Tíminn - 30.03.1976, Side 3

Tíminn - 30.03.1976, Side 3
Þriðjudagur 30. inarz 1976. TÍMINN 3 Lesendur hringja Hvers vegna vildi Vísir ekki birta þetta bréf? BRÉFIÐ, sem hér fer á eftir, var sent Visi, en fékkst ekki birt þar. Visir hefir óskað eftir þvi, að lesendur legðu orð i belg i svo- nefndum lesendabréfum og skal nú litillega orðið við þeirri ósk. Tilefnið er skrif Vilmundar nokkurs Gylfasonar i þetta blað og er þess vænzt, að hin frjáls- lynda ritstjórn Visis ljái þessu bréfi rúm, þótt það sé örlitið ann- arrar ættar. Brétritari hefir samúð með öll- um þeim, sem flækzt hafa i þessi ógeðfelldu skrif og þá ekki sizt Vilmundi sjálfum og aðstandend- um hans. Visi óskar hann til hamingju með þann fjárhagslega ávinning, sem blaðið hefur haft af þessum æsingaskrifum, en harm- ar áð hið 60 ára gamla blað skuli leggja sig niður við slika fjáröfl- un. Það fyrsta sem lesendur Visis sáu um þetta mál, var þriggja dálka, tveggja linu fyrirsögn á forsiðu þess efnis að dómsmála- ráðherra hefði heft rannsókn á morðmáli. Jafnframt var visað til greinar Vilmundar Gylfasonar inni i blað- inu. Siðan hefur Visir reynt að firra sig allri ábyrgð á þessum ummælum á grundvelli þess, að aðeins hefði verið um tilvisun á grein Vilmundar að ræða. Við sem sjáum Visi daglega og erum áskrifendur, höfum aldrei áður séð slikar tilvisanir i blað- inu, nema eindálka á fremstu riðu. Forsiðufyrirsögn i blaði er aldrei tilvisun. heldur aðalfregn dagsins, af hálfu blaösins. Þetta vitum við lesendur af langri reynslu. Blaðið ber þvi að sjálf- sögðu fulla ábyrgö- á þessum ummælum, þótt þau séu eftir öðr- um höfð. Maf iunaf ngiftin. Margir hrukku við, er dóms- málaráðherra kallaði útgefendur Visis mafiumenn. Menn áttu von á þvi, að fremsti fræðimaður landsins i lögum, gætti tungu sinnar betur en svo, að kalla yfir sig meiðyrðamál. En mörgum mun lika hafa þótt ráðherranum vera nokkur vorkunn. Þetta blað (Visir) var fyrir nokkru búið að koma til skila að- dróttunum, um að hann væri sek- ur um stórglæp, sem sé að hindra rannsókn á meintu morðmáli. Það er ekki á hverjum degi, að dómsmálaráðherrar fá slikar „traktéringar”. Fleiri myndu hafa komizt i þungt skap,, er minnzt var á svo svivirðilegar getsakir. En hvað um Mafiunafngiftina. Þessi nafngift er orðin furðu al- geng i mæltu máli manna á meðal og jafnvel i blöðum. Þá er ekki átt við byssubófa eða hermdarverka- menn, heldur einstaklinga og hópa, er viðhafa vigaferli á fjár- málasviðinu með löglegum og ólöglegum aðferðum. Slikir /menn iðka það einkum, að sniða sér stærri sneið af þjóðarkökunni, en þeim ber. Tekjur þeirra eru i engu sam- ræmi við framlag þeirra til þjóð- félagsins. Skattar þeirra eru i engu samræmi við tekjur þeirra. Fjármálastarfsemi þeirra fer ekki fram fyrir opnum tjöldum nema að litlu leyti. Sem dæmi um áhrif þeirra má nefna að ráð- herra var flæmdur úr starfi er hann hugðist hafa afskipti af þeim og þennan ráðherra þekkja Visismenn mætavel. Almenningur tekur ekki mafiu- nafngift dómsmálaráðherra á Visismönnum eins alvarlega og þeir sjálfirm en nóg um það. Vilmundar þáttur Gylfasonar F'ull ástæða er að virða og meta viðleitni manna og blaða til að vekja athygli á og grafast fyrir um spillingu, bæði á opinberu kerfi og meðal einstaklinga. En þar er það að sjálfsögðu fyrsta og siðasta reglan að fara með rétt mál. Hafi það mistekizt fyrir einhverra hluta sakir, ber að viðurkenna það og leiðrétta, en lemja ekki hausnum við steininn, eins og Vilmundur gerir. Megin þunginn i' sókninni á hendur dómsmálaráðherranum er sá, að hann hafi sent bréf áleiðis, frá tveim mönnum, er töldu nærri sér höggvið af al- mannarómi og óskuðu eftir þvi að málinu yrði hraðað svo að hið sanna kæmi sem fyrst i ljós, og þeir yrðu hreinsaðir af öllum grun. Ráðuneytinu var að sjálfsögðu skylt að senda þetta bréf rétta boðleið til þeirra er önnuðust rannsókn málsins. En þeir skildu þetta svo ,,með réttu eða röngu” að