Tíminn - 13.06.1976, Blaðsíða 33
TÍMINN
Sumiudagur 13. júni 1976
honum fannst sem blóð-
ið kólnaði i æðum sér.
Hann leit við leiftur-
snöggt og sá, að stór og
digur gorillaapi þreif
Berit og þaut með hana
eins og elding upp i
greinamar á heljarstóru
tré. Á sama augnabliki
var hún horfin sýnum,
en hátt ofan úr trénu
heyrði hann rödd systur
sinnar: ,,Árni! Árni!
Hjálp! Hjálp! Hann ætl-
ar að nista mig i sundur.
Árni hjálpaðu mér!
hjálpaðu mér”, æpti
Berit örvita af hræðslu.
Með eldingarhraða
flugu hugsanirnar um
kollinn á Árna „Skyldi
gorillaapinn alveg
kremja hana i sundur?
Bara að höfuðið á henni
sláist ekki við trjágrein-
arnar. Ætli gorillaapinn
þjóti eithvað út i busk-
ann með hana? Þá fengi
hann aldrei að sjá hana
framar”.
Apinn hlaut að hafa
setið á neðstu grein trés-
ins. Hvorugt þeirra
hafði séð hann. Hann
hafði leyft Árna að
ganga óáreittum fram-
hjá, en gripið Berit með
leifturhraða i sina loðnu
armleggi. Gorillaapi,
sem ekki hikar við að
ganga i einvigi við ljón-
ið, ef þörf krefur. Árna
sortnaði fyrir augum.
Hann skildi, að nú valt
allt á þvi, að hugsa skýrt
og framkvæma fljótt.
Hér var Berit i lifshættu
og sá eini maður i heim-
inum, sem möguleika
hafði til að bjarga lifi
hennar, var hann sjálf-
ur.
Árni fleygði frá sér
kaðlinum og athugaði,
hvort öxin væri vel föst i
beltinu, og svo sveiflaði
hann sér upp á neðstu
grein trésins. Eins og
elding þaut hann upp
eftir trjástofninum, — á
eftir vissi hann ekkert,
hvernig hann komst
þetta, — en þrátt fyrir
hraðann fannst honum
liða eilifðartimi þangað
til hann kom auga á ljós-
leita blússu hátt uppi i
trénu. Hann þorði varla
að anda af ótta við, að
apinn yrði sin var, og þvi
siður þorði hann að
kalla.
Með mikilli varkárni
klifraði hann enn hærra.
Nú sá hann apann ágæt-
lega. Þetta var gamall,
digur, grimmdarlegur
api. Grófgert, úfið og
saurugt hárið hékk i
druslum á skrokknum á
honum. Hann sat róleg-
ur á trjágrein og lét bak-
ið styðjast við aðra grein
og át stóra hnetu. Hann
muldi skum hnetunnar
með sterklegum kjaftin-
um. Með vinstri hendi
hélt hann fast utan um
mittið á Berit, og leit svo
út sem hann hefði i svip-
inn gleymt henni, en ef
hún reyndi að hreyfa
sig, þá herti hann þó á
takinu. Það var auðséð á
öllu, að hann ætlaði ekki
að sleppa henni ótil-
neyddur.
öðru hvom mmdi i
apanum og um leið lamdi
hann með hægri hendi á
brjóstið, svo að drundi
hátt i, eins og þegar
slegin er stór trumba.
Fimlega og hljúölaust klifraði Árrii svo hátt, að liann komst
að baki anans.
33
Vinnur þú
hættulegt starf?
Höfum við réttu hlífðargrímuna fyrir þig?
Fríloftsgrímur fyrir
málningasprautun og eituriðnað
Rykgrímur — Reykgrimur
Súrefnisgrimur
Dynjandi sf
Skeifunni 3H ■ Reykjavik • Simar 8-26-70 & 8-26-71
ORYGGI FYRIR OLLU
MPI85-8
MPI85-MP
Þetta eru réttu dráttarvélarnar fyrir
stórbœndur, rœktunarsambönd, verktaka og
yfirleitt alla þá sem þurfa aflmiklar
Afgreióum þessar
aflmiklu og sparneytnu
dráttarvélar meó
stuttum fyrirvara.
*75 B.S. HESTÖFL V/2000 SN/MÍN.
MF
Massey Ferguson
A./
-hinsigikladráttarvél SUÐURLANDSBRAUT 32 • REYKJAVlK* SiMI 86500 • SlMNEFNI ICETRACTORS