Tíminn - 16.05.1976, Qupperneq 17
Sunnudagur 16. mai 1976.
TÍMINN
17
um þeirra tveimur, David og
Söru, yrði stritt i skólanum. Og
þess vegna fór Margrét ein i fri á
næsta ári.
Ekki gat hún þó stillt sig um aö
hafa samband við hann og
heimsótti Raddy eitt sinn, þar
sem hann lá á spitala, og siðar i
kofa, sem hann átti úti i sveit. Þar
var Roddy ásamt tveim öðrum
pörum. Þegar Margrét kom, var
henni eftirlátið eina rúmið i
kofanum, — annars hjálpaði hún
við garðvinnuna og naut hins
einfalda sveitalifs.
Seinna bauð hún svo Roddy i
heimsókn i Kensington-höll, þeg-
ar maður hennar var ekki heima,
ef til vill voru það bara móðurleg-
ar tilfinningar, sem lágu þar að
baki.
Aðeins þrisvar sinnum hefur
ástar eða ástriðu orðið vart hjá
prinsessunni. Þegar hún var
þrettán ára kynntist hún Peter
Townsend, foringja i flughernum,
og tuttugu og fimm ára var hún
þegar hún vildi giftast honum, —
eftir að hann hafði fengið skilnað
frá konu sinni.
Elizabeth drottning ræddi fyrst
við erkibiskupinn af Kantaraborg
um það hvernig koma ætti vitinu
fyrir stúlkuna. Siðan tók hún syst-
ur sina tali. Eftir að Margréti
höfðu verið settir afarkostir —
annað hvort hjartað eða tiltilinn
— hélt hún áfram að vera
prinsessa.
í staðinn gaf erkibiskupinn
hana og hinn borgaralega Antony
Armstrong-Jones saman i hjóna-
band árið 1960 og drottningin
veitti honum stuttu siðar titilinn
Snowdon lávarður.
1 febrúar 1967 var Margrét
gripin miklu þunglyndi. Þá var
maður hennar að fara i nokkurra
vikna ferðalag til Japan og reyndi
hún að fá hann til að hætta við
það. Þegar hann sinnti i engu ósk-
um hennar og fór samt sem áður,
reyndi hún að komast að heimilis-
fangi hans i gegnum Sunday
Times, en hann fór á vegum
þeirra. En þeir gátu ekki hjálpað
henni frekar en aðrir.
Margrét þekkti veikleika eigin-
manns sins gagnvart austur-
lenzku kvenfólki og fékk tauga-
Lady Jackie Rufus Isaacs var um
tima all-náin vinkona lávaröar-
ins. Milli hennar og Margrétar
ríkti fullur fjandskapur.
áfall og var lögð á sjúkrahús. Af
sjúkrahúsinu hringdi hún til
kunningja sins, sem hún hafði eitt
sinn farið út með. Hann hét Robin
Douglas-Home, var frændi for-
sætisráðherrans, og þótti einkar
skemmtilegur og fróður viðræðu-
félagi. Robin þessi hafði viða
komið við. Kristin Sviaprinsessa
hafði verið ástfangin af honum,
hann hafði huggað Jackie Kenne-
dy eftir lát manns hennar og hann
hafði verið i nánu ástarsambandi
við erfingja Dunhill-milljónanna.
Þá hafði hann verið kvæntur
ljósmyndafyrirsætunni Söndru
Paul, en þau voru skilin þegar
þarna kom sögu.
Hann stakk upp á þvi við
Margréti að hún kæmi og dveldi á
sveitasetri hans við suðurströnd
Englands sér til hressingar i tvo
daga.
Margrét tók boði hans og lét
aka sér þangað. Fyrir komu
hennar hafði lögreglan yfirfarið
húsið fyrir öryggis sakir. Allt var
svo opinbert, að það gat ekki átt
sér stað, að þarna væri á ferðinni
neitt annað en hreinn vinskapur.
En þetta varð upphafið að hinu
3ja stóra ástarævintýri hennar.
Það er vel skiljanlegt, að Margrét
skyldi falla fyrir töfrum þessa
heimsmanns, enkannski erfiðara
að skilja að sá áhugi hafi verið
gagnkvæmur. Reyndin var samt
sú, að hann var verulega hrifinn
af Margréti og bar þá ósk i
brjósti, að samband þeirra yrði
gert löglegt.
