Tíminn - 13.06.1976, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
Sunnudagur 13. júni 1976
Skyggnzt inn i horfinn tima
Fyrir framan smiðjuna er gamall hcstastcinn og þarna er fóstran búin að koma upprennandi Arbæ
ingum þar fyrir til geymslu skamma hrlð.
Setið í grænu túni og
skyggnzt inn í horfinn tíma
SJ-Reykjavik. — Nemendur
skóla, dagheimila og leikskóla
eru tiðir gestir I Árbæjarsafni á
vorin.og sumrin. Tekið er þar á
móti slikum hópum utan aðal-
starfstima safnsins, sem er frá 1.
júnf til ágústloka, en þá er safnið
'opið kl. 1-6 siðdegis alla daga
nema mánudaga. Einn daginn
fyrir skömmu, kom hópur barna
úr leikskólanum Arborg i Árbæj-
arhverfi i safnið i fylgd fóstra og
skoðaði það, sem þar er að sjá.
öll húsin eru opin i sumar og aö
vanda þjóðlegar veitingar i
Dillonshúsiog á pallinum þar fyr-
ir utan.
Unnið er að frágangi Miðhúss,
sem áður stóð við Lindargötu.
Það var byggt 1897 og var eigand
inn Jóhannes Benediktsson. Hús-
ið er mtð brotaþaki eins og fleiri
hús við Lindargötu.
Þá er einnig verið að ganga frá
skemmu, sem reist hefur verið
yfir gamlar vélar i eigu Arbæjar-
safns. Stendur til að opna hana
seinna i sumar svo og Miðhús.
hús.
Um helgar verður tóvinna
kynnt í einu húsanna og þar situr
kona við rokk.
Þjóðminjasafnið hefur fengið
hluta af landi Arbæjarsafnstil af-
nota. Þar er nú verið að endur-
reisa annað tveggja verzlunar- og
pakkhúsa frá Vopnafirði, sem
flutt voru suður fyrir rúmu ári.
Þegar húsin voru rifin fyrir
austan, láðist að merkja einstaka
hluta þeirra eins vel og æskilegt
hefði verið með tilliti til að setja
þau saman aftur. Að sögn smið-
anna komu þeim að góðum notum
merkingarnar frá þvi húsið var
upphaflega reist. Svo vonandi
tekst vel þrátt fyrir þessa hand-
vömm.
Minjasafn Reykjavikurborgar
hefur verið sameinað Árbæjar-
safni og eru innanstokksmunir
húsanna margir hverjir úr þvi.
Eftir er að búa Miðhús innan-
stokksmunum og verður haft
„Já, hún er kyndug á svipinn konan með strokkinn, sem hann As-
mundur Sveinsson hefur gert til minna okkur á gamla daga.”
Svona er um aö litast i stofunni I Smiðshúsi, fyrstu byggingunni, sem flutt var i Arbæjarsafn. Þaö
var 1960.