Tíminn - 16.05.1976, Blaðsíða 32

Tíminn - 16.05.1976, Blaðsíða 32
32 TÍMINN Sunnudagur 16. maí 1976. Anton Mohr: Árni og Berit Ævintýraför um Afríku Forstjórinn, sem hét Kemal, var Arabi að ættstofni eins og Ibra- him en liklega heldur eldri, eða um 65 ára. Auk þessa útibús hafði hann lika umsjón með átta öðrum slikum verzlunarstöðum, og var nálægt þvi dagleið á milli þeirra. Um kvöldið, þegar allir voru safnaðir saman fyrir framan arininn, sagði Kemal með mikilli orð- gnótt, eins og ekkert væri eðlilegra i þessum heimi, frá konum sinum og börnum þeirra, sem hann átti i hverju sliku útibúi. Berit varð alveg undrandi að hlusta á slika frásögn. Hún hafði lesið um það, að rikir Arabar i Austurlöndum hefðu kvennabúr, en að slikt ætti sér stað, sem Kemal sagði frá svona blygðunarlaust, hafði henni aldrei komið til hugar. Þegar Kemal varð var við undrun systkinanna, sagði hann þeim, að fyrir þessu hefði hann gild og góð rök. I fyrsta lagi væri fjöl- kvæni yfirleitt leyft hjá Aröbum. í öðru lagi þyrfti hann ekki að ótt- ast, að eitri væri komið i matinn hjá sér á hvejum stað, þar sem konan ein byggi hann til, en hann sagði, að sá löstur væri mjög almennur hjá þar- lendu fólki, ef rikur maður ætti i hlut, sem það vildi ræna. Að sið- ustu sagðihann, að þetta styddi svo verzlunina hjá sér. Hann sagðist ætið fá sér konu úr þeirri fjölskyldu eða ættbálki, sem valdamestur væri á hverjum stað, og þegar hann þannig væri tengd- ur inn i valdamikla ætt, þá gengi verzlunin og öll viðskipti miklu betur. Hvað siðferðið snertir, sagði hann að lokum, þá taldi hann það ekkert verra að vera giftur átta konum og reynast þeim vel, heldur en vera giftur einni konu, eins og Evrópumenn, og reyn- ast henni illa. Berit sagði ekki margt við þessum röksemdum, en henni skildist það eftir þetta samtal, að Arabarnir, sem byggju hér i frumskógunum, veldu sér ekki konu af einskærri ást. 7. Seint um kvöldið þriðja daginn, sem þau systkinin voru i Kobam- bare, kom kolsvartur negri hlaupandi út úr skóginum inn um hliðið, og sást það á öllum til- burðum hans, að hann var yfir sig hræddur. 1 fyrstu var hann svo æst- ur, að hann kom ekki upp nokkru orði, en þeg- ar hann fór að jafna sig, sagði hann frá þvi, að hann hefði rekizt á hóp af 1 jónum i dalverpi svo sem 10 km i austurátt. „Mig ægilega hræddur. Mig alveg missti mátt- inn”, sagði hann á bjag- aðri ensku og gretti sig hræðilega. En máttinn hafði hann reyndar ekki misst alveg, þótt hann tæki svo til orða, þvi að hann hafði hlaupið i fleng fulla milu vegar, til að segja þessar frétt- ir. Þegar svertinginn kom þjótandi, sat Ibra- him, eins og öll undan- farin kvöld siðan bróðir hans var drepinn, þögull og hreyfingarlaus við eldinn, en nú var eins og hann vaknaði af dvala. ,, Allir búist til safari”, sagði hann með þrumu- raust (safari er veiðiför á máli innfæddra manna). Ég legg upp strax. Nú strax i nótt”. Abdullah spurði þá kurteislega, hvort hann og Ámi fengju ekki lika að fara. Þeir kynnu báð- ir að fara með skotvopn, sagði hann, og þetta væri kannski i eina skiptið á ævinni, sem þeir gætu átt kost á slikri veiðiför. Ibrahim var fyrst dálitið tregur, en að lokum fengu þeir leyfi til að fara með. Berit langaði lika til að fara, en Ibrahim neitaði þvi alveg, að hún kæ*mi með. Hún og Vic skyldu vera héima hjá Kemal, húsbóndanum, sem ekki kærði sig neitt um að fara i ferðina. Hann hafði svo oft, á sinni löngu æfi tekið þátt i ljónaveiðum, að honum datt ekki i hug að fara að raska nætursvefni sin- um og hlaupa eftir fregn frá dauðskelkuðum negra, sem ef til vill hefði aldrei séð nein