þeir ættu að hætta rannsókn- inni!!!!!! Þetta heitir á máli V.G. að ráð- herra hafi stöðvað rannsóknina og gerzt sekur um að hylma yfir glæp! Það væri gaman að vita hvort greindarvisitala þessara manna er ekki ailhrapallega i öfugu hlut- falli við þá visitölu, sem við þekkjum bezt. Og sl. föstudag slær V.G. þvi föstu að dómsmála- ráðherra sé „barn eða banditt”! Sagt er að Vilmundur afi V.G. hafi orðið ókvæða viö er hann frétti að sveinninn ætti að bera nafn hans. Vilmundur var vitur maður. Ráðherra tekur piltinn greini- lega ekki alvarlega, veit sem er, að hann er enn ekki vaxinn upp úr stuttbuxunum. Vilmundur fær þvi óáreittur að vaða um eins og naut i flagi. Og hvert er svo flagið? — sieppum þvi! Klúbburinn og pólitikin Þegar að Klúbbmálinu kemur leynir sér ekki tilgangurinn. Það á að koma höggi á ráðherrann. Nýtt Kleppsmál. Nýtt Kollumál. Ráðherra er talinn hafa torveldað rannsókn á misferli i fjármála- legum rekstri Klúbbsins. Bók- haldsóreiða, skattaundanskoti o.fl. Ástæðan: fjármálaleg tengsl Klúbbsins og Framsóknarflokks- ins. Og nú tekur Visir sjálfur við máiinu, með hjálp Alþ. blaðsins. Það þarf sömu greindarvisitölu og áður var nefnd til að trúa þvi, að rannsóknarlögreglan i Reykjavik hafi ekki þegar i stað lagt hald á og tekið i sina vörzlu öll plögg er fyrirfundust i Klúbbn- um viðvikjandi þvi máli og fávis- ir lesendur spyrja snillingana. Ætlaði rannsóknarlögreglan að vinna að rannsókninni i veitinga- sölum hússins? Áframhaldandi lokun hússins varð ekki skýrð með öðru. Veit- ingaleyfissvipting var svo allt annað mál, sem þurfti að fram- kvæma á öðrum forsendum. Rannsóknin gekk sinn eðlilega gang og opnun hússins hafði engin áhrif á hana. Að eigandi Klúbbsins kaus heldur að fá fé að láni, en eiga i margra ára málaþrasi um vonarpening, hefir hann sjálfur gefið skýringu á i Visi og ættu Visisbændur vel að skilja það, svo slyngir fjáraflamenn, sem þeir eru. Um fjármálatengsl stjórn- málaflokkanna við fjáraflamenn ætti Visir, annað aðaimálgagn Sjálfstæðisflokksins, sem minnst að tala. Sagt er að siðustu kosningar hafi kostað Sjálfstæðisflokkinn 40 milljónir. Hvort sem það er rétt eða ekki, vita þó allir að flokkur- inn hefir miklu meira fjármagn til umráða i hverjum kosn- ingum, en allir hinir flokkarn- ir til. spmans , pg ,þoð fjá agn aettur eKKi ai nimnum ofan. Enda blasa við iðjagræn- ir vellir flokksins i þeirri veru, á meðan hinir flokkarn- ir reyta sinumýrar. Að visu var beitiland Alþýðuflokksins ail- gott hér áður fyrr, en nú er af sú íið. Hins vegar biður stóðið nú eftir nýju viðreisnarengi. Harma verður að þessi ieiðinda skrif valda þjóðinni erfiðleikum i baráttunni við Breta. en það hefir sjálfsagt ekki verið ætlunin. En meðal annarra orða: Ætlar Visir ekki i mál við Dagbiaðið. af- kvæmi sitt. vegna leiðara. þar sem eigendur og stjórnendur Visis eru hvað eftir annað kallað- ir „Visismafia”? 7003-4042 Þorsteinn Pálsson vildi af einhverjum ástæðum ekki birta bréfið hér að ofan. e.t.v. af tillitssemi við Vilmund Gylfason. HRINGIÐ í SIMA 18300 MILLI KLUKKAN 11-12 Eigum við að draga úr viðskiptum við Breta? Hjördis Bergsdóttir myndlistarnemi: — Já, já, endilega. Við eigum að gripa til einhverra aðgerða gegn þeim, vera hörð og ekki gefast upp. Konur hér ættu að gera það sama og brezkar húsmæður hafa gert gagnvart öðrum — neita að kaupa vörur frá Bretlandi. Eirikur Hermannsson kennaraháskólanemi: — Alveg hiklaust Þeir hafa komið svinslega fram við okkur. Við eigum helzt ekki að tala við þessa menn. Ilrefna Guðnadótlir húsmóðir: v l>aðer nu það. Mér finnst alveg sjálfsagt að mótma’la fram- komu Bretanna. en ég veit ekki hvort við græðum nokkuð a að hætta að kaupa brezkar vörur. Aluia Guðmundsdóttir saumakona: — Já. það eigum við sannarlega að gera eftir framkomu þeirra i þorskastriöinu. Mogens Andersen. fýrrverandi rakari: — Mér finnst þaö alveg sjálfsagt.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.