Tíminn - 13.06.1976, Page 38
38
TÍMINN
Sunnudagur 13. júni 1976
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR wr
Lis+ahátlð I Reykja-
vík:
SAGAN AF DATANUM
i kvöld kl. 20,30.
Gul kort gilda.
Næst siðasta sinn.
Franski látbragðsieikarinn:
YVESLEBRETON
mánudag kl. 20,30.
Þriðjudag kl. 20,30.
Leikfélag Akureyrar sýnir
GLERDÝRIN
miðvikudag kl. 20,30.
SKJALDHAMRAR
iaugardag kl. 20,30.
Síðasta sinn.
Miðasalan i Iðnó opin kl. 14
til 20,30. — Simi 1-66-20.
t&ÞJÓOLEIKHÚSIÐ
3*11-200
LITLI PRINSINN
2. sýning i dag kl. 15.
Siðasta sinn.
GISELA MAY
i kvöld kl. 20.
INUK
á aðalsviðinu
föstudag 18. júni kl. 20.
Laugardag 19. júni kl. 20.
Aðeins þessar tvær sýningar.
Litia sviðið:
SIZWE BANSI AR DÖO
i kvöld kl. 20,30. Uppselt.
Miðasala 13,15-20.
Simi 1-1200.
Opið til
kl. 1
FRESH
Rudolf og
Linda Taylor
KLÚBBURINN
Aðalfundur Slóturfélags Suðurlands:
Heildarvelta
1975 varð tæpir
fjórir milljarðar
— aukningin frd drinu 1974 var 58,6%
Miðvikudaginn 9. júni var aðal-
fundur Sláturfélags Suðurlands
haldinn að Arnesi i Gnúpverja-
hreppi. A fundinum mættu 88
kjörnir fulltrúar. Ennfremur
voru nokkrir gestir úr nágranna-
sveitunum. Fundarstjórar voru
kosnir þeir Jón Ólafsson,
Eystra-Geldingaholti og Guð-
mundur Brynjólfsson, Hrafna-
björgum.
Otbýtt var á fundinum itarlegri
skýrslu um starfsemi Slátur-
félagsins á sl. ári, en stjórnar-
formaður, Gisli Andrésson á
Neðra-Hálsi og forstjórinn, Jón
H. Bergs, gerðu nánarigrein fyrir
einstökum þáttum I rekstri
félagsins og skýrðu reikninga
þess. Hér á eftir mun verða drep-
ið á nokkra þætti , sem komu
fram i erindum þeirra:
Samtals voru félagsmenn Slát-
urfélagsins 4443 i 43 deildum. Ásl.
ári fékk SS til sölumeðferðar
meira afurðamagn en nokkru
sinni fyrr. Heildarveltan var 3.941
millj. kr., sem var 58,6% aukning
frá árinu áður, þar af var velta
afurðadeilda 1546 millj. kr.
Rekstrarkostnaður hækkaði um
59,2%. Vinnulaun voru greidd
2.172 launþegum, en fastráðiö
starfsfólk var 559 manns. Helztu
framkvæmdir á vegum SS á sl.
ári voru stækkun á frystihúsinu á
Hvolsvelli, en sökum lánsfjár-
skorts, voru framkvæmdir mun
minni þar en ráðgerðar voru. Þá
var keypt húsnæði Mjólkursam-
sölunnar við Háaleitisbraut. Ná-
lægt 40 millj. kr. var varið til
endurbóta á fasteignum félagsins
og keyptar vélar og áhöld fyrir
56,5 millj. kr.
Sauðfjárslátrun
Slátrað var samtals 182.292
fjár, sem var 2,469 fleira en
haustið 1974. Kindakjötsmagnið
reyndist vera 2.610 tonn eða 48
tonnum meira en árið 1974.
Meðalþungi dilka var 13,68 kg.,
sem var heldur meiri en árið áð-
ur. Mestur var meðalfallþungi I
Kjósardeild, 15,2 kg og næsthæst-
ur i Skorradalsdeild, 15,1 kg. A
sl. ári greiddi SS meðal grund-
vallarverð fyrir framleiðslu
ársins 1974, en það voru kr. 299,81
á I. flokks dilkakjöt. Greitt hefur
verið um 88% af grundvallar-
verðinu til bænda fyrir fé, sem
slátrað var á sl. hausti. Nokkru
meiri birgðir voru af dilkakjöti
um sl. áramót en áður eða 171,9
tonn, sem var 149 tonnum meira
en um áramótin áður. Akveðið
hefur verið að flytja út 150-200
tonn af dilkakjöti, þannig að i
byrjun sláturtiðar i haust, ættu
engar birgðir að vera eftir.
Önnur slátrun
Veruleg aukning hefur orðið á
slátrun svina. Asl. ári var slátrað
3.175 svtoum á móti 2.845 árið
áður. Samtals var slátrað 8.767
nautgripum og 1.602 hrossum.
Verulegar birgðir voru af nauta-
kjöti um áramótin eða tæplega
400 tonn, að verðmæti 150 millj.
kr.
