Tíminn - 19.09.1976, Síða 40

Tíminn - 19.09.1976, Síða 40
---------------------------------- Su iinuriagur 19. september 1976. - FÓÐURVÖRUR þekktar UM LAND ALLT fyrir gæði Guöbjörn Guöiónsson Heildverzlun Siöumúla 22 Simar 8S694 8, 85295 LEIKFANGAHÚSIÐ Skólavörðustig 1 0 - Simi 1-48-06 Ævintýra- maðurinn Póstsendum Skriðdrekar Þyrlur Jeppar Bátar f ALLAR TEGUNDIR" FÆRIBANDAREIMA FYRIR '&rs/u Einnig: Færibandarcimar ur ryðfriu ng galvaniseruöu stáli ÁRNI ÓLAFSSON & CO. 40088 40098 —m* Húsavík Rætt við Hauk Harðarson bæjarstjóra Blaðburðar fólk óskast Tímann vantar fólk til blaðburðar i eftirtalin hverfi: Laufásvegur Eskihlíð ' Túnin Suðurlandsbraut Laugarásvegur Langagerði Tunguvegur Löndin Fellin SÍMI 1-23-23 FB-Reykjavik. Miklar fram- kvæmdir standa yfir á Húsavik, ogeru ráögerðar á næstu mánuö- um og árum, eins og fram kemur i yfirliti Hauks Haröarsonar bæjarstjóra á Húsavík, sem hér fer á eftir. Er hér um aö ræöa framkvæmdir, sem bærinn stend- ur einn aö, og sömuleiöis i félagi viö aöra aðila. Lokiöer viö viðbyggingu viö ú- haldahúsið, og þar er búið að koma á fót rörasteypu, þeirri einu áaustanverðu Norðurlandi. Byrj- að var aö steypa þar rör i vor, og hafa þau reynzt ágætlega. Þá hefur veriö unniö að öörum áfanga við gagnfræðaskólann. 1 þvi húsi er aðstaða fyrir kennara á efri hæð, og á neðri hæð er að- staða fyrir sjóvinnunámskeið og leirbrennslu og fleira slikt. Til bráðabirgða verður sett þar upp þrekþjálfunartæki, sem notað veröur við iþróttakennslu, vegna þessab aöstaða er mjög léleg fyr- ir þá kennslu. Með þessu verður hægt að létta á iþróttasalnum, sem fyrir hendi er, og er mjög lit- ill. Þessi bygging gerir skólann mun hæfari til þess að mæta þeim kröfum, sem gerðar eru í sam- bandi við valgreinar i nýju fræðslulögunum. Tii dæmis er meiningin, að iðnskólinn komi þarna sem valgrein innan þess- ara vébanda. Þá er eftir aö byggja þriöja áfanga við gagn- fræðaskólann, sem er verknáms- deildin. Þá fyrst verður hann fær um aö sinna sinu hlutverki að fullu. Dagheimili og leikskólar A siöasta ári hófum við bygg- ingu á nýju dagheimili. Þetta er dagheimili fyrir 68 börn, ásamt vöggustofu, og er það gert eftir staðlaðri teikningu frá mennta- málaráðuneytinu. Ætlunin er, aö þetta hús veröi fokhelt i vetur, þó ekki fyrir áramót. 1 dag er starf- andi á Húsavik dagheimili, sem rúmar 30 börn, og þar að auki er leikskóli i bráöabirgðahúsnæði. 1 veturgátum við annað eftirspurn eftir dagheimilaplássum, en það mun tæplega vera hægt að segja, að svo sé lengur. Á árinu 1974 hófum við bygg- ingu 10 leiguibúða i blokk. Þær voru afhentar s.l. vetur. Við höf- um hugsað okkur aö byrja á næstu tiu ibúöum i sambandi viö þær 1000 leiguibúðir, sem áætlun hafði verið gerð um á vegum rikisins. t okkar hlut féllu 35 ibúð- ir af þeim. Við höfum þó ekki fengiðaö byrja á framkvæmdum, enda þótt viö höfum fengið leyfi til að hefja tæknilegan undirbún- ing, og séum tilbúnir að byrja. Litur nú út fyrir, að við fáum ekki að hefjast handa i ár, og er það verr. Byggingarframkvæmd- ir Á siöasta ári var fullgerð hér 21 ibúð, 54 voru i smiöum um siöustu áramót og úthlutað hefur verið lóðum fyrir um það bil 40 ibúðir á þessu ári. Ekki hefur þó verið hafizt handa um framkvæmdir nema á sumum þeirra. Auk þess er verið að úthluta lóðum undir trésmiöaverkstæöi og steypustöö. Vegagerðin hefur fengið lóð fyrir aðstöðu sina. A vegum