Tíminn - 16.05.1976, Blaðsíða 15

Tíminn - 16.05.1976, Blaðsíða 15
Sunnudagur 16. mai 1976. TÍMINN 15 Steinþór Steingrimsson sýnir á Hamragörðum Steinþór Steingr im sson heldur málverkasýningu i Hamragörðum dagana 8.—16. maf, en þar sýnir hann 32 myndir, flestar málaðar á siöustu mánuðum. Steinþór Steingrimsson er 45 ára að aldri og hefur fengizt við myndlist lengi, en einkum er hann þó kunnur sem jass-pian- isti, en hann lék um árabii með ýmsum þekktum danshljóm- sveitum hér i borg, svo að segja strax frá unglingsárum. Alveg af sérstökum ástæðum getur undirritaður greint frá þvi, að Steinþór hefur lengi fengizt við málverkið, þvi þegar við vorum strákar, var hann einn af fáum, sem áttu oliuliti, og ég held að það hafi verið árið 1943 eða ’44 um jólin, sem við fengum að sjá nokkur verk, sem hann hafði málað. Já, það vakti dálitla athygli þá að eiga olfuliti og striga og geta búið til sin eigin málverk, meðan aðrir urðu að láta sér nægja blýanta eða glerharða vatnsliti og Pelikan oh'ukrit og mér er það minnisstætt, að mér þóttu þessimálverk góð, og þau ilmuðu svo þekkilega af fernis og terpentinu. Eftir þvi sem árin hafa liðið, hefur Steinþór orðið hændari að málverkinu, og hefur hann sýnt myndir sinar nokkrum sinnum við ágætar undirtektir. Myndefni Steinþórs Stein- grimssonar eru bátar, landslag og abstraktionir. Abstrakt- myndirnar minna of mikið á aðra málara, t.d. Kristján Daviðsson, en til þess er engin ástæða. Persónulegri eru myndir eins og 3000 fet yfir Arnarvatnsheiði, mynd frá Rhodos og tvær landslags- myndir nr. 25 og no 27, svo eitt- hvað sé nefnt. Frá litum hans starfar hlýju og mildri gleði. Myndbyggingin er stundum laus í reipunum og virðist til- finning og innhfun rikari til- hneiging en markviss sköpun forma. Sýning Steinþórs er opin dag- lega kl. 14.00—22.00, og eru menn hvattir-til þess að skoða þessa indælu sýningu. Siri Derkert i Norræna húsinu Norræna húsið er með sýningu á verkum sænsku lista- konunnar Siri Derkert (1888—1973) og stendur sýningin yfir til 23. mai næstkomandi. Þetta er farandsýning, sem einkum mun hafa verið ætluð mikil ferðalög um Sviþjóð, en mun nú fara milli helztu borga Norðurlanda að þvi er segir i bréfi frá Norræna húsinu. Það voru þeir Ragnar von Holten, listfræðingur og sonur listakon- unnar, Carlo Derkert, list- fræðingur, sem settu saman sýninguna og hafa af henni veg og vanda hvað það snertir. Siri Derkert fæddist i Stokk- hólmi árið 1888 og stundaði nám i Listaháskólanum 1911—13, settist að i Paris 1913 og ferð- aðisttil Alsir vorið 1914.1 Paris varð hún sambýliskona finnska málarans Valle Rosenbergs. Þau aðhylltust bæði kúbismann. Veturinn 1915 fóru þau til Italiu og settustað á Sikiley. Þar vann hún meðal annars að sjálfs- 1.11 i IjC illlllll Tvær sýningar mynd i kúbiskum stil. Sumarið 1915 fæddist þeim sonurinn Carlo, Siri flýði striðið og fór heim til Sviþjóðar 1916, en Valle og Carlo urðu eftir á ítaliu. Hann lézt i fæðingarbæ sinum Borga 1919. Siri kynntist lista- manninum Bertil Lybeck 1917 og eignaðist með honum tvær dætur, Liv (1918) og Söru (1920). Þau gengu i hjónaband 1921 og settust að i Paris. Arið 1921 sýndi Siri kúbistisk verk á kvennasýningu i Liljevalchs-- safninu i Stokkhólmi. Siðar eyðilagði hún flest verk frá árunum 1910—1920.” „Árið 1944 var i fyrsta sinn haldin stór sýning á verkum Siri i Stenmans-sýningarsalnum i Stokkhólmi, og hlaut hún þá loksins viðurkenningu sem listakona. Fjölskyldumyndir