Tíminn - 16.05.1976, Page 16
16
TÍMINN
Sunnudagur 16. mal 1976.
Margrét prinsessa og Snowdon lávaröur. Loksins hefur veriö bundinn
endi á þann skripaleik, sem staöiö hefur á milli þeirra i fimmtán ár.
Skilin að borði og sæng
Tilkynning frá Buckingham
höllinni um að veriö væri að ræða
hjónaband prinsessu Margrétar
og Snowdons lávarðar kom alveg
á réttum tima fyrir ljósmyndar-
ann Tony. Hann var nefnilega að
leggja af staö til Astraliu til aö
vera við opnun ljósmyndasýning-
ar, sem hann hafðí sett upp þar,
og var þetta þvl hin bezta auglýs-
ing fyrir hann. Hann upplýsti þó
blaðamenn um það, að þaö se'm
Ariö 1955 samþykkti Margrét aö gefa Peter Townsend, fráskilinn for-
ingjai flughernum, upp á bátinn. Astæöan fyrir þvi aö hún fékk ekki
blessun systur sinnar til aö giftast honum var sú, aö samkvæmt kenn-
ingum kirkjunnar, var ekki hægt aö slita hjónabandi, sem haföi veriö
myndaö viö kirkjulega athöfn.
hann vildi væri auglýsing fyrir
myndir sinar en ekki einkalif.
Snowdon lávarður er ekki með
öllu saklaus af þvi að hjónaband
þeirra Margrétar prinsessu fór
út um þúfur.
1 fyrra fór hann með ungri
stúlku til Astralíu, og veik hún
ekki frá hlið hans alla leiðina og
hagaði sér i hvivetna eins og sam-
band þeirra væri allnáið. Sem
reyndar það var. Ari áður höfðu
þau farið saman I skiðaferðalag
til svissnesku Alpanna. Stúlka
þessi var Lucy Lindsay-Hogg, og
höfðu þau kynnzt þegar Tony
vann við gerð sjónvarpskvik-
myndar árið 1974. Kvikmynd
þessi hét Happy-being happy, og
hafði Lucy eitthvert hlutverk i
henni. Myndin var vita vonlaus og
misheppnuð I alla staði, en Tony
var sjálfur hamingjusamur.
Eigcndur lltilla veitingahúsa i
London urðu oft óþolinmóðir og
pirraðir vegna þeirra, þvi að þau
áttu það til að sitja yfir tómum
glösum fram yfir lokunartima,
löngu eftir aö allir aörir gestir
voru farnir.
Annar kvenmaður, sem komið
hefur viö sögu I lifi lávarðarins
var Jackie Rufus Isaac. Þau
kynntust á næturklúbbi áriö 1969
og uröu fjótlega mjög samrýmd.
Þegar Tony lá á spitala 1970,
heimsótti frúin hann tvisvar sinn-
um á dag. Samband þeirra varö
þó jafnskammvinnt og samband
hans við Pamelu Colin, fram-
kvæmdastjóra ameriska tizku-
blaðsins Vogue.
öll þessi hliðarspor lávarðarins
voru ekki vel séð hjá hirðinni.
Siðastliðinn október lét drottning-
in hafa það eftir sér, að hún væri
fús til að leggja blessun sina yfir
skilnað að borði og sæng en ekki
skilnaö að lögum. Elizabeth II.
var hrædd um að slúðursögur um
systur hennar og mág myndu-
varpa skugga á hátíðahöld i sam-
bandi við tuttugu og fimm ára af-
mæli hennar sem rikisleiðtoga.
Bre2k lög gera greinarmun á
skilnaði að boröi og sæng og
skilnaði að lögum. Við skilnað að
borði og sæng stendur hjónaband-
ið, en aðilar þess þurfa ekki aö
uppfylla skilyrði hjúskapareiðs-
ins.
Frjálslynda blaðið Guardian
skrifaöi, aö skilnaö aö boröi og
sæng — og að lögum — ætti aö
viðurkenna. Engum dytti ihug aö
trúa þvi, aö Margrét væri
persóna, sem heföi einhverja
pólitiska þýðingu. Hún væri
fimmta i rööinni aö krúnunni,
næst á eftir bömum drottningar.
Upprunalega var ákveðið að
tilkynna um skilnaðinn i júli á
þessu ári, þvi þá færu flestir Bret-
ar i sumarfri og væru litt
uppnæmir fyrir þess háttar
tiðindum. En eins og kunnugt er
fór svo ekki. Ljósmynd sem birt-
ist af prinsessunni i dagblaði,
varð til þess að skripaleikurinn
milli Tonyar og Margrétar hætti
fyrr en áformað hafði verið.
Myndin sýndi Margréti á kara-
bisku eyjunni Mustique, með
tveim ungum herrum, þar sem
þau sátu 1 baðfötum yfir drykk og
sleiktu sólskinið. Þessi
meinleysislega mynd vakti
mikinn úlfaþyt I Bretlandi og ku
Snowdon hafa kvartað sáran yfir
ótrygglyndi konu sinnar við
drottninguna.
Það rétta I þessu máli er það að
Roddy Llewllyn sem er tuttugu og
sjö ára gamall hefur i þrjú ár ver-
ið uppáhaldsfylgdarmaður
prinsessunnar. Arið 1974 bauð
hún honum með sér I fri á einka-
eyju hennar, Mustique i Kara-
blska haiinu, og eftir aöþau komu
heim, aðstoðaði hún hann við að
standsetja ibúö hans I London.
Um jólin 1974, bannaði lávarö-
urinn ektakvinnu sinni að hitta
aftur þennan unga leikfélaga.
Hannn var hræddur um aö börn-
Til þess aö reyna aö bæla niöur allan oröróm um hjónaerjur, létu þau hjónin oft mynda sig meö börnum
sinum á heimili þeirra.