Tíminn - 19.09.1976, Blaðsíða 29

Tíminn - 19.09.1976, Blaðsíða 29
Sunnudagur 19. september 1976. TÍMINN 29 leikur. Þaö kemur tram i skyrslu Willy Mangolds, aö þessiiþrótt sé á góðri leið með að jafnást á við fjallaklifur og kappakstur hvað fjölda dauðaslysa snertir. Þessi ótakmarkaða auglýsingastarf- semi framleiðendanna ýtir undir það, að kennarar, jafnt sem nem- endur, vanvirða öryggisreglurn- ar. Kæruleysi býður hættunni heim . Dr. Seemann varar við þvi aðbörnættu ekki að byrja að kafa fyrr en þau eru oröin a.m.k. sex- tán ára og eftir 30 ára aldur skyldi enginn byrja, og aldrei án þess aö hafa ráöfært sig við lækni fyrst. 1 júni siðastliðnum fann þyrla lik Dieters Lippitsch, 26 ára kenn- ara, i Eystrasaltinu. Hann hafði flækt öndunarleiöslurnar i álaneti og drukknað. Hann hafði ekki fyglt tveim grundvallarreglum kafara,þ.e. aðkafa aldrei einn og að forðastfiskanet, ogþvi fórsem fór. Peter Kuhnert lögreglumaö- ur ætlaði að, kafa með kennara sinum Hans Flaskamp niður á fimmtiu metra dýpi i hafinu úti fyrir Mexikó til að tina svarta kóralla. Á leiðinni upp braut hann þá reglu að lita aldrei af felaga sinum og vera ætið i sjónmáli. Þegar Flaskamp kom upp beið hann eftir Kuhnert, en án árang- urs. Lik hans fannst'ekki fyrr en nú fyrir skömmu. I Miðjarðar- hafinu drukknaði köfunarkennari sem aleinn og án öryggislinu, hafði kafað niður að skipsflaki. Þegar hann synti inn i eina ká- etuna, skelltust dyrnar allt i einu aftur og læstust, þannig að hann sat fastur og átti sér engrar undankomu auðið. Dr. Karl-Hans Klockmann hefur gefið út skýrslu, þar sem hann fullyrðir, að i flestum þeim tilfellum, þegar slys verða neðan- sjávar, sé um að kenna ónógum undirbúningi og kæruleysi. Það er aðeins i undantekningartilfellum, að súrefnisflöskur springa, að slys hljótastaf kafarahnifum eða öndunartæki bregðist. Þá eru lika talin með i skýrslunni árásir há- karla. Það sem er sérstaklega hættu- legt, bæði fyrir áhugamenn sem og atvinnumenn, vegna þess hve óútreiknanlegt þaö er, er svokall- að — djúpæði — . Þar byrjar á u.þ.b. 40 metra dýpi og verxar eins og þrir tvöfaldir konjaks- sjússar á fastandi maga, eftir þvi sem dr. Seemann segir. A fjörutiu metra dýpi andar maðurinn að sér fjórum sinnum meira lofti, og þar af leiðandi fjórum sinnum meira kolvetni heldur en ofan- sjávar. Þessi aukning eiturs i blóðinu leysir fituefnin i tauga- vefunum sérlega fljótt upp, og virkar þetta hraða fitutap eins og lost á liffærin. Þeir sem verða fyrir þessu, fyllast allt I einu ó- beizlaðri dirfsku og fá undarleg- ustu grillur. Þeir rifa ef til vill af sér grimuna, vilja gefa fiskunum loft eða kitla félags sina með hnifnum sinum. Það eina sem hægt er að gera i þessum tilfell- um, er aö fara strax upp. Samt veröur að gæta þess að fara ekki of hratt, þvi að likaminn þarf á- kveðinn tfrna til aö jafna þrýst- inginn á lungunum. Til dæmis má sá, sem hefur verið tólf minútur á 40 metra dýpi, aðeins hækka sig upp að sex metra mörkunum fyrst. Þar veröur hann að blða i fimm