Tíminn - 19.09.1976, Qupperneq 36
36
TÍMINN
Sunnudagur 19. september 1976.
TÍMA- spurningin
— Ætlar þú að sækja leikhús i vetur?
Sigriöur Thorlacius, formaöur Kvenféiagasambands tslands: —
Já ég ætla aö gera þaö. í augnablikinu er þaö leikrit Guömundar
Steinssonar sem vekur áhuga minn, en þaö leikrit veröur frum-
sýnt rní á næstunni.
Bjarni Jónsson, teiknari: — Hingaö til hef ég ekki gert þaö, en
ætla aö láta veröa breytingu þar á i vetur.
Carl Möller, hljóöfæraleikari: — Nei, en ef veröur sýnd ópera I
þjóöleikhúsinu, má vel vera, að ég fari.
örlygur Jónatansson, tæknifræöingur: — Hef ekki ákveöiö þaö,
en þaö gæti vel hugsazt.
Nina Þóröardóttir: — Ef þaö veröa góö leikrit, þá á ég viö annaö
en þessi framúrstefnuleikrit.
lesendur segja
Þórður Valdimarsson, stjórnmólafræðingur:
HINN ÓTTALEGI
HERNAÐARLEYNDARDÓMUR
Kæri Páll Pétursson alþingis-
maður.
Þér komið réttilega inn á það I
helgarspjalli yðar i Timanum —
A að selja fjallkonuna — aö
blekkingar og ósannsögli
Nixons forseta i Watergate-
málinu, hafi haft ill áhrif á
bandariskt þjóðlif. Það er
hverju orði sannara. En þvi
miður er alveg það sama uppi á
teningnum i landi Fjall-
konunnar góðu. Það er ekki nóg
með, að þjóðin sé að ástæðu-
lausu leynd sannleikanum um
eðli þeirrar geigvænlegu iiættu,
sem hún er i, heldur lætur
utanrikismálaráðherra þing-
menn reika um i villu og svima i
þessu örlagarika máli.
Það er i sannleika átakanlegt,
að jafngreindur og þjóðhollur
þingmaður og þér eruð, skuli
gera sig að hálfgerðu fifli á
prenti, vegna þess að þér hafið
ekki fengið réttar upplýsingar,
og eruð látinn halda, að hin
eiginlega hætta stafi af varnar-
stöðinni, og þeim tólum, sem
þér segið að þar séu.
Ég sé af þessu, og fleiru sliku,
að það muni ekki vera seinna
vænna, að þing og þjóð séu leidd
i allan sannleikann, enda eru
vissar breytingar að verða i
hernaöarstöðunni, sem gera
það mjög aðkallandi.
Yður finnstlltið til um þá hug-
mynd að láta fullkomna vega-
kerfið, og fleira, til að flýja,
þegar I óefni er komið, eins og
þér orðið það, og komið með hið
gamla þjóðráö Fram-
sóknarflokksins aö láta herinn
fara i áföngum. Já, mikið væri
það dásamlegt, ef ekki þyrfti nú
annað og meira til að bægja
hættunni frá Islandi en láta
herinn fara, en þvi er nú ekki aö
heilsa. Hin eiginlega hætta er
sem sé i engu sambandi við her-
stöðina!
Hún felst i þvi, að tsland er i
miðju svokölluðu „kverkataks-
svæði”, og er vegna stað-
setningar sinnar og staðhátta á
svæðinu Grænland, Island, Fær-
eyjar, Skotland, Noregur á
mikilvægasta hernaðarsvæði á
öllu Atlantshafi. Engin leið er til
þess að Natolönd geti haft alger
yfirráð á öllu hinu viðfeðma
Atlantshafi. Sovézkir kafbátar
meðeldflaugarinnanborðs gætu
athafnað sig á þvi. En á um-
ræddu svæði er unnt að hafa
alger yfirráð i styrjöld, og þau
yfirráð á Atlantshafi, sem
möguleg eru, eru i nánu sam-
bandi við umrætt „kverkataks-
svæði”. Þetta þýðir það, að i
heimsstyrjöld hlytu aðalátökin
milli kafbáta striðsaðila, en þeir
eru búnir fullkomnustu
kjarnorkuvopnum, að verða allt
umhverfis Island. Hernaðar-
áætlun Nato hljóðar lika upp á
það og gæti i rauninni ekki verið
öðruvisi vegna þeirra sérstöku
staðhátta, sem eru á umræddu
svæði. Island er i þessari mikil-
vægustu viglinuisjóstriöi, hvort
sem okkur likar betur eða verr,
og það er eitt af þvi, sem kemur
ekki til með að breytast.
1 „kverkatakssvæðinu” felst
óhemju stríðsöftrun, svokölluð.
Herfræðingar Sovétrikjanna
vita, að það er mikilvægast I
striðinu um Atlantshafið.
Siðustu æfingar þeirra við
Island, eða réttara sagt, fyrir
norðan þetta svæði, voru I
rauninni æfing á hugsanlegu
striði um þessa örlagariku vig-
linu. Annað mikilvægt
„kverkatakssvæði”, að visu
langt frá þviað vera eins algert
og afgerandi, er Spánn,
(EFLAVIHllRFLUIiVULLlJR
VARÐSTÖO
LOGC/EZLA
TOLLU/EZLA
CHECKPOINT
Portúgal og Azoreyjar. Við-
brögð Spánarstjórnar, sem er
sæmil. inni i nútimahernaðar-
visindum, voru þau að gera
samninga um margar her-
stöðvar Bandarikjanna á Spáni.
