Tíminn - 16.05.1976, Blaðsíða 37

Tíminn - 16.05.1976, Blaðsíða 37
Sunnudagur 16. maí 1976. TÍMINN 37 Búnaðar- tíðindi Jönsberg elsti og stærsti bændaskóli Norðmanna G.K. — Það var hásumar 1974. Fjölmenn bændaför til Noregs og Danmerkur var farin. Þátt- takendur voru bændur og hús- freyjur. Lent var á Gardemoen- flugvelli, þvi að ferðast var með leiguvél, en áætlunarflugið not- ar jafnan Fornebu-flugvöll. Gardemoen er alllangt norðan við Osló og auðvitað var þangað stefnt fyrst, en siðan upp á Heið- mörk til þess að skoða búskap bænda og félagsstarfsemi þeirra þar og i Guðbrandsdal. Bændur af Heiðmörk mættu okkur Islendingum á Hamri og skiptu hópnum til heimsókna á hinum ýmsu býlum nágrennis- ins, til mikillar ánægju og fróð- leiks fyrir ferðafólkið. Móttök- urnar voru sérlegar að allra rómi og dómi, og dásamlegt veður jók á fegurð umhverfis- ins. Um kvöldið var hópnum skipt til gistingar á nokkra staði á Hamri og nágrenni, þar á meðal að Jönsberg bændaskóla. Þar var skóla þá slitið, svo að rúm veittist til gistingar, en að- eins dvöldu þar þá nemendur i verklegum greinum. Rektor skólans var ekki heima, en staðgengill hans gerði gestum grein fyrir meginþátt- um i undirstöðuatriðum og starfsemi skólans. Elsti bændaskólinn Bændaskólinn á Jönsberg er ekki bara elzti skóli landsins af þvi tagi, heldur og sá fjölmenn- asti þeirra 36, sem starfandi eru i Noregi. Þess má minnast um leið að þar i landi eru nú taldir um 125 þúsund starf- andi bændur, eða 25 sinnum fleiri en hjá okkur. Skólinn hefur nú árlega um 180 nemend- ur og þar starfa 22 fastir og lausir kennarar. Þar er hægt að velja um nám af mismunandi lengd. t fyrsta lagi býður skól- inn 18 mánaða nám sem grund- vallarnám fyrir ungiinga 16—18 ára, án verklegra greina, en það er einkum sniðið með tilliti til þeirra, sem vilja stunda hið eiginlega búfræðinám og út- skrifast svo sem búfræðingar. Svo er hægt að velja þar nám, sem varir 24 mánuði, en það er sniðið sem almenn fræðsla að nokkru að loknu 9 ára námi i grunnskóla. Að þvi búnu getur leiðin legið yfir i menntaskóla og þaðan i búnaðarháskóla, eða bara beint á búfræðingsleiðina. Búfræðingur á okkar máli hefur álika menntun og sá, sem i Nor- egi fær titilinn „agronom”, en sá, sem á islenzku er nefndur búfræðikandidat er „sivilagro- nom” á norsku. Þá má og nefna enn aðra námsleið við skólann, en þar er um að ræða 18 mánaða nám- skeið eftir 17 ára aldur. Nem- endur skulu hafa verið að minnsta kosti um eins árs skeið við bústörf áöur en námið er hafið. Hér um ræðir þá tvo vetur en sumarið milli þeirra verða nemendur að stunda verkleg störf á búi skólans eða öðru viðurkenndu utan hans. A þvi skeiði eru skipulagðar sérlegar lOvikna æfingar undir leiðsögn. Ennfremur er hægt að velja sérleg 12 mánaða námskeið við skólann, er miða til ákveðins framhaldsnáms, m.a. sem undirbúning fyrir stúdentspróf og siðar upptöku á búnaðarhá- skólann á Ási. Enn má geta þess, að frá og með 1977 er ráðgert, að á Jöns- berg verði starfrækt nám fyrir bútæknifræðinga, sem gert er ráð fyrir að vari 24 mánuði, en nánar tiltekin inntökuskiiyrði þarf að uppfylla. Bú skólans Við skólann og i tengslum hans er rekinn umfangsmikill búskapur. Akurlendi er þar til nytja um 100 ha og skógur skól- ans ekki minni en á 1000 ha landsvæði. Landið er gjörnýtt til sáð- skipta, og þar er garðyrkja stunduð og einnig gróðurhúsa- rækt. Veðurfar á Heiðmörk er til ræktunar með þvi allra bezta, sem um getur i landinu. Við skólann eru bæði nýjar og gamlar byggingar, en allt i á- gætu standi og sérstaklega hin nýju peningshús. Ahöfn i fjósi er um 50 mjólkandi kýr og svo ung- viði. Meðalársnyt kúnna er um 