kaupfélasins er verið að byggja efnalaug, og hún er tekin tii starfa. Fiskiðjuverið hef- ur verið með i smlðum saltfisk- verður 55 milljónir króna. Á móti fáum við svo nokkrar tekjur af gatnagerðargjöldum, sem viö lögðum á i fyrsta skipti i fyrra, þ.e. B-gjöld, gjöld vegna bundins slitlags. Við höfum hins vegar lagt á þessi svokölluðu A-gjöld, sem eru þau lóðagjöld, sem menn þekkja i Reykjavik. Þau hafa verið lögö á hér þrisvar. Þjóðvegurinn færður Gerter ráð fyrir, að þjóðvegur- inn i gegn um bæinn veröi færður niður á Sjávarbakkann. Þá verö- ur að byggja brú yfir svokallað Búðarárgil. Við höfum aðundan- förnuverið að undirbúa þessa til- færslu á þjóðveginum, með þvi að kaupa upp fasteignir, sem yfir- leitt eru gamlar og lélegar, á þessari leið. Af okkar hálfu er ekkert aö vanbúnaði að fara i þessa brúarbyggingu strax á næsta ári. Þetta er hins vegar fjárveiting frá Alþingi, sem stendur undir framkvæmdinni, og leggjum við mikið kapp á að flytja þjóðveginn sem fyrst, vegna þess að þetta er mikil út- litsbreyting á bænum, sem opnar útsýni yfir hafnarsvæðið, þegar menn koma inn i bæinn að sunn- an, sem hefur ekki verið alveg op- ið, eins og þjóðvegurinn hefur legið. Ég tel það eitt mesta jafnréttis- mál að ljúka götum úti i dreifbýl- inu. Ég flutti úr Reykjavik, og fann ekki fyrir nokkru eins mikiö ogþvi, hvað göturnar voru slæm- ar. íþróttamannvirki Við höfum verið hér með ágætis malarfótboltavöll undanfarin ár, en höfum jafnframt verið aö vinna aö gerð grasvallar,þar sem einnig verður aðstaða fyrir frjáls- ar iþróttir. Nýlega er lokið viö að þekja grasvöllinn, svo að hann verður tilbúinn til notkunar næsta vor, en spurning er, hvort okkur tekst að fylla i hlaupabrautirnar nú i haust, þar sem kostnaður hefur reynzt meiri en reiknað var með. A næsta ári verður þessu lokið, og þá ætti að vera komin aðstaða fyrir frjálsar iþróttir og vonandi ágætis grasvöllur. Við höfum hér tvær togbrautir. Onnur er nokkurra ára en hin var sett upp fyrir tveim árum. Viö höfum verið að endurbæta að- stöðuna við þessa nýju togbraut og vorum að setja upp lýsingu seinni partinn i vetur. Hún kom þó ekki að gagni þá, þar sem snjórinn fór jafnhliða hjá okkur. Þetta gjörbreytir aðstöðunni, þvi að við höfum haft skamman notkunartima við nýrri brautina fram að þessu. Þegar hefur þessi bætta skiða- aðstaða skilað sér i miklum fram- förum skiðamanna. Hér eru á- gætis skiðamenn, og sjást nöfn þeirra, þegar skiðakeppni er haldin einhvers staðar. Hér höfum við eins og er aðeins litinn leikfimisal, sem er i barna- skólanum, og var byggður i kringum 1960.Salurinn er 10x20 m að stærð, og engan veginn fær um aðsinna þeim verkefnum, sem til er ætlazt i dag. Við höfum i mörg ár reynt að koma inn hjá fjárveit- inganefnd heimild til þess að hefja byggingu iþróttahúss af stærðinni 22x44 m, en það hefur ekki tekizt. Góður íþróttaárangur Við getum ekki lengur sinnt kennsluskyldu i iþróttum vegna húsnæðisleysis, og einnig er erfitt fyrir fullorðna að stunda hér iþróttir. Unglingar hafa þó náð ágætum árangri i bolta-iþróttum hér. Ég var með unglinga úti i Alaborg i fyrra, og þar kepptu unglingar frá 12 löndum. Þar unnu strák- arnir frá okkur handboltann inn- an húss, og stelpurnar voru núm- er tvö i handboltanum. Sömu strákar voru svo númer þrjú i fót- boltanum, svo aö árangur hefur orðið góður hér, þótt aðstaðan hafi ekki verið upp á það