Fréttablaðið - 04.01.2006, Side 48
TAKTU NÆSTA SKREF
Frjáls íbú›alán eru ver›trygg› fasteignalán me› föstum 4,35% vöxtum sem eru
endursko›a›ir á fimm ára fresti. fiú hagar ö›rum bankavi›skiptum eins og flér s‡nist og
kaupir n‡tt húsnæ›i e›a endurskipuleggur fjárhaginn – okkar markmi› er a› veita
framúrskarandi fljónustu á sanngjörnum kjörum. Komdu til okkar í Lágmúla 6, hringdu í
540 5000 e›a sendu okkur póst á frjalsi@frjalsi.is. Vi› viljum a› heima sé best!
FRJÁLS ÍBÚ‹ALÁN
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
1
2
8
VEXTIR
4,35%
5534,39 290 -33,3%stig. Úrvalsvísitalan hækkaði um 64,7 prósent á síðasta ári og hefur hækkað um tæp 1400
prósent frá því árið 1993.
milljónir króna. Fjárútlát FL Group vegna
starfslokasamninga tveggja fyrrverandi
forstjóra.
Meðaltap fjárfesta
í Kauphöllinni í
Venesúela á árinu
sem leið.
SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Íslandsbanka-
hlaupið
Viðræður um kaup á hlut
Straums í Íslandsbanka voru
langt komnar þegar upp úr
slitnaði milli jóla og nýárs. Þá
stóð til að selja hlutinn til félaga
í eigu Ólafs Ólafssonar, Karls
Wernerssonar, Baugs og FL
Group.
Eins og gengur þegar upp úr
slitnar hefur hver sínar skýringar
á atburðarásinni. Deilan stóð um
bréf í KB banka sem Straumur
vildi fá. Baugur og FL Group
vildu halda hluta bréfanna. Þar
á bæ segja menn Straum hafa
viljað setja skilyrði um að þessi
félög ættu ekki í öðrum bönkum
og segja Björgólf Thor hafa
stjórnað á bak við tjöldin. Úr
hinum herbúðunum segja menn
hins vegar að FL Group og Baugur
hafi allan tímann vitað hverjar
forsendur voru og því ekki átt að
koma þeim á óvart að ekki yrði af
viðskiptum í þetta sinn.
Næsti kafli
Sagan um hluthafahóp
Íslandsbanka ætlar að verða
endalaus. Straumur á 28 prósenta
hlut og erfitt að kaupa mikið
meira. Karl Wernersson hefur
um skeið haldið á lykilstöðu í
bankanum og samvinna hans við
Baug styrkir hann í að halda
þeirri stöðu. Þykkja er í mönnum
eftir jólasamningalotuna, en öll
él birtir upp um síðir og ekki
útilokað að menn setjist aftur að
samningaborði. Eins og tónninn
er núna telja Karl og Baugur
sig ekki þurfa að leggja mikið
á sig til þess að tryggja stöðu
sína enn frekar með kaupum á
bréfum. Straumsmenn eru hins
vegar keikir og ekki í vafa um
að fjárfestingin sé góð og að úr
henni leysist fyrr eða síðar.
Þarnæsti kafli
Straumur hefur verið að beina
sjónum sínum í auknum mæli
til útlanda eins og fleiri, enda
tækifærum farið fækkandi
eftir mikla tiltekt innanlands.
Úti á markaðnum eru miklar
vangaveltur um hvert Straumi
verður siglt á árinu. Talið er
líklegt að eigendur Straums
haldi þeim möguleika opnum að
sameina Straum Landsbankanum
og yrði það þá lokahnykkur
stórfelldrar uppstokkunar sem
hófst með kaupum Straums í
Eimskipafélaginu og síðan
kraftmikilli innkomu Björgólfs-
feðga í íslenskt viðskiptalíf.