Tíminn - 13.06.1976, Blaðsíða 5
Sunnudagur 13. júni 1976
TÍMINN
5
Ástralskur
glaumgosaklúbbur?
Glaumgosaklúbbarnir
amerisku (Piayboy) sem nú
viröast eiga i fjárhagsöröug-
leikum ætla sér aö reyna aö
færa út kvlamar i Astrallu á
einkaréttargrundvelli. Fyrir
nokkrum vikum auglýstu
klúbbarnir i fjármálabiaöi i
Sydney eftir framkvæmda-
stjóra fyrir alþjóölega klúbb-
starfsemi sem hefur meira en
★
milljón viöskiptavini. Sá sem
kann á óskir, smekk og vilja
rika fólksins í heiminum gæti
fengiö þarna gott tækifæri.
Fram aö þessu hafa ábata-
sömustu fyrirtækin innan
Playboyveldisins veriö spilavlt-
in I Englandi.
Hér sjáiö þiö mynd af nokkr-
um stúlkum sem starfa hjá
klúbbunum.
★
Viðskipti
og pólitískt ofbeldi
I nýlega birtri skýrslu brezku
stjórnarinnarer bent á, aö þrátt
fyrir mikiö umtalaö pólitiskt of-
beldi á Noröur-Irlandi hefur
hagnaöur á iönaöarframleiöslu
hækkaö um 9% siöan 1969. En
hækkunin er 2,7% fyrir allt
Stóra-Bretland á sama tima, og
allt er þar á fallanda fæti.
■
Söngvar
og dansar
fró
Kasakhstan
Viöa i Sovétrikjunum eru enn
viö lýöi gamlir þjóödansar og
þjóölagatónlist. A siöari tímum
hefur mikiö veriö gert af þvi af
forystumönnum i þeim efnum,
aö endurvekja og viöhalda þess-
ari þjóölegu arfleifö. Færir
dansarar leggja æ meiri rækt
viö þjóölega dansa. Þessar
myndir voru teknar i
Kasakhstan á mikilli dans- og
söngvahátiö. önnur er af sóló-
dansmeyju viö ballettinn þar,
sem heitir Rauza Yesmailova,
og er hún bæöi fögur og eftir þvi
góö dansmær. Hin myndin er af
unglingaflokki, sem sýnir leik-
rænan dans meö glensi og
gamni. Annars komu um 120
listamenn fram á þeirri hátiö,
þar sem þessar myndir voru
teknar, bæöi söngvarar, tónlist-
armenn og dansarar.