Þegar hann hafði fengið að vita
það frá Margréti sjálfri að hún
hafði talað við systur sina drottn-
inguna um samband þeirra og
það hefði orðið úr að hún hafði
enn á ný tekið þá ákvörðun að láta
skynsemina — en ekki hjartað
ráða — þá byrjaði hann að
drekka, veðja og spila fjárhættu-
spil.
Fáum vikum siðar talaði hann
siðustu orð sin inn á segulband.
Þau voru þannig: Það koma
augnablik i lifi manns, þegar
maður ákveður, að það er
tilgangslaust að halda áfram að
lifa, og bezt að binda endi á það.
Morguninn eftir fann móðir hans
hann látinn i rúmi sinu. Hann
hafði tekið inn eitur og drepið sig.
thönd hans lá skammbyssa, sem
hann hafðiþóekki notað. Margrét
kom ekki til að vera viðstödd
jarðarför hans.
Eítir skilnað þeirra Margrétar
og Tonys, mun Tony koma til með
að búa i Kensington-höllinni, alla-
vega til að byrja með. Þar eru
ljósmyndastúdió hans og
myrkrakompur, sem hann hefur
innréttað sjálfur og auk þess á
hann ekkert annað hús i London.
Hann þarf ekki að hafa áhyggjur
af framtiðinni, hann er viður-
kenndur og virtur ljósmyndari og
getur farið i fyrirlestraferðir til
annarra landa, sem hann mátti
ekki á meðan hann tilheyrði
konungsfjölskyldunni.
Margrét mun snúa sér af meiri
krafti en hingað til að þvi að upp-
fyllasinar skyldur sem eru mest
fólgnar i þvi að koma fram opin-
berlega og sem henni er borgað 35
þúsund pund árlega fyrir með
peningum skattborgaranna en
fram að þessu þykir hún ekki hafa
rækt þær sem skyldi.
(Þýtt og endursagt JB)
Atvinnuljósmyndarinn Snowdon hefur enga ástæðu tii að haga sér sem kokkáiaður eiginmaður. Hliðar-
spor hans, stór og smá eru öllum heyrinkunn við hiröina. Þarna er hann með Lucy Lindsay-Hogg, sem
hann hélt við I tvö ár.
Robin Douglas-Home var þriðja „stóra ástin” i lifi Margrétar. Hann
svipti sig Ilfi árið 1968.
fl RÍKISSPÍTALARNIR
ÖB lausar stöður
KLEPPSSPÍTALINN:
AÐSTOÐARLÆKNAR. Tveir að-
stoðarlæknar óskast til starfa á
spitalanum. Annar frá 15.
júni n.k. og hinn frá 1. júli n.k. Ætl-
ast er til að þeir starfi við spitalann
i 6-12 mánuði. Umsóknir er greini
aldur, menntun og fyrri störf ber
að senda Skrifstofu rikisspitalanna
fyrir 10. júni n.k.
VÍFILSSTAÐASPÍTALINN:
HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI
óskast til starfa á spitalann nú þeg-
ar eða eftir samkomulagi. Upplýs-
ingar veitir forstöðukonan, simi
42800.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR ósk-
ast til afleysinga og i fast starf.
Vinna hluta úr fullu starfi, svo og
einstakar vaktir kemur til greina.
Upplýsingar veitir forstöðukonan,
simi 42800.
LANDSPÍTALINN.
HJÚKRUNARDEILDARSTJÓR-
AR. Tveir hjúkrunardeildarstjórar
óskast til starfa á handlækninga -
deild spitalans (deild 4-B og 4-C) nú
þegar eða eftir samkomulagi. Upp-
lýsingar veitir forstöðukonan, simi
24160.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR ósk-
ast til afleysinga og i fast starf.
Vinna hluta úr fullu starfi kemur til
greina svo og einstakar vaktir.
Upplýsingar veitir forstöðukonan,
simi 24160.
Reykjavik, 14. mai, 1976.
SKRIFSTOFA
Rl KISSPÍTALANNA
EIRlKSGÖTU 5,SlM111765