágtekjumenn.
Þá sagði Lama einnig að
atvinnuveitendur reyndu nú að
nota efnahagskreppuna i
landinu sem afsökun fyrir þvi að
ganga díki að samningum við
verkamenn og hefði rikis-
stjómin ekki sinnt beiðnum um
að samningaviðræðum yrði
komið á.
1 Róm hafa verið birtir út-
reikningar, sem sýna að verð-
bólga er enn vaxandi i landinu
og búizt er við að hún eigi enn
eftir að aukast, bæði vegna
verðfalls lirunnar, svo og vegna
efnahagsaðgerða rikisstjórnar-
innar, sem fela i ser aukna
skatta og vaxtaprósentu.
Liranhafðii gær falliðnokkuð
frá þvi á miðvikudag og stóð
hún þá þannig að Baiidarikja-
dollar var metinn á 840.20 lirur,
miðað við 838,50 lirur á
miðvikudag.
Egyptar fresta greiðslum skulda sinna við Sovét....
Og enn versnar sambúð ríkjanna
búizt við sigri
Callaghans samt
Reuter, London. Michael Foot,
atvinnumálaráðherra Bretlands,
varð i gær efstur i fyrstu umferð
atkvæöagreiðslunnar innan
Verkamannaflokksins brezka,
um sæti leiðtoga flokksins, sem
taka mun við af Harold Wilson.
Úrslit þessi eru þó ekki endan-
leg, þar sem enginn frambjóðandi
náði meirihluta greiddra atkvæða
og þvi þarf að minnsta kosti eina
umferð til.
Foot fékk niutiu af þeim þrjú
hundruð og fjórtán atkvæðum
sem um var að ræða, en kosning-
arnar eru leynilegar. Annar var
Callaghan, utanrfkisráðherra,
sem fékk áttatiu og fjögur at-
kvæði.
Þriðji var Roy Jenkins, innan-
rikisráðherra, með fimmtiu og
sex atkvæði, þá Tony Benn orku-
málaráðherra, með þrjátiu og sjö
atkvæði, sem er mun meira en
búizt var við
Benn tilkynnti þegar eftir at-
kvæðagreiðsluna að hann drægi
sig til baka og myndi hann styðja
Foot, en þeir eru báðir i vinstra
armi Verkamannaflokksins.
Denis Healey, fjármálaráð-
herra fékk þrjátiu atkvæði og
Crosland umhverfismálaráð-
herra fékk seytján.
Búizt er við þvi að Callaghan
verði endanlegur sigurvegari i
baráttunni um leiðtogasætið — og
þar með forsætisráðherrastólinn
— eftir að aðrir miðjumenn og
hægriarmsmenn hætta við fram-
boð sitt og lýsi yfir stuöningi við
hann.
Engu að siður eru niutiu at-
kvæði meira en Foot var ætlað
fyrirfram og búast má við að
kosningabaráttan verði harðari
en ætlað var.
Reuter, Kairó. —Deilurnar milli
Sovétrikjanna og Egyptalands
hörðnuðu enn i gær, þegar Egypt-
ar hættu afborgunum af lánum,
sem þeir höfðu fengið hiá Sovét-
mönnum, en sovétrikin eru
stærsti — og óþolinmóðasti —
lánadrottinn Egypta.
Tiu dögum eft’ir að Egyptaland
afnam vináttusáttmála sinn við
Sovétrikin, birti dagblað I Kairó
grein, þar sem haft er eftir laga-
sérfræðingi, að samkvæmt al-
þjóðalögum sé Egyptum heimilt
að stöðva greiðslur sinar á lánum
frá Sovét.
Skuldir landsins við Sovétrikin
eru álitin um 2025 milljónir
sterlingspunda og hafa Sovét-
menn neitað að samþykkja
greiðsluskilmála þá sem Egyptar
fóru fram á.
I fréttablaði i Kairó er birt
grein þar sem segir að vegna þess
að Sovétmenn hafi ekki staðið við
gerða samninga um sendingar á
varahlutum i tæki sem þeir höfðu
séð Egypt-um fyrir, eigi Egyptar
rétt á að hætta greiðslum á skuld-
unum að fullu og öllu, auk þess að
landið eigi rétt á skaðabótum.
Talið er vafasamt að Egyptar
geti stöðvað greiðslurnar, þvi það
myndi þýða stöðvun alls útflutn-
ings til Sovétrikjanna, sem eru
stærsti kaupandi að egypskum
vörum i heiminum.
Enda segir i umræddri blaða-
grein að greiðslum verði frestað,
þar til sovézk stjórnvöld sjái að
sér i málinu.
Grein þessi fylgdi i kjölfar ann-
arrar and-sovézkrar ræðu hjá
Sadat Egyptalandsforseta, en
hann sagði á miðvikudagskvöld
að Sovétrikin reyndu nú að kljúfa
Arabarikin og hefðu þau beitt
Egyptaland hemaðarlegum og
efnahagslegum þrýstingi.
Hlekktist á
í lendingu
SJ-Reykjavik. 1 gær varð
það óhapp á Keflavikurflug-
velli að ytri mótor DC8 þotu
Flugleiða, sem var að koma
frá Lúxemborg, snerti flug-
brautina. Misvindasamt var
og hálka og kann það að hafa
valdið. Litlar skemmdir
voru sjáanlegar á vélinni, en
þó mun hún eitthvað
skemmd.Vélinni verður flog-
ið út til Lúxemborgar og
skipt um mótor i henni þar.