hennar, oftast magnaðar en angurværar jafnframt, svo og hinar seiðandi dulúðgu skógar- myndir frá Grangarde vöktu athygli.” Á þessa leið var sagt frá lifs- hlaupi hennar m.a. i sýningar- skrá og ennfremur þetta: „Siri var alla ævina að leita að nýjum tjáningarleiðum. Siðustu 20 árin málaði hún nær aldrei oliumálverk, heldur reyndi nýjar aðferðir. Hún gerði til dæmis andlitsmyndir úr málmræmum, og lærði sand- blástur til þess að geta rist rákir i steypu. Síðustu æviár naut hún mikillar hylli. Efnt var til yfirlitssýningar á verkum hennar á Moderna Museet i Stokkhólmi 1960, i Stedelijk-safninu i Amsterdam 1962, hún var fulltrúi Svia á Feney ja-biennalnum 1962. Haldin var stór yfirlitssýning á verkum hennar i Lundi 1969 og Galieri F15 i' Moss sama ár. Þá hélt hún sýningu i Kosntnars- huset í Stokkhólmi 1972. Siri Derkert lézt á Lidingö 28. april 1973, 85 ára gömul.” Ég varð fyrir hálfgerðum vonbrigðum að koma á sýning- una iNorræna húsinu. Mér hafði verið sagt frá sýningunni, sem „einstökum” viðburðiog hef þvi ef til vill búizt við of miklu, en hvað um það, þettaerumestan partskissur, fljótfærnisriss, full af hálfgerðum vandræðagangi að manni virðist. Merkastar þóttu mér myndir fráfyrstu áratugum aldarinnar, þunglyndislegar, regngráar myndir, sýndar undir for- skriftinni Palermo, Napoli, Kaupmannahöfn. Þá eru einnig ágæt eintök af vinnu listakon- unnar frá 1920—1930, en þá eru myndir hennar hreinar, upp- hafnar og fullar af unaði. Börn við borð er einnig ágæt mynd, þótt dapurleg sé, en teikningin minnir mjög_ á þýzku lista- konuna Kathe Kollwitz (1967—1945), hvort sem það hefur nú verið stefna, eða til- viljun. Þegar kemur fram á fjórða áratuginn fer ég að skilja minna, nema skúlptúrarnir eru margir hverjir skemmtilegir. Hinn flausturslegi myndstill, næstum án allrar kröfu fellur ekki i minn smekk og hef ég grun um að persóna lista- konunnar hafi yfirskyggt þessar myndir og maður verði að vera henni mjög kunnugur til þess að meðtaka listina. Islendingar nálgast Kjarval sósaðir af persónutöfrum hans, næstum i álögum: útlendingar yppta öxlum yfir sumu, sem okkur finnst svo heillandi við Kjarval. Það er auðséð að mynd framan á bæklingi um lista- konuna, að þar fer enginn meðalmaður. Myndefni hennar á opinberum myndum segir okkur frá hugsjónum og baráttumálum : Tólf hellur um stöðu og hugsjónabaráttu kon- unnar. Teikningar sem leiða hugann að frelsisbaráttu konunnar, - Hvað syngja fuglarnir? Barátta fyrir friði. Hreint loft, — hreint vatn og margt fleira. Einhvern veginn finnnst manni að Siri Derkert hafi ekki komið hingað með þessum myndum. Hún sé einhvers staðar annars staðar, hjá lifs- verki sinu i'opinberum húsum, á söfnum og i hjörtum þeirra sem þekktu hana bezt. Jónas Guðmundsson Námskeið um heyrnarhjálp Um næstu mánaðamót, eða nánar tiltekið dagana 31. maí til 2. júni verður haldið námskeið fyrir þá, sem taka vilja að sér að að- stoða heyrnardauft fólk, einkum að þvi er tekur til notkunar heyrnartækja. Að þessu nám- skeiði standa félagið Heyrnar- hjálp, heyrnardeild Heilsuvernd- arstöðvar Reykjavikur og Háls- nef og eyrnadeild Borgarspital- ans i Reykjavik. Félagið Heyrnarhjálp og heyrnardeild Heilsuverndar- Bílar ákveðið svar um það, hvor leiðin verði farin, þvi allt langtima- skipulag er óhugsandi meðan ekki hefur verið ákveðið, hvort núgildandi númerakerfi veröur I gildi áfram eða nýtt tekið upp I þess stað. Mér er engin launung á þvi, að nýja númerakerfið