7.000 kg með um 4% fitu. Þar er svinarækt, bæði til kynbóta ræktað og til framleiöslu venju- legra slátursvina. Hænsnabú er þar, miðað við eggjaframleiöslu i búrum. Og svo þarf ekki um að spyrja, að á búi eru aö sjálf- söeðu allar nvtizku vélar til hvers kyns starfa, bæði við akuryrkju og skógarnytjar og yfirleitt til allra bústarfa. Arlega útskrifast um 2400 nemendur frá bændaskólum Noregs um þessar mundir, en aðsókn að skólunum er langtum meiri en þeir geta sinnt. Um það bil 4.000 nýir bændur hefja bú- skap árlega svo að af þvi má ráða að búskaparskeið Dónda er um 30 ár. Lánastofnanir bænda þar eru Búnaðarbankinn, rikis- stofnun eins og okkar og svo staðbundnir bankar eða spari- sjóðir. Júgurbólga Hefur nokkur prófað hvort róð þau duga gegn júgurbólgu, sem fró er greint í eftirfarandi? G.K. — Konan heitir Synneve J. Roen.sem segir frá þvi i norska Bændablaðinu nýlega, hvernig hún fer að þvi að hindra júgur- bólgu i gripum sinum. Frásögn hennar er á þessa leið: , t nokkur ár hef ég reynt að grennslast um hvers vegna ær og kýr fá júgurbólgu og er kom- in að þeirri niðurstöðu, að hún stafi aðallega af köldum súg, köldu fóðri og köldu drykkjar- vatni. Þegar ánum og kúnum er brynnt með ylvolgu vatni, fyrst eftir burð, er júgurbólga sjald- gæf. Reynsla min er sú, að á einni viku befur kýr með stokkbólgið júgur og allt að 42,5 stiga hita, læknast með þvi að þvo júgrið með volgu vatni og smyrja það siðan með kamfóruoliu og vase- lini og mjalta 6—8 sinnum á dag, svo sem tvo daga, og gefa sjúk- lingnum volgt drykkjarvatn og rikulegt magn af steinefnum og vitaminum. Prófpappirinn sýn- ir, að baketriur i bólgna júgrinu hverfa á fáum dögum. Við höfðum nokkrar kýr með júgurbólgu, en með þvi að brynna þeim daglega vetrar- langt með 50—60 litrum af volgu vatni, skipt i bæði mál, bar aldrei á slimi eða veilum i júgr- um þeirra allan veturinn. Þegar ég var barn var kúnum alltaf brynnt með volgu vatni og þá var aldrei minnzt á júgurbólgu. Ég held að bezta aðferðin til að nálgast volgt vatn handa kúnum hversdagslega sé að tengja 60—100 litra ryðfrian stáldunk inn i vatnsleiðsluna, en hann ber að einangra frá pipun- um með plaströrabútum til þess að hindra raflost. Dunkinn skal útbúa með hitastilli, sem ákveð- ur hitastigiö við 20—30 gráður og þá fá skepnurnar alltaf volgt vatn og þurfa aldrei að keppasi um að ná i volgt vatn i skálun- um, það er þar stöðugt, og 5að er ánægjulegt að horfa á þær drekka og drekka án þess að volga vatnið þrjóti. Hver vill prófa hvort nokkuð er til i þvi, að ráö konunnar dugi sem vörn við júgurbólgu, einnig hér á landi?? Samvinnuferðir TÍL SÓLARLANDA Costa del Sol mai júnl júli ágúst sept. okt. Meðalhiti sjávar: 17.4 20.7 20.9 24.2 21.2 18.3 Meðalhiti lotts: 19.0 22.3 26.5 27.6 24.4 20.9 Algarve Meðalhiti sjávar: mai júni júli ágúst sept. okt. 22.0 23.0 25.1 26.5 26.5 23.0 Meðalhiti lofts: 22.5 25.0 28.0 28.5 26.5 23.5 Samvinnuferðir bjóða viðskiptavinum sín- um aðeins nýtísku og fyrsta flokks hótel, íbúðir og smáhýsi á bestu stöðum á Costa del Sol, sem þúsundir íslenskra ferðamanna hafa gist á undanförnum ár- um og á Algarve, sem fáir íslenskir ferða- menn þekkja ennþá en er þó einn af feg- urstu og unaðslegustu ferðamannastöð- um álfunnar. Komið — hringið — skrifið og við veit- um allar nánari upplýsingar fljótt og ör- ugglega. > J .'ÍðSSsfc-t. ' ' ; * ..... COSTA DEL SOL ALGARVE 27.júni 3 vikur 18.JÚIÍ 3 vikur 9. ágúst 3 vikur 30. ágúst 3 vikur 20. sept. 3 vikur 2. ágúst 2 vikur 16. ágúst 2 vikur 30. ágúst 2 vikur 13. sept. 2 vikur 27. sept. 2 vikur Samvinnuferðir Sambandshúsinu simi 27077

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.