Tíminn - 19.09.1976, Page 33

Tíminn - 19.09.1976, Page 33
Sunnudagur 19. september 1976. TÍMINN 33 strax. Þær skildu ekki dropa eftir, og ekkert vatn var þeim ætlað til að þvo sér úr. Nú hafði Berit not af þeim fáu orðum, sem hún hafði lært i arabisku á ferðum sinum með Ibrahim og Abdullah. ,,Min fadlak maiyeh” (mér gef vatn), sagði Berit við unga Arabann og benti um leið á ó- hreinar hendur sinar og andlit. Arabinn brosti og fór aftur, en kom bráð- um aftur með trébala fullan af vatni og lét á kofagólfið hjá þeirri. „Kattar kheirak” (þakka kærlega), sagði Berit. Þótt þær hefðu hvorki bursta eða sápu, þá fannst þeim þó regluleg nautn að geta þvegið sig háttog lágt. Berit fannst jafnvel, að hún hefði aldrei notið þess eins vel að fara i bað og hún naut þess nú, að þvo sér upp úr þessum bala, þótt þær yrðu allar að nota sama vatnið. Þær áttu mjög erfitt með þetta, þar sem þær voru hlekkjað- ar saman og þvotturinn varð hálfgerður kisu- þvottur, einkum um hálsinn, en erfiðast átti þó frú Alice, og varð hún að láta hinar þvo sér og þerra eins og hún væri ó- málga barn. En hvað sem þessu leið, þá fannst þeim öllum, að þær hefðu lifnað og hresst við þetta fátæk- lega bað. Það voru nokkur pálmatré i kringum kof- ann. Inn milli trjánna var dálitill bekkur. Þar gátu þær tyllt sér niður hlið við hlið. Hvað gátu þær annars gert? Þeim var alveg fyrirmuriað að taka sér nokkum hlut fyrir hendur. Þegar þær höfðu setið þarna um stund, kom litil, snotur stúlka til þeirra. Hún var fyrst feimin og hæglát, en smátt og smátt kom hún nær og fór svo að þukla á hlekkjunum á höndum frú Alice og lyfta þeim upp. „Kawi tekil. Kawi tekil” (mjög þungt), sagði hún hvað eftir annað. „Ismak ei?” (hvað heitir þú), spurði Berit. „Ismi Suleika” (nafn mitter Suleika), svaraði unga stúlkan. Berit sá það á framkomu ungu stúlkunnar, að hún kenndi i brjósti um þær og vildi vera þeim góð. Og þótt hún gæti ekki hjálpað þeim til að flýja, þá gat hún alltaf stytt þeim stundir. En þær fengu nú ekki að tala meira við hana um sinn, þvi að nú kom Arabinn aftur. Þegar hann sá litlu stúlkuna hjá þeim, rak hann hana burt, en gaf föngunum merki um að koma með sér. Var nú farið með þær inn á sölutorgið i miðju þorpinu, og var þar fyrir fjöldi fólks. Þótt þær ættu mjög erfitt með ganginn, þá fannst þeimþó tilbreytni i þvi að hreyfa sig. Þær fengu lika i þessari ferð að sjá þetta fólk, sem hafði lagt þær i fjötra. Þessi ættstofn eða þjóðflokkur, sem býr á þessum slóðum, var á þeim timum þekktur um alla Norður-Afriku aust- anverða fyrir rán, grip- deildir og árásir. I upp- reisninni i Sudan árið 1880 voru „Baggamir”, en það heitir þessi ætt- stofn, æstustu og grimmustu foringjarnir. Var það mest þeirra sök, hve uppreisnin var við- tæk og hve erfitt var að bæla hana niður. Bagg- ararnir em óvenjulega vel vaxnir menn. Þeir eru háir, grannvaxnir en þó kraftalegir, og minn- ir vöxtur þeirra á lik- neski af afreksmönnum fomaldarinnar. Þeir eru dökkbrúnir á hömnd og sumir nær þvi svartir, en sjálfir halda þeir þvi fast fram, að þeir séu af kynkvisl Araba, en ekki af svertingjaættstofni, en þó sjást hjá þeim mjög fá einkenni Semita. Eins og flestar hálf- villtar þjóðir, em þeir mjög skrautgjamir og sækjast mjög i arm- bönd, hringa og alls kon- ar skartgripi, jafnvel þótt þeir séu úr lituðu gleri. Styrjaldir og ráns- ferðir eru þeirra yndi. Enginn þjóðflokkur i Norður-Afriku hefur átt i jafnmörgum styrjöld- um og smáskæmm og þeir. Þeir eru stöðugt i striði og ræna og rupla nágranna sina. Hemað- ur og ránsferðir eru hjá þeim sama og jarðrækt og fiskveiðar hjá öðrum þjóðum. Berit gat gert sér nokkra hugrriynd um þessa atvinnuvegi þeirra, er hún kom á Lágu haustfargjöldin okkar lengja sumaríð hjá þér 30% lækkun á fargjöldum býöur upp ásumarauka fyrir okkartil Evrópu á tímabilinu þig í stórborgum Evrópu. 15. september til 31.október, flucféiag LOFTLEIDIR /SLAJVDS Félðg með eigin skrifstofur í 30 stórborgum erlendis

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.