Tíminn - 16.05.1976, Blaðsíða 9

Tíminn - 16.05.1976, Blaðsíða 9
Sunnudagur 16. mai 1976. llöfnin er sérstakur heimur. Þar liggja skipin vifi festar. komin frá ilamborg og Amsterdam, Lysekil og Gravarna. Þar morra litlir bátar með hjólbarða á borðstokkunum. svo að þeir skemmist siður, þegar þeir nuddast við bryggjurnar, og það slær alls konar litbrigðum á sjóinn, sem gjálfrar við gamla og marða og orm- smogna bryggjubjálka. Gamlir inenn koma niður á bryggjurnar til þess að anda að sér sjávarlofti. finna þef af þara og tjöru, og minnast liðinna daga. þegar þeir sátu ekki i landi, heldur flutu á þeim fjölum.sem þá voru sendarútá hafið, og sprettharðir krakkar. sem hafa komið sér' upp færi, koma til þess að fiska, þó að ekki sé nema marhnút. Seinna — seinna fara þeir kannski á sjóinn til þess að veiða þorsk og sild, ef eitthvað verður eftir af þvi kyni, sent hefur ugga og sporð. I dráttarbrautunum standa skip og bátar hlið við hlið — flevtur, sem þarf að dytta að. Það er likt og þegar inannfóikið er sett isjúkrahús, ef það er, krankt, og iæknarnir þurfa að færa einhverja misbresti I manns- skrokknum til betri vegar. Og liöggin dynja, logskurðartækin hvæsa og neistar hrjóta i allar áttir — hvit- klæddum hjúkrunarkonum er ofauk- ið i þess konar lækningastöð. Fjaran liefur lika aðdráttarafl á vorin. Hún er að visu ekki sem þrifa- legust alls staðar — alls konar rusl og rekald skorðað millisteina — tákn aldarinnar, plastið, sést viða, og fjörugrjótið cr sums staðar löðrandi i oliu. Plast og olia, það er fylgifiskur hinnar svonefndu ntenningar, hvort tveggja gott og gilt á sinum stað, en hvimleitt þess utan. En þrátt fyrir plast og oliu fara feður með börnm sin niður I flæöar- inálið. þegar tómstund gefst, þvi að þar er margt skritið að sjá, ef hvort tveggja er opið, augu og hugur, og forvitnin, undirrót allrar vizkuleitar, ósljóvguð. Sums staðar liggja renni- brautir út i sjóinn. Þar renna grá- sleppukarlarnir bátum sinum á flot. og þar draga þeir þá á land, þegar þeir hafa vitjað um, og þangaö koina húsmæðurnar eða sendimenn þeirra til þess að kaupa sér rauömaga i soð- ið. Handvagninn, sem aflinn er lát- inn i, stendur ofan við flæðarmálið. ogúrhonum eru hrognkelsin seld, og i lionum er þeim ekið i skúrana viö sjóinn, ef einnig verður afgangs, þegar viðskiptunum I flæðarmálinu er lokiö. Cti fyrir sést til trillubáta, sem - vmist eru að leggja frá landi eða koma að — einn maður eða tveir i hverjum báti — menn, sem láta sér nægja litlar fleytur á þessari öld skuttogara og þorskastriðs Þannig er lifið Við sjóinn — alltaf eittbvað að gerast. alltaf eilthvað að sjá, livort sem sá er ungur éða gam- all, er rcikar niður á bryggjur eða leitar sér afþreylngar i fiæðarmál- inu. fjær þvi umstangi, er tengist höfnum. Það hafa menn alltaf gert, og það munu þeir halda áfrain að gera. Það er ein aðferðin til þess að nálgast lif- ið og náttúruna I sivaxandi borg, þar sem einmanakennd og leiði sækir að ntörgum á inalbikuöum slrætum milli hálivsa. ’

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.