123 farþegar voru með vél-
inni og sakaði engan.
r 1 Brezki fiskiðnaðurinn kvartar
Reutcr, London. —Associated Fisheries, eitt af stærstu fyrir- tækjum brezka fiskiðnaðar- ins, sendi i gær rikisstjórn Bretlands örvæntingarfull tilmæli um að rikisstjórnin stöðvaði „eyðileggingu fisk- iðnaðarins” i landinu. Talsmenn brezka fiskiðnaðarins hafa hvað eftir annað krafizt þess, að rikið beiti sér fyrir verndun iðnaðarins gegn erlendum keppinautum, þar á meðal aðildarlöndum Efnahags- bandalagsins. Einn af stjórnendum A.F., P.M. Tapscott, sagði i gær að fyrihtækið væri að komast á það stig að ómögulegt yrði að, rétta það við, vegna samdráttj ar á flota þess sem talinn hefði1 verið nauðsynlegur. Assoiated Fisheries er talið eiga stærstap fiota i eigu eins fyrirtækis innan Evrópu, en" erfiðleikar hafa undanfarið neytt það til að rifa nokkur skip, til að forðast gifurlegt rekstrartap.
Girða miðborg
Belfast af....
Reuter, Belfast. — Akveðið
engir bilar leyfðir á svæðinu og
strætisvagnar komast ekki inn
án þess í þeim verði leitað.
Vonast verzlanaeigendur til
þess, að ráðstafanir þessar auki
Sviar mótmæla
njósnum USA
sem þá var á diplomatalista
bandariska sendiráðsins i Svi-
þjóð, sem annar ritari.
Kvaðst Opot, hafa átt að
stunda n iósnir i Anoóla
SHORNA
Á IYIILLI
Komst skammt
með fenginn
hefur verið i Belfast, að reisa
um miöborg hennar girðinguúr
stálvir, til þess að koma i veg
fyrir að sprengjur geti borizt
þangað.
Frá og með næstkomandi
mánudegi verður miöborg Bel-
fastlokuð af með þriggja metra
hárri stálvirsgirðingu. Fót-
gangandi verða þá að fara inn i
miðborgina um eitthvert af
seytján öryggishliðum, sem á
girðingunni verða, en þeirra
verður gætt af þrjú hundruð
öryggisvörðum.
Þegar hafa fjórir borgarhlut-
ar verið einangraðir með
girðingum.
Nú verða þessir hlutar allir
innan sömu eirðinear. Verða
viðskipti á svæðinu.
Ráku sovézkt
njósnaskip burt
Reuter, Brest. — Haft er eftir
áreiðanlegum heimildum, að
herskip frá franska flotanum
hafiá miðvikudag neytt sovézkt
njósnaskip til að yfirgefa svæðið
umhverfis höfnina i Brest, en
þar eiga franskir kjarnorkukaf-
bátar bækistöð sina.
Yfirstjórn franska hersins
vildi ekki tjá sig um málið.
Var talið að skipið heföi átt að
fylgjast með ferðum frönsku
kjarnorkukafbátanna þriggja,
sem búnir eru eldflaugum.
, OLUVIWlUllIll. — ovipjuu
mótmælti opinberlega á
miðvikudag athöfnum eins af
starfsmönnum bandariska
sendiráðsins i Stokkhólmi, en
hann er talinn hafa starfað fyrir
bandarisku leyniþjónustuna
(CIA)
Starfsmaður þessi var
kallaður heim til Bandarikj-
anna fyrir nokkru, þegar sænsk
blöð birtu fregnir af þvi að hann
hefði ráðið menn til njósna fyrir
CIA.
Það var Arthur OPot, blaða-
maður frá Kenya, sem er laus-
ráðinn starfsmaður hjá sænska
útvarpinu, sem sagði frá þvi
fyrr i þessum mánuði, að hann
hefði verið ráðinn til að njósna
fyrir CIA, af Bruce Hutchins,
Franjieh
til Sviss
Reuter, Beirút. — Ctvarpsstöð i
Libanon, sem styður einn af
hópum andstæðinga Franjieh
forseta, skýrði frá þvi i gær að
einn af nánustu samstarfs-
mönnum forsetans, Lucien
Sahdah, væri farinn til Sviss og
búizt væri við að forsetinn færi
þangað á eftir honum.
Ekki hefur fengizt staðfesting
á þessu enn.
Reuter, Stokkhólmi. —
Lögreglan i Sviþjóð hefur hand-
tekið mann, sem grunaður er
um þátttöku i bankaráninu i
Stokkhólmi á miðvikudag, þar
sem 930.000 sænskum krónum
var rænt.
Segir lögreglan að i fórum
hans hafi fundizt um 400.000
sænskar krónur og standi nú
yfirheyrslur i málinu yfir.
Maðurinn, Clark Olofsson,
hefúr verið dæmdur þrisvar
sinnum áður fyrir bankarán og
tilraunir til bankaráns, siðast
árið 1974, fyrir þátttöku i ráns-
tilraun árið áður.