A sl. ári gekk rekstur sutunar-
verksmiðju SS mjög vel. Heildar-
sala þaðan nam 160,6 millj. kr.,
þar af var flutt út fyrir 112 millj.
kr. Aftur á móti var rekstrarhalli
á kjötvinnslunni sem nam um 8%
af veltunni. Sölutekjur matvöru-
verzlana SS jukust um 99,2%
miðað við árið áður. Þar munaði
mest um að verzlunin i Glæsibæ
var aðeins starfrækt i 2 mánuði á
vegum SS árið 1974 en allt árið
1975. Þrem verzhmum var lokað á
árinu 1974. Allt frá árinu 1908 hef-
ur SS rekið matvöruverzlanir i
Reykjavik.
I stjórn SS eru: Gisli Andrés-
son, Neðra-Hálsi, Sigurður
Tómasson, Barkarstöðum, Sig-
geir Lárusson, Kirkjubæ, Helgi
Jóhannsson, Núpum og Sigurður
Sigurösson, Stóra-Lambhaga.
HÁSKO
3*2-21-40
Myndin sem unga fólk-
ið hefur beðið eftir:
íl 1-39-36
Stórmyndin
Funny Lady
ISLENZKUR TEXTI.
Afar skemmtileg, heims-
fræg, ný amerisk stórmynd i
litum og Cinema Scope.
Leikstjóri: Herbert Ross.
Aðalhlutverk: Barbra Strei-
sand, Omar Sharif, James
Caan.
Sýnd kl. 6 og 9.
Athugiö breyttan sýningar-
tima.
Fláklypa Grand Prix
Álfhóll
ISLENZKUR TEXTI
Afar skemmtileg og spenn-
andi norsk kvikmynd i litum.
Sýnd kl. 2 og 4.
Miðasala frá kl. 1.
plastriðið
Nútima þjóðsaga frá Svi-
þjóð, sem hefur vakið verð-
skuldaða athygli og fengiö
mikið lof.
Leikstjóri: Tage Danielsson
Aðalhlutverk: Max von
Sydow, Monica Zetterlund.
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Siðasta sinn.
Litmynd um hina heims-
frægu brezku hljómsveit
Slade, sem komið hefur
hingað til lands. Myndin er
tekin i Panavision. Hljóm-
sveitina skipa: Dave Hill,
Noddy Holder, Jim Lee, Don
Powell.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Barnasýning kl. 3:
Tarzan og
bláa styttan
Mánudagsmyndin:
Njósnarinn ódrepandi
Le Magnifique
Mjög spennandi og gaman-
söm, ný frönsk kvikmynd i
litum.
Aðalhlutverk: Jean-Paul
Belmondo og Jacqueline
Bisset.
Ekstra Bladet -Mt-k-k-k-k
B.T.-k-k-k-k
ISLENZKUR TEXTI.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
3*3-20-75
Paddan
Bug
Æsispennandi ný mynd frá
Paramount gerð eftir bók-
inni „The Hephaestus
Plague”. Kalifornia er
helzta landskjálftasvæði
Bandarikjanna og kippa
menn sér ekki upp við smá
skjálfta þar, en það er
nýjung þegar pöddur taka að
skriða úr sprungunum.
Aðalhlutverk: Bradford Dill-
man og Joanna Miles.
Leikstjóri: Jeannot Szware.
íslenzkur texti
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 9 og 11.
Maður nefndur Bolt
Endursýnum þessa frábæru
karatemynd kl. 5 og 7.
Bönnuð börnum.
Barnasýning kl. 3.
Litli prinsinn
3*1-15-44
Með djöfulinn á
hælunum
Æsispennandi ný litmynd um
hjón i sumarleyfi, sem verða
vitni að óhugnanlegum at-
burði og eiga siðan fótum
sinum fjör að launa. í mynd-
inni koma fram nokkrir
fremstu „stunt” bilstjórar
Bandarikjanna.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Hrói höttur
og kappar hans
Mjög skemmtileg og spenn-
andi ævintýramynd með
ISLENZKUM TEXTA
Barnasýning kl. 3.
Ofstæki
Spennandi og sérstæð, ný
bandarisk litmynd um trúar-
ofstæki og það sem að baki
leynist.
Aðalhlutverk: Ann Todd,
Patrick Magee, Tony
Beckley.
Leikstjóri: Robert Hartford-
Davies.
ISLENZKUR TEXTI.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
"lönabíö
3*3-11-82
Neðanjarðarlest
í ræningjahöndum
The Taking of
Pelham 1-2-3
Spennandi ný mynd, sem
fjallar um glæfralegt mann-
rán i neðanjarðarlest.
Aðalhlutverk: Walter
Mattheu, Robert Shaw
(Jaws), Martin Balsam.
Hingað til bezta kvikmynd
ársins 1975. Ekstra Bladet.
Bönnuð börnum innan 14
ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Með lausa skrúf u
Hörkuspennandi og spreng-
hlægileg mynd með IS-
LENZKUM TEXTA.
Sýnd kl. 3.
Glötuð helgi
Itölsk sakamálarhynd með
ensku tali og islenzkum
texta.
Aðalhlutverk: Oliver Reed
og Marcelio Mastroianni.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Litli Indíáninn
Disneymyndin vinsæla.
Barnasýning kl. 3.