minútur og siðan má hann hækka sig um þrjá metra. Þar • verður hann aftur að biöa I fimm minútur og getur þá loks farið upp á yfirborðið. Allir sem ætla að fara hraðar, taka áhættuna á þvi, að lungu þeirra rifni, en þaö er venjulega banvænt. Þá er lika hætta á kafaraveiki, en þeir sem fá hana, verða samstundis að fara i þrýstiherbergi eftir að þeir koma upp. Ef það gagnar ekki, biður þeirra annað hvort dáuðirin eða örkuml. Köfunarveikitilfelli finnast á hverju ári á nær öllum köfunar- stöövum. En þrátt fyrir þaö, er aðeinsum þriðjungur þeirra, sem, hafa slik þrýstiherbergi. Hinarláta undir höfuö leggjast að' faraúti fjárfestingarnar, sem þvi’ er samfara að fá slik herbergi, þwíitt fyrir mikilvægi þeirra. Þess vegna gefur dr. Seemann öllum áhugaköfurum það ráð að fara aðeins á þær stöðvar, þar sem slikur útbúnaður er. Ef þeir færu eftir þessu, neyddust hinar til að fá sér svona herbergi, ef þær ætluðu að vera áfram i sam- keppninni, ella lýsa sig gjald- þrota. (J.B. þýddiog endursagöi.) Til er fólk, sem heldur að því meir sem hljómtæki kosta, þeim mun betri séu þau. Að vissu leyti er þetta rétt, ef orðið „betra" þýðir að þér getið spilað fyrir allt ná- grennið án bjögunar. <3ZsZ22> framleiðir einnig þannig hljómtæki. En við höfum einnig á boðstólum hljómtæki sem uppfylla allar kröfur yðar um tæknileg gæði. • Magnari sem er 30 wött meö innbyggöu fjögurra- viddakerfi fyrir fjóra hátalara. Mjög næmt útvarpstæki meö FM bylgju ásamt lang- og miðbylgju. • Plötuspilari fyrir allar stæröir af plötum. Sjálfvirkur eöa handstýranlegur meö vökvalyftu. Allir hraöar, 33, 45 og 78 snúningar. Nákvæm stilling á armþyngd, sem er mikilvægt til að minnka slit á nál og plötu. Segulbandstæki með algerlega sjálfvirkri upptöku. Gert bæöi fyrir Stand- ardspólur og Cr02 spólur. Upptökugæöi einstök, ekki er heyranlegur munur á gæöum hvort spiluð er plata eöa segulbandsspóla. LAUSNIN ER <325X22^ SHC 3100 sambyggðu hljómtækin. Þér fáið sambyggt mjög vandað tæki, sem hefur að geyma allar kröfur yðar. Tveir hátalarar fylgja 20 wött hvor, einnig fylgja tveir hljóönemar ásamt Cr02 casettu. VERÐ NÓATÚNI, SÍMI 23800,\®Ú®IRNARl KLAPPARSTÍG 26, SÍMI1980o/ ^ J Útboð Stjórnarnefnd Fjölbrautaskólans i Breið- holti óskar eftir tilboðum i smiði innrétt- inga i verkstæðishús Fjölbrautaskólans i Breiðholti. tJtboðsgagna má vitja á teiknistofuna Arkhönn s.f., Óðinsgötu 7 Reykjavik, frá þriðjudeginum 21. september 1976, gegn 10 þús. kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skilað á teiknistofuna Arkhönn s.f., óðins- götu 7, i siðasta lagi fimmtudaginn 30. september 1976 kl. 11, þar sem þau þá verða opnuð. Húsmæðraskólinn Hallormsstað tilkynnir 5 mánaða hússtjórnarnámskeið hefst við skólann 6. janúar 1977. Aðalkennslugreinar: matreiðsla, ræsting, fatasaumur og vefnaður auk bóklegra greina. Námskeið i vefnaði og fatasaum verða jafnframt eftir áramót og verða þau aug- lýst siðar. Upplýsingar gefnar i skólanum. Skólastjóri.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.