Hún krafðist þess, að þar væru
höfð kjarnorkuvopn til að
granda kafbátum. Þó að um-
ræddur samningur tryggi ör-
yggi Spánar engu siður en
Bandarikjanna og alls hins
vestræna heims, lætur Spánar-
stjórn Bandarikin borga offjár
og notar það fé til að firra þjóð
sina þeim vanda, sem skapast
af staðháttunum undan
Pýreneaskaga. Þar er föður-
landsástin sýnd I verki, ekki
innantómu orðaskvaldri. Ég
vona, að þetta sannfæri yður um
það, að kröfur minar um full-
komnun á vegakerfinu eru ekki
út i bláinn. Aðrir möguleikar
eru svo sem til. Það væri ef til
vill hægt að flytja alia islensku
þjóðina búferlum til Banda-
rikjanna i upphafi átaka, en það
er mikið verk og útheimtir
skipulagningu. Þó að heims-
styrjöld brytist út og geisaði
umhverfis land vort, aðallega
fyrir norðan það, gæti mikill
Wuti þjóðarinnar lifað það af, ef
rétt er að farið, en eins og verið
hefur til þessa, get ég helst likt
hlutskipti islensku þjóðarinnar
við sauðfé, sem leitt er til
slátrunar, ef svo illa tækist til,
að heimsstyrjöld brytist út.
Likurnar á þvi eru að minu mati
ekki miklar, ef til vill 6% og
munu færast niður i 3% eftir að
löndin hafa verið gerð að kjarn-
orkuvopnalausum svæðum.
Þér virðistfrekartil vinstri en
hægri.svoað égætla aðskreppa
meðyður til Sovétrikjanna til að
huga þar að almannavörnum.
Þar er sérstakur aðstoðarher-
málaráðherra, sem ekki gerir
annað en vaka yfir þvi að vega-
og samgöngukerfi sé brúklegt
til meiriháttar fólksflutninga.
Hann lætur lika gera flótta-
mannaborgir og búðir. Allar
þjóðir huga að almannavörnum
nema við. Hér er lausnin algert
sinnuleysi, sem er viðhaldið
með þvi að gefa þjóðinni ekki
réttar upplýsingar um mál, sem
hún á heimtingu á að fá að vita
skil á.
Nú vildi ég biðja yður, minn
góðiPáll, um að biðja utanrikis-
málaráðherra að gefa þér
skýringu á þvi af hverju hann
þegir um þessi mál og leynir þig
og aðra þingmenn þessu. Ég sé
enga hernaðarlega nauðsyn á
þvi. Það er betra, bæði fyrir Is-
lendinga og Nató að þjóðin viti
IMILICE
CIISTOMS
nákvæmlega hvernig málin
standa og geti hagað sér eftir
þvi. Ég held, að fólk almennt i
landi elds og isa hafi fullt eins
góðar taugar og Einar Agústs-
son tii að risa undir þessari vit-
neskju. Eða gæti verið að Nató
og bandariska hermálaráðu-
neytið hafi leynt Einar Agústs-
son og alla aðra utanrikismála-
ráðherra vora þessum sannind-
um? Þarna eru spurningar, sem
háttvirtur ráðherra getur
spreytt sig á að svara, og hafi
hann ekki þeim mun betri svör,
þá gæti hann ef til vill fariö að
fordæmi Nixons og sagt af sér.
Gæti hann ekki t.d. dubbað
sjálfan sig upp i sendiherra I
Kanada eða Suður-Ameriku? Ef
til vill stæði hann sig betur I þvi
starfi en sem utanrikisráð-
herra.
Stundum hafa sósialistar
verið að tala um að gera Evrópu
að kjarnorkuvopnlausu svæði.
Ég get glatt þá með þvi, að
þróunin i vopna- og hermálum
hefur verið slik, að hin stóru,
langdrægu kjarnorkuskeyti á
landi eru i rauninni orðin úrelt,
eins og seglskipin urðu, þegar
gufuskip komu til sögunnar.
Það má þvi búast við þvi, að
risaveldin semji um það sih á
milli á næstu3til 4árumaðgera
öll lönd að kjarnorkuvopnalaus-
um svæðum, þ.á m. auðvitað
Bandarikin og Sovétrikin. Sókn
og vörn með kjarnavopnum
myndi þá öll byggjast á
kjarnorkuskeytum, sem komið
væri fyrir um borð i skipum,
sem eru miklu heppilegri lausn
þar sem ekki er möglegt að
komastað hvar eru niðurkomin.
Framfarir i skeytabúnaði eru
þegar orðnar stórkostlegar.
Þessi þróun mála er að mörgu
leyti góð og opnar möguleika á
að stöðva vigbúnaðarkapp-
hlaupið og finna heppilegt
hernaðarjafnvægi risaveld-
anna. ókosturinn fyrir tsland er
sá að þetta eykur enn á mikil-
vægi hafanna og ekki hvað sizt
hernaðarlega mikilvægustu
svæðanna. Þvi er okkur hollast
að hegða okkur eins og skyn-
samt fólk, en hafa þaðekki eins
og strúturinn, sem mætir
hættunni með þvi að grafa haus-
inn niður i sandinn til að sjá
hana ekki. Hin mikla sókn
Sovétrikjanna á haf út er i sam-
bandi við umrædda breytingu á
staðsetningu kjarnavopna.
Enda hafa þau ekki linnt látum
fyrr en þau eru orðin annað
mesta sjóveldið i heiminum. Og
er I rauninni ekkert nema gott
um það að segja.