Tíminn - 16.05.1976, Blaðsíða 27

Tíminn - 16.05.1976, Blaðsíða 27
Sunnudagur 16. mai 1976. TÍMINN 27 Olíusigti - Loftsigti Verjið vélina óhreinindum og notið CROSLAND sigti. Skiptið reglulega um sigti. Fyrrverandi borgarfulltrúi heldur mdlverkasýningu Rætt við Magnús Jóhannesson, húsasmiðameistara um myndlistarstörf Magnús Jóhannesson, húsa- smlöameistari og fyrrum borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins i Reykjavik, opnar um helgina málverkasýningu að Laugavegi 178. Opnar sýningin kl. 16.00 á laugardag og verður siöan opin yfir helgina og fram yfir næstu helgi á venjulegum sýningar- tima. Magnús boðaði blaðamenn á sinn fund á föstudaginn og hafði þá m.a. þetta að segja um mynd- listarstörf súi: — Ég er nýliði i myndlist og hefi litillar kennslu eða handleiðslu notið I myndlistinni. Það var fyrir nokkrum árum, að ég tók við starfi austur a Rangárvöllum að mikil breyting varö 'á högum minum hvað tima snerti. Meðan ég var i Reykjavik og var að vasast i pólitík ásamt eril- sömu starfi, þá hafði ég ekki neinar tómstundir. Þetta breyttist þegar ég flutti úr borg- inni og þá byrjaði ég að mála i fristundum minum, en ég hafði ávallt haft mikinn áhuga á mynd- listum.Églit ekkistórtá mig sem málara, en fyrir hvatningu vina þá ákvað ég nú að hengja þessar myndir upp. Ég hefi þegar hlotið af þvi nokkurn ávinning. Það er dálitið annað að sjá þetta saman I einum sal, maður skynjar mynd- irnar á nýjan og ég held raun- hæfari hátt. — Nú áhuginn var sumsé kveikjan að þessu ásamt dálitið rúmari tima. Eftir þvi sem stundir hafa liðið, hefur áhuginn farið vaxandi og myndlistin hefur veitt mér mikla ánægju, sagði Magnús Jóhannesson að lokum. — J.G. Aðalfundur Kaupfélags Norður-Þingeyinga: Heildarveltan 472 milj. kr. — sem er 47% aukni Aðalfundur Kaupfélags Norður- Þingeyinga var haldinn á Kópa- skeri 6. mai. í skýrslu stjórnar og fram- kvæmdastjóra kom m.a. fram, að sala verzlunardeilda hafði aukizt um 55%, sala þjónustudeilda um 70% og sala afurða um 36%. Heildarvelta félagsins nam á ár- inu 472milljónum, og hafði aukizt um 47%. Afskriftir námu 5 milljónum. Heildar launagreiðsl- ur voru 58 milljónir. Rekstraraf- gangur nam 80 þúsund. Þá kom fram, að yrðu ekki gerðar verulegar úrbætur á af- urða- og rekstrarlánum til sauð- fjárbænda nú þegar, væri kippt stoðum undan suðfjárbúskap i landinu, og um leið rekstrar- grundvelli kaupfélaga, sem byggðu afkomu sina á þeirri at- vinnugrein, að mestu eða öllu leyti. Einnig kom fram, að nýjasta ráðstöfun stjórnar Seðlabanka Is- lands i vaxtamálum kæmi mjög illa við innlánsdeildir kaupfélag- anna. Margar samþykktir voru gerð- ar á fundinum, og verður hér get- ið um nokkrar þeirra: 1. Aðalfundur Kf. Norður-Þing- eyinga, haldinn á Kópaskeri 6. Ungbarnastóll °9 skermakerra óskast til kaups. Upplýsingar í stma 71490. Auglýsið í Tímanum "9 mai 1976, skorar á orkumálaráð- herra að taka mið af orkuskorti i Norður-Þingeyjarsýslu, og láta nú þegar leggja orkuflutningslinu frá Kröflu, beinustu leið i þá sýslu. Leggur fundurinn áherzlu á að sýslan verði látin sitja fyrir þeirri orku frá Kröflu, sem hægt verður að verja til orkufreks iðn- aðar. Þá krefst fundurinn þess, að staðið verði við loforð um að vararafstöð verði sett upp á Kópaskeri þegar i stað. 2. Aðalfundur Kf. Norður-Þing, haldinn á Kópaskeri 6. mai 1976, tekur undir áskorun sýslunefndar Norður-Þingeyjarsýslu, um að byggja i Norður-Þing.heyköggla- verksmiðju, þá næstu sem byggð verður, og skorar á landbúnaðar- ráðherra að beita sinum áhrifum fyrir þeirri framkvæmd svo fljótt sem verða má. 3. Aðalfundur Kf. Norður-Þing., haldinn á Kópaskeri 6. mai 1976, skorar á Alþingi að gera átak, sem um munar, við uppbyggingu þjóðvegarins um Norður-Þing- eyjarsýslu, með þvi að veita nú þegar heimild til útgáfu happ- drættisskuldabréfa a.m.k. 500 millj. til nefnds vegar, og felur þingmönnum Norðurlandskjör- dæmis eystra forustu i þvi máli. 4. Aðalfundur Kf. Norður-Þing., haldinn á Kópaskeri 6. mai 1976, lýsir vonbrigðum sinum yfir þvi, að i staðfestingu rikisstjórnarinn- ar á byggðaþróunaráætlun fyrir Norður-Þingeyjarsýslu, skuli ekki felast skuldbindingar rikis- sjóðs á fjárframlögum.■-> Ibúar Norður-Þingeyjarsýslu hafa bundið miklar vonir við áætlana- gerð þessa, og mikil hætta er á frekari byggðaröskun, verði hér aðeins um pappirsgagn að ræða. Fundurinn krefst þess, að rikis- stjórnin taki staðfestingu þessa til endurskoðunar og tryggi fjár- magn til framkvæmda. Auk framangreindra sam- þykkta voru gerðar samþykktir varðandi skiptingu veiðisvæða, könnun á hagkvæmni við bygg- ingu áburðarverksmiðju við Kópasker, hafnarmál á Kópa- skeri og samvinnu veiðistöðva i Norður-Þingeyjarsýslu og fl. Úr stjórn félagsins átti að ganga Björn Benediktsson Sand- fellshaga, og var hann endurkjör- inn. Stjórn félagsins skipa nú Árni Sigurðsson Hjarðarási, formað- ur, Björn Guðmundsson Lóni, Helga Sæmundsdóttir Sigurðar- stöðum, Björn Jdnsson Kópaskeri og Björn Benediktsson Sandfells- haga. Framkvæmdastjóri er Kristján Ármannsson. Litir: Hvitt Rautt Palisander Álmur Hnota, mött Hnota, póleruð Olíu- og loftsigti dvallt fyrirliggjandi í flestar gerðir bifreiða. CROSLAND sigti fóst á smurstöðvum um land allt. in7 Suðurlandsbraut 20 * Sími 8-66-33 Breyttur afgreiðslutími Skrifstofa okkar og vöruafgreiðsla verður opin sem hér segir frá og með mánudegin- um 17. mai til föstudagsins 27. ágúst: Mánudag til föstudags kl. 08.00—12.30 og 13.00—16.00. Rolf Johansen og co. Laugavegi178________________________ Skipholti 19 v/Nóatún Sfmar: 23800 — 23500 jUDIRNAR HF. Klapparstig 26 Simi 19800

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.