ljón. Hann hafði svo oft rekið sig á það, að negr- arnir hefðu talið sig sjá ljónahóp, en svo hefðu þetta þegar til kom, verið einhverjar mein- lausar skepnur. Eftir hálftima var leiðangurinn fullbúinn. Voru það Ibrahim, drengimir tveir og fjórir burðarmenn. Einn þeirra var Songo. Þeir voru svo heppnir, að um þetta leyti hætti að rigna. S vertingj arnir höfðu að vopni löng, sterk spjót, en það eru hin venjulegu vopn þeirra á ljónaveiðum, og þætti Evrópumönnum þau litilfjörleg. Þeir báru lika vand- aða, enska riffla, sem voru vopn Ibrahims og drengjanna. Negrinn, sem komið hafði með fréttina, var með sem leiðsögumaður. Hann var nú öruggur, er hann var i fararbroddi fyrir vopnuðu liði. Árni var mjög æstur, og hann sá, að sama máli gegndi um Abdull- ah. Hann hafði heldur aldrei fyrr farið á ljóna- veiðar. Lengi gengu þeir i gegnum koldimmann skóginn, og enginn sagði orð. Ibrahim hafði sagt þeim að forðast allan hávaða, til að styggja ekki dýrin. Að lokum voru þeir komnir upp á dálitla hæð eða háls, en framan við þá var litil dalverpi. Rönd af ný- kviknuðu tungli kastaði daufri birtu yfir dalinn, og Ámi sá, að skóglaust svæði var i dalbotninum sitt hvorum megin við litinn læk eða á, sem féU eftir dalnum. Þangað benti negrinn ákafur. „Hér em þau,” sagði hann. Ibrahim tók við rifflunum hjá burðar- mönnunum og hlóð þá sjálfur, bæði hlaupin, með kraftmiklum kúlu- skotum. Árna fannst riffillinn nokkuð þungur hann var meira en 10 pund, —- en þó þægilegur að handleika hann. Hann fann lika til ein- hvers öryggis, er hann handlék þetta banvæna skotvopn. Með mestu varkárni læddust þeir niður i dal- inn. Ennþá höfðu þeir ekkert séð né heyrt til ljónanna. En nú rauf grimmilegt öskur næturkyrrðina, og Arna fannst sem jörðin titraði undir fótum sér. Á eftir heyrðust nokkur kraft- minni og veikari öskur. í sama bili svaraði annað ljón með grimmdaröskri hinum megin i dalnum, og þvi næst tóku tvö undir i annarri átt. Það virtist sem mörg ljón, ef til vill stór hópur, væru dreifð um dalinn. Arna fannst hjartað kólna i brjósti sér, en hann skyldi þó engan láta vita, að hann var hrædd- ur. Að snúa aftur einn i myrkrinu, þorði hann heldurekki. Nei, hérvar hann öruggastur, vel vopnaður, við hlið hins hrausta, fáorða Araba. Ljónin héldu sig á sléttunni við litinn hyl i ánni. Þangað koma dýr skógarins, sebradýr, antilópur, villisvin og villinaut, til að fá sér að drekka, og þá lágu ljónin i leyni inni i hávöxnu grasinu. Ennþá læddust dreng- imir og Ibrahim mjög gætilega, en Songo og hinir negrarnir fylgdu þétt á hæla þeirra. 1 daufu tunglskininu virt- ist Árna einhver stór dýr hreyfa sig i grasinu. Það hlutu að vera ljónin. Ibrahim stanzaði bak við stórt tré i skógar- jaðrinum. Ljónin voru nú varla meira en i 100 metra fjarlægð, en þau höfðu ekki enn orðið vör mannaferða, enda hafði Ibrahim gætt þess, að vindurinn stæði af þeim, Hann gaf drengjunum merki um að biða við tréð, en læddist sjálfur nokkur skref áfram. í sama bili dundu yfir tvö skot, hvort á eftir öðru, og jafnframt kvað við grimmilegt öskur. Ibra- him hafði skotið eitt ljón. En nú höfðu hin dýrin lika orðið hætt- unnar vör, en þau vissu ekkert i hvaða átt hún var. Hrædd og rymjandi æddu þau f ram og aftur i grasinu. Árni stóð kyrr undir trénu, eins og Ibrahim hafði sagt honum. Hver taug i likama hans var i spenningi. Hann starði Lesendur eru beönir velviröingar á, aö I staö þess aö lok 6. kafla c allur 7. kafli áttu aö birtast isiöasta sunnudagsblaöi þá var þar birtur ; kafli. úr þessum mistökum er hér meö bætt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.