bezta. Þess vegna tel ég að unglingarnir eigi skilið að fá gott iþróttahús. Stúlkurnar eru svo búnar að vinna Islandsmótið i annarri deild i handbolta utan húss. Við erum hér með sundlaug, sem tekin var i notkun i kringum 1960. Hún er ekki stór. Viö höfum verið að láta gera áætlun um heildarframkvæmdir á sundlaug- arsvæðinu, sem hljóðar upp á liaukur llarðarson. nokkuðá annað hundrað milljónir króna. Er þar um að ræða stækk- un á laug, og stækkun á gufuað- stöðu, og búningsklefum fyrir i- þróttasvæðið, en þeir eru hinum megingötunnar. Við förum ekki i aðrar framkvæmdir við laugina i sumar, en nú er verið að búa til heitan pott, sem stendur til að setja niður i haust. Ef litið er á heildarframlög til iþróttamála, þá eru það 7 milljón- ir króna, sem við leggjum til eignabreytinga, fyrir utan rekstr- arstyrki. Við höfum ágætt samstarf við lþróttafélagið Völsung, sem stendur hérfvrir iþróttamálunum öilum. Framkvæmdir á vegum Húsavikurbæjár i samstarfi við aðra Við höldum áfram að innrétta safnahúsið, sem byggt var fyrir nokkrum árum. Þar hefur bóka- safnið verið starfrækt i tvö til þrjú ár. Verið er að setja upp náttúrugripasafnið. I þetta þurf- um viö að leggja töluvert fé, ‘ásamtþvi, sem sýslan leggur til. Stöðugt er unnið við félags- heimilisbygginguna, og þar leggjum við árlega fram talsvert mikið fé. Við stefnum að þvi að geta farið að byggja leikhús- álmuna, en aðeins er byrjað á anddyri hennar, en nú stendur á heimild til þess að hægt sé að byrja. Framhald á bls. 39. Húsavík. verkunarhús mikiö, sem rétt er verið að byrja að nota. Oliu malarlagning A siðast liðnu ári blönduöum viö oliumöl hér á staðnum. Lögð um við oliumöl á rösklega 13.400 fermetra af götum. Þar að auki eigum við verulegar birgðir af oliumöl, sem nægja munu I annað eins, eða helmingi stærri áfanga en þetta. Miðfell hf. blandaði þessa oliumöl fyrir forgöngu bæj- arins, og i samstarfi viö Kröflu- virkjun og Skútustaðahrepp. Við reyndum samstarf við vegagerðina um blöndun á oliu- möl i sambandi við það, að hér sunnan við bæinn er það mikil umferö, að vegurinn er kominn i hraöbrautaflokk. Fordæmi voru fyrir sliku samstarfi annars stað- ar á landinu, en þvi miður tókst ekki að koma þvi á. Breytt útlit bæjarins Af gatnaframkvæmdum i ár er það að segja, að fyrst og fremst hefúr verið stefnt aðþvi að steypa gangstéttirmeö þeim götum, sem lagðar voru slitlagi i fyrra, og öðrum, sem ekki var búið að ganga frá gangstéttum við. Sömuleiðis höfum við gengið frá graseyjum við sömu götur, og ó- hætt er að segja, að þetta er al- gjör bylting á útliti bæjarins, hvað frágangsnertir.Sérstaklega er breytingin i kringum félags- heimilið og hótelið áberandi. Þar höfum við gengið frá umhverfinu i sumar. Við stefnum að þvi að steypa bilastæði viö Landsbank- ann og Póst og sima nú i haust, sem einnig mun hafa mikið gildi i sambandi við útlit bæjarins. Verið er að skipta um jaröveg i Garðarsbraut, sem er aðalgatan út úr bænum eins og er, og er stefnt að þvi að steypa þá götu i haust alveg suður úr bvggðinni. Þá höfum við lagt eina nýja götu, Litlagerði. Þar var úthlutað lóðum, og er verið að byggja ein- býlishús á þeim. Þá er það tengi- gatan Þverholt, sem tengir Suð- urbæinn betur við þjóðveginn i gegnum bæinn. Heildarfjárveit- ing i sambandi við gatnagerðina Miklar framkvæmdir á öllum sviðum á Húsavík

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.