Tíminn - 16.05.1976, Síða 35
Sunnudagur 16. mai 1976.
TÍMINN
35
Þessu verki
hús að segja, — sem ég tók reynd-
ar fram áðan — að ekki er hægt að
fullyrða hvaða ár það var byggt.
Þó er hægt að fara nærri um það.
Arið 1804 er Bjarni Sivertsen að
sækjast eftir húsi, sem stóð úti á
Langeyrarmölum. Það hús var
slegið öðrum, en hvort Bjarni
hefur gengið inn i kaupin á eftir,
veit ég ekki. En hvort sem verið
hefur, hlýtur það að teljast lik-
legt, að Bjarni hafi farið að láta
byggja hús sitt um þetta leyti, eða
rétt á eftir. Arið 1809 er hús hans
komið upp og farið að búa i þvi —
liklega fyrir nokkru, — þvi að þá
kemur þangað enskur ferðamað-
ur, sem rómar mjög i ferðaminn-
ingum sinum, hversu vel og
snyrtilega sé gengið um þetta
hús, og hve vandað það virðist að
allri gerð.
Þegar Bjarni Sivertsen dó, árið
1833, var verzlunareignin seld á
opinberu uppboði i Danmörku.
Kaupendurnir voru Knudsen &
Söns. Eftir það bjuggu verzlunar-
stjórar lengi i húsinu. Árið 1856
kom hingað verzlunarstjóri sem
hét Hans Sivertsen. Hann var
sonarsonur Bjarna Sivertsens og
kvæntur konu héðan úr Firðinum,
fæddri Linnet. Hans Sivertsen var
hér i tiu ár, og bjó að sjálfsögðu i
húsi afa sins þann tima.
Næsti maður, sem bjó i Sivert-
senshúsi, var Zimsen, faðir Zim-
sen-bræðra, sem Reykvikingar og
margir fleiri þekkja vel. Zimsen
bjó i húsinu i tuttugu ár. Arið 1885
kom Gunnlaugur Briem verzlun-
arstjóri i húsið og bjó i þvi til
dauðadags, 1896.
Næstu árin voru ibúaskipti i
húsinu tiðari en verið haföi áður.
Thor Jensen bjó þar i eitt ár með
fjölskyldu sinni, Barnaskóli
Hafnarfjarðar hafði þar aðsetur
um tveggja ára skeið, þangaö til
nýi barnaskólinn i Hafnarfirði
var tekinn i notkun árið 1902. Eft-
ir þetta bjó Jón Gunnarsson i hús-
inu, þá Ferdinand Hansen og loks
Ölafur Daviðsson.
Nú var komið fram undir 1930.
Þá eignaðist Hafnarfjarðarbær
húsið, og bæjarskrifstofurnar og
skrifstofur hafnarinnar fluttust
þangað. Þannig stóðu málin
þangað til húsið komst i hendur
okkar, þessarar svokölluðu
byggðasafnsnefndar.
Þessu starfi verður
haldið áfram
Eins og ég gat um hér að fram-
an, var það eitt af fyrstu stefnu-
málum okkar i byggðasafns-
nefndinni að láta endurreisa
Sivertsenshús i sinni upphaflegu
mynd. Þó liðu nokkur ár, án þess
að nokkuð gerðist i þessa átt, en
svo gerðist það einn góðan veður-
dag, að Bjarni Snæbjörnsson
læknir vakti máls á þessu á fundi i
Rotary-klúbbi Hafnarfjarðar.
Þetta mun hafa veriö árið 1965
eða 1966. Rotary-félagsskapurinn
beitti sér siðan fyrir endurbygg-
ingu hússins, og slik gifta fylgdi
orðum Bjarna læknis, að þegar i
stað var byrjað að vinna að þessu,
og þótt hægt gengi i fyrstu, var
húsið þó tilbúið, þegar farið var
að hugsa um að halda upp á ellefu
alda búsetu i landinu.
Þegar Bjarna læknis naut ekki
lengur við, kom annar ágætur
maður til sögunnar, sem ekki var
siður hlynntur málefninu. Það
var Gunnar Agústsson hafnar-
stjóri. Fyrir atbeina þessara á-
gætu manna, og skilning þjóð-
minjavarðanna dr. Kristjáns
Eldjárns og Þórs Magnússonar,
komist húsið i það horf sem það er
nú i. Það voru fengnir arkitektar
frá Danmörku, og undir þeirra
fyrirsögn var húsið byggt upp.
