Tíminn - 16.05.1976, Blaðsíða 29

Tíminn - 16.05.1976, Blaðsíða 29
Sunnudagur 16. mal 1976. TÍMINN 29 Spánverjar rækta meira en tvö hundruð þúsund tonn af kræklingi árlega, á einfaldan og þægilegan hátt. Kræklingur og aða gætu átt mikinn þátt í að leysa fæðuvandamál veraldarinnar Þannig llta kræklingsstólparnir I Frakklandi út. næringarrikt og viö ísland. Hvert reipi gefur af sér 250 pund af fiski — (kræklingi þegar búiö er aö taka hann úr skelinni). A 700reipa fleka vaxa árlega um 90 tonn af kræklingi i skel (um 45.000 kiló af fiskmetinu sjálfu). Á hverri ekru sjávar, er hægt aö hafa 2-5 fleka, og ein ekra gefur þvi af sér 125.000 klló af kræklingi á ári! Spænsku fjölskyldurnar sem fá réttindi hjá stjórninni, geta lifaö góöu llfi af þvl aö hafa 2-4 fleka á sinum vegum. Þarna eru llka fyrirtæki, er reka 20-30 fleka og hafa starfsmenn I sinni þjónustu. Þaö er ekkert undar- legt viö þaö aö kræklinga- ræktarfólk leigi réttindin af rík- inp, þvl aö I eöli slnu er mögu- leíkinn til skelfiskræktar þjóöareign. Ef viö nú hugum aö nýtingu kræklingsins kemur I ljós, aö 45 prósent fara til lagmetis- iönaöarins, 5 prósent eru fryst, en afgangurinn er seldur nýr. Um 25 prósent eru seld til ítallu ogFrakklands, þar sem manns- öldrum saman hefur verið geysistór markaður fyrir þetta góðgæti, svo og annan skelfisk, sem liggur óhagnýttur við Islandsstrendur. Allir aöilar eru sammála um aö framleiösla þessi sé mjög aröbær og stöðug tekjulind. Og þvi ekki úr vegi fyrir Islendinga aö gefa gaum að þessum möguleika. Frystur islenzkur kræklingur ætti að geta keppt i Frakklandi við þann nýja, og orðið lyftistöng hinum upprennandi lagmetis- iðnaði okkar. Frakkar fóru manna fyrstir að rækta krækling. A miðri 13. öld settist irskur skipbrotsmað- ur. Walton aö nafni, þar að og hugðist hafa ofan af fyrir sér með sjófuglaveiðum. Hann rak stólpa niður i sjóinn i Aiguillon-flóa með snöru ofan á.Ekkileiðá lönguþar til hann veitti þvi athygli, að stólparnir þöktust brátt af krækling, sem óx mjög fljótt og var óvenju bragðgóður. Hann gerðist þvi’ kræklingsbóndi. Nú eru tvær og hálf milljón staura undir kræklingaræktun i Frönsk kræklingsrækt. flóanum, þar sem Walton, hinn irski datt fyrst ofan á kræklingsræktarmöguleikann. Þar eru hvorki meira né minna en 50.000 raðir, sem hver samanstendur af 50 staurum. Sumir kræklingsbændur hafa 70.000 staura I notkun, og fá um 5 tonn af kræklingi á ekru hafs. En réttindin leigja þeir af rlkis- stjórninni, eins og vera ber. Frakkar rækta llka krækling i Miðjarðarhafi, á reipum vegna strauma. Sú ræktun er ekki eins hávisindaleg og sú spænska. Þótt Frakkar rækti um 50.000 tonn af kræklingi árlega, hrekk- ur það hvergi nærri til að full- nægja eftirspurninni svo þeir verða að flytja inn áh'ka magn frá útlöndum, aðallega frá Spáni og Hollandi. En sú góða þjóð hefur lengi stundað kræklingsrækt á sikja- og árósa- botni. Ræktun þeirra mun nema um 100 þús. tn. á ári og gefur mikið i aðra hönd, engu siður en túlipanarækt. Af öðrum eftirsóttum og mik- ið seldum skeljum sem ræktað- ar eru i Frakklandi, má flefna hjartaskel, sem mikið er af við Breiðafjörð. Alls eru um 250 ræktunarstaðir í Normandy og Bretagne og mun framleiðslan nema 50.000 tonnum. Heildar- framleiðsla þeirra á skelfiskí, ostrum, krækhngi, hjartaskel, o.fl. nemur um 150.000 tonnum, og samt er innflutningurinn 50.000 tonn og fer ört vaxandi. Mjög margar tegundir af skel- fiski við tsland myndu seljast I Frakklandi og Belgíu, og viðar i Evrópu. Mér finnst mjög trúlegt að hin miklu sendnu flæðilönd við suðurströnd landsins, væru vel fallin til ræktunar á skelfisk- tegundum sem lifa i sandi og aur.ogsogatil sín næringunaúr sjónum fyrir ofan. Rauða-Kina hefur staðið sig með ágætum við að brauðfæða sina miklu fólksmergð. Hvað það snertir að þeir fullnægðu eggjahvituþörf sinni með fiski úr sjó, þyrfti ekkert smávegis magn til þess að þeir hefðu eins mikinn fisk á mann og t.d. Japanir. Stórfelld ræktun á kræklingi á öðuskel gæti flýtt fyrir þvi að leysa það vandamál. í Asiu eru tvær tegundir kræklings, önnur græn, en hin brúnleit. Að öllum likindum mætti rækta öðu og dökku tegundina við strendur þeirra. Aða virðist þrifast jafnvel i hlýjum sem köldum sjó. HRINGIÐ í SÍMA 18300 MILLI KLUKKAN 11 — 12 . .. TÍMA- spurningin Ertu með eða móti z i ísienzkri stafsetningu? Benedikt Heiðar Hreinsson gagnfræðaskóianemi: — Ég er á móti henni. Mér finnst hún leiöinleg. Viö byrjuöum aö læra hana I barnaskóla, en nú er ég búinn að gleyma henni. Sólveig ólafsdóttir skrifstofumaöur: — Ég er með z. Mér finnst fallegra og rökréttara að rita hana. £g lærði z i skóla og hef aldrei hætt að skrifa hana. Jónatan Þórmundsson proicssor: — Ég er eindregið með henni og skrifa z. Sigurgeir Jónsson, fulltrúi hjú tollstjóra: — Eg vil endilega hafa hana. Ég lagði svo hart aö mér við að læra hana, að ég vil fá að nota þá kunnáttu. Ég veit ekki hvort þeim tlma, sem varið var til að kenna z, er varið til einhvers betra núna. Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor: — Mér er sama. Ég kann bæði að rita z og án hennar. Ég tel aö það skipti engu máli fyrir islenzka menningu og mál, hvort skrif- uð er z eða ekki z.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.