sem lagt var fyrir Alþingi, gefúr mun meira svigrúm til hagræðingar en það kerfi sem nú er i' gildi, auk þess sem mikill sparnaður yrði þvi samfara að taka það upp. En það er engu likara en að sumir al- þingismanna vilji ekki spara á sumum sviðum, sagði Guðni Karlsson að lokum. Auglýsið í Tímanum stöðvarinnar hafa um mörg ár annazt úthlutun og kennslu i með- ferð heyrnartækja, en sárlega hefur vantað fólk, sem leiðbeint gæti heyrnartækjanotendum og veitt þeim nauðsynlegustu þjón- ustu. Slik þjónusta hefur svo að segja eingöngu verið veitt i Reykjavik og á Akureyri og svo á árlegum ferðum Félagsins Heyrnarhjálpar. Það er álit þeirra, er að þessu námskeiði standa, að viðunandi not af heyrnartækjum sé þvi að- eins hugsanleg, að leiðbeinenda- starf þar að lútandi verði stór- aukið. A námskeiði þessu er einn- ig ætlunin að veita fræðslu og æf- ingu i könnunarmælingum á heyrn, einkum i sambandi við heyrnarmælingum i skólum. Vandamál heyrnardaufra liggja ekki alltaf i augum uppi, en eru engu að siður tið og oft alvar- leg. Það er von þeirra, sem að þessu námskeiði standa, að það verði sótt af fólki úr öllum lands- hlutum og verði visir að þvi að koma þessum málum i sæmilegt horf. 250 þús. kr. verðlaun Dagana 8.-13. júni n.k. verður efnt til skákmóts hér á landi á vegum bandari'ska tóbaksfyrir- tækisins R.J. Reynolds Tobacco Company, og er heitið háum verðlaunum eða samt. 250 þús. krónur. Verður mótið haldið á Loftleiðahótelinu. Hér á eftir fer fréttatilkynning um mötið: „Þaö er kunnara en frá þurfi að segja, að framleiðendur tóbaks- vöru eru viðast hvar i veröldinni meðal stórstígustu auglýsenda. Hér á Islandi eru beinar tóbaks- auglýsingar i fjölmiðlum ekki leyfilegar, og þvi öll kynningar- starfsemi bundin við óbeinar aug- lýsingaleiöir. Það hefur þvi orðið að ráði, að leitast við að finna ýmsar leiðir til þess að nýta sem bezt i allra þágu þaö auglýsingafé, sem framleið- endureru tilbúnir að láta af hendi til þess að halda á lofti nafni vöru sinnar. Að þessu sinni hafa R.J. REYNOLDS TOBACCO COMP- ANY, framleiðendur WINSTON, CAMEL, VANTAGE, SALEM, MORE, og Í>RINCE ALBERT, ákveðið að verja nokkru fé til . þess að styrkja skáklif á Islandi, með þvi að standa fyrir almennu skákmóti, sem haldið verður að Hótel Loftleiðum dagana 8. og 13. júnf og hjöða verðlaun að verð- mæti kr. 250.000,-. Gert er ráö fyrir að þátttaka takmarkist af húsrými við 150-160. Keppt verður i 10 styrk- leikaflokkum, þannig að sem flestir keppenda geti fengið tæki- færi til þess að keppa við okkar færustu skákmenn. Á mótinu verður keppt eftir svissnesku kerfi og eru móts- og keppnisreglur frábrugnar því, sem áður hefur þekkst, t.d. hafa ekki veriö veitt verðlaun I styrk- leikaflokkum áður, þegar keppt hefur verið eftir svissnesku kerfi. Fjórir skákstjórar verða starfandi á mótinu, þeir Jóhann Þórir Jónsson, Jón Pálsson, Þórður Gislason og Þorsteinn Guðlaugsson. Fyrirtækið REKSTRARRÁÐ- GJÖF s.f. I Reykjavik hefur séö um undirbúning mótsins, og mun sjá um alla framkvæmd þess frá upphafi til enda. Að þessu fyrir- tæki standa Ásmundur Asmunds- son, rekstrarverkfræðingur, Ingvar Ásmundsson, stærðfræð- ingur og skákkappi og Þórður Gislason, hagræöingar- ráðunautur.” Frá og með 1. júni n.k. mun reglugerð um hundahald í Hveragerði koma til framkvæmda og lausir hundar á almannafæri fjarlægðir án frekari viðvör- unar. Heilbrigðisnefnd Hveragerðis

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.