Sivertsenshús stendur við end-
annáþvihúsi, þar sem við nú
erum staddir, eins og þeir sjá,
sem koma hingað i safnið. í þvi
eru nokkrir munir úr búi Bjarna
Sivertsens, þar á meðal átta stól-
ar, borðstofuborð, skatthol, skáp-
ur og fleira. Óneitanlega væri
gaman að geta safnað sem flest-
um munum, sem til eru úr eigu
Bjarna Sivertsens og geyma þá I
húsi „hans”, en hins vegar er
ekki von að afkomendur hans vilji
láta af hendi hluti sem tengdir eru
minningu Sivertsenshjónanna,
svo ágæt sem þau voru, og slikur
ljómi sem er um nöfn þeirra.
— Er ekki þetta safn hér ágæt-
ur stofn aö byggöasafni, þótt þaö
sé enn sem komiö er aöallega sjó-
minjasafn?
— Jú, jú, það er alveg rétt.
Meira að segja húsið sem geymir
safnið, það er sjálft forngripur.
Það er byggt 1863, og það er eitt
þeirra húsa, sem ekki mega með
neinu móti fara forgörðum. Og
um leið og húsið er safngripur, er
það tilvalið sem aðsetursstaður
byggðasafns Hafnarfjaðar. Hér
er fjögur- til fimm hundruð fer-
metra gólfflötur, svo ekki er ann-
að hægt að segja, en að við höfum
á einhverju að standa! Ég er al-
veg sannfærður um, að i framtið-
inni verður haldið myndarlega á-
fram við það verk, sem hér er
hafið. —VS.
Fallbyssan meö sinu brotna hlaupi. Þegar horft er I sáriö, sést aö
hlaupiö hefur veriö býsna þykkt, og veröur þaö þó enn augljósara, er
byssan sjálf er skoöuö. — A veggnum fyrir ofan eru hnifar af mörgum
geröum, og fleiri áhöld.
Fremst á inyndinni er vél (svört á litinn), er smíöuö var handa blindum manni I Hafnarfiröi, svo aö hann
gæti snúiö tauma. A bakviö vélina er mynd af vélbátnum Fróöakletti. Til vinstri eru sökkusteinar, margir
mjög haglega geröir. Skipsklukka af linuveiöaranum Eljunni, er til hægri á myndinni, en þessi linuveiö
ari var lengi geröur út frá Hafnarfiröi. Hann slitnaöi frá bryggju i Hafnarfiröi I ofsaveöri 1931, rak upp f
fjöru og brotnaöi.
Nokkur bátalikön
A veggjunum eru áhöld, sem notuö voru viö skipasmíöar
Færeyjaferö er
oðruvisi
Fjöldi víðförulla íslendinga, sem heimsótt
hafa Færeyjar, ferðast um eyjarnar og
kynnst fólkinu, eru á einu máli um að ferð
til Færeyja sé öðruvísi en aðrar utanlands-
ferðir. Þeir eru líka á einu máli um
að Færeyjaferð sé ógleymanlegt ævintýri.
Það sem gerir Færeyjaferð að ævintýri,
er hin mikla náttúrufegurð, ásamt
margbreytilegum möguleikum á skemmti-
og skoðunarferðum um eyjarnar, og siöast
en ekki síst hið vingjarnlega viðmót fólks-
ins. Ef þú ert einhvers staðar velkominn
erlendis, þá er það í Færeyjum.
Færeyjaferð er skemmtileg fjölskylduferð,
og hún er líkaogekki síður tilvalin ferð fyrir
starfshópa og félagasamtök. Og nú er
i fyrsta sinn hægt að fljúga til útlanda frá
öðrum stað en suðvesturhorni landsins.
Við fljúgum til Færeyja bæði frá Reykjavík
og Egilsstöðum.
Færeyjaferð er ódýrasta utanlandsferð
sem völ er á.
Félög með beint flug frá Reykjavik og Egilsstððum
flucfélac LOFTLEIBIfí
ISLAJVDS