Tíminn - 13.06.1976, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 13. júni 1976
i
Tamið
Ijón
sem
gæludýr
Tippi Heidren, kvikmynda-
stjarna frá Hollywood, sepn Al-
fred Hitchcock uppgötvaði til að
leika i hryllingsmyndinni
„Fuglarnir” hefur heldur betur
stækkað við sig i dýravali. Frá
fuglunum hefur hann snúið sér
að ljóni sem gæludýri. Ljónið
sem gengur undir nafninu Neil,
gætir húss og heimilis fyrir
Tippi. Neil hefur unnið sér gott
orð meðal fjölskyldu og vina og
þykir hann góður i umgengni.
En ekki er gott að gizka á, upp á
hverju hann tæki, ef einhvern ó-
velkominn bæri að garði. Það
hefur ekki enn reynt á það. Hér
með fylgja nokkrar mynd-
ir: Ljónið Neil ,,i samræðum”
við Tippi og dóttur hennar
Melanie. A laugarbarminum
liggur Neil og sleikir upprétta
hendi Melanies.
Letilegur liggur Neil á milli
mæðgnanna Tippi og Melanie,
og fær sér blund. Engum öðr-
um væri slikt leyfilegt. Og Neil
er sterkur, Tippi er létt sem
fjöður á baki hans. Sem betur
fer er Neil ekki gefinn fyrir að
valhoppa, þvi þá gæti fjöðrin
tekið flugið. .
★
Erfitt líf
Nú á að fara að gera mæðrum i
Sovétrikjunum, sem vinna utan
heimilis, lifið auðveldara.
Hingað til hefur það verið
heldur erfitt, og af þvi hefur leitt
að þær hafa eignazt fá börn,
þetta eitt eða tvö. Þær fengu
fæðingarfri, tveggja mánaða
borgað leyfi, en áttu á hættu að
missa vinnuna ef þær mættu
ekki aftur innan 60 daga.
Sovézkar húsmæður, sem unnu
utan heimilis fóru með börnin á
barnaheimili og sóttu þau aftur
eftir vinnutima, elduöu siðan
matinn, unnu heimilisstörf-
in og keyptu inn, þegar timi
gafst til. Nú skal verða breyting
á. Nú á að örva eiginmennina til
að hjálpa meira til á heimilinu,
þvo þvotta, kaupa inn og ala upp
börnin. Samkvæmt Pravda er
mæðrum nú gefinn kostur á að
vinna styttri vinnutima og færri
daga I viku. Þær eiga einnig að
fá lengra fæðingarfri.
DENNS
DÆAAALAUSÍ
Kannski aumingja kisi sé llka
með ofnæmi fyrir músum.