Fréttablaðið - 04.01.2006, Blaðsíða 64
Hin goðsagnakennda hljómsveit
The Smiths, sem lagði upp laupana
árið 1987, hefur ákveðið að koma
aftur fram - eða helmingur hennar
að minnsta kosti. Þetta kemur
fram á tónlistarvefnum dotmusic.
com.
Johnny Marr, gítarleikari
sveitarinnar og bassaleikarinn Andy
Rourke hafa ákveðið að snúa bökum
saman og leika opinberlega saman
í fyrsta sinn í tæpa tvo áratugi.
Munu þeir fara fyrir fríðu föruneyti
tónlistarmanna frá Manchester
á góðgerðartónleikum sem ætlað
er að safna fé fyrir sjúkrahús í
borginni. Marr kveðst hafa viljað
óður og uppvægur taka þátt þegar
hann heyrði af tónleikunum sem
Rourke skipuleggur.
Á heimasíðum sem helgaðar
eru hljómsveitinni hafa verið
miklar bollaleggingar þess efnis
að jafnvel muni söngvarinn
sjálfur, Morrissey, stíga á svið
með félögum sínum, en því neita
aðstandendur tónleikanna.
Hljómsveitin Smiths gaf út
fjórar plötur á fimm ára ferli á
9. áratugnum. Tónleikarnir verða
haldnir 28. janúar og meðal þeirra
sem koma fram eru New Order,
Badly Drawn Boy og Doves.
MORRISEY Aðdáendur hljómsveitarinnar
gera sér vonir um að hann komi líka fram
en því neita skipuleggjendur.
Helmingur Smiths
aftur saman á svið
Árið 2005 hófst með
fréttum af skilnaði Brads
Pitt og Jennifer Aniston.
Það er því ekki úr vegi að
hefja árið 2006 með fréttum
af Brad Pitt og Angelinu
Jolie en breska götublaðið
News of the World heldur
því fram að Jolie gangi með
barn undir belti.
Fréttin birtist í nýárshefti blaðs-
ins og hafa blaðamenn þess, þau
Rav Singh og Jane Atkinson,
eftir nánum vini skötuhjúanna að
þau séu í skýjunum yfir þessum
fréttum. „Það er of snemmt að
gefa einhverjar yfirlýsingar en
allir sem eru í kringum þau sjá
hversu hamingjusamt parið er,“
sagði náinn vinur stjörnuparsins
og heldur áfram. „Angelina getur
ekki hætt að brosa og Brad gerir
allt fyrir hana. Hún var smá veik
í fyrstu en það er að mestu liðið
hjá,“ sagði hann.
Samkvæmt heimildum blaðsins
á Jolie að hafa farið í „leynilega“
ómskoðun á Santa Monica heilsu-
gæslustöðinni í Kaliforníu. „Hún
var með gleraugu og hatt þannig
að enginn myndi þekkja hana.
Þau fara að öllu með gát,“ sagði
annar heimildarmaður News of
the World.
Angelina lauk nýverið tökum á
myndinni The Good Shepherd með
Matt Damon og Robert De Niro.
Starfsmenn á tökustað tóku eftir
því að hún var komin með kúlu því
þegar hún sneri aftur eftir smá
frí komst hún ekki í upphaflega
búninginn vegna bumbunnar.
Pitt hefur þegar gengið ætt-
leiddum börnum Jolie í föðurstað
þannig að ný ofurfræg fjölskylda
er senn að verða til. Brad hefur
þegar tilkynnt fyrrverandi eig-
inkonu sinni, Jennifer Aniston,
um að hann verði bráðum pabbi
til að koma í veg fyrir að hún
heyrði af því í gegnum einhvern
annan. Eins og flestum ætti að
vera kunnugt skildu Aniston og
Brad og sagði Pitt ástæðuna vera
að hann vildi eignast fjölskyldu.
Honum virðist nú ætla að verða
að ósk sinni. „Þau eru yfir sig
ástfangin og það að Jolie skuli
ekki lengur vera kona einsöm-
ul er rúsínan í pylsuendanum,“
hefur blaðið eftir heimildar-
manni sínum.
Það er þó ekki bara óléttan
sem ber hæst í fréttum af parinu
hjá News of the World því blaðið
greinir einnig frá því að Brad Pitt
hafi keypt tvo hringa hjá Cartier
skartgripasala. Samkvæmt heim-
ildum blaðsins hefur parið þó
ákveðið að fresta brúðkaupinu
fram yfir fæðingu barnsins. - fgg
PITT OG ZAHARA MARLEY Ákveðið hefur
verið að stúlkan fái nafnið Zahara Marley
Jolie Pitt þar sem „foreldrarnir“ vilja ekki
mismuna börnunum sínum.
FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
Ofurfjölskylda í fæðingu
BRAD OG ANGELINA Frægasta par kvikmyndaborgarinnar er loksins komið út úr skápnum en News of the World greinir frá óléttu Jolie í
nýársblaði sínu. FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
SMS
LEIKUR
11.HVER
VINNUR
!
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
Sendu SMS sk
eytið JA BHF á
númerið
1900 og þú
gætir unnið m
iða fyrir tvo!
Vinningar eru
bíómiðar fyri
r tvo • DVD my
ndir • Magic
• Tölvuleikir •
Varningur ten
gdur myndinn
i og margt flei
ra.
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Yndisleg jólamynd fyrir alla fjölskylduna
���1/2
- MMJ
Kvikmyndir.com
���
- Topp5.is
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
����
- ÓÖH DV
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Lúxus kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
20% afsláttur af
miðaverði fyrir
viðskiptavini KB banka
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 4 og 6 ÍSLENSKT TAL
„Persónurnar eru
trúverðugar og
leikurinn í flestum
tilvikum fyrsta
flokks“...„Baltasar
finnur smjörþefinn af
Hollywood“
����
- Dóri DNA - DV
����
- Toronto Sun
Stórkostleg ævintýramynd frá meistara
Terry Gilliams byggð á hinum frábæru
Grimms ævintýrum með Matt Damon og
Heath Ledger í aðalhlutverkum
SÍMI 551 9000
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Sýnd kl. 6 Íslenskur texti
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 B.i. 14 ára
20% afsláttur af
miðaverði fyrir
viðskiptavini KB banka
„...líklega besta kvikmyndatónlist
Íslendings til þessa“
VG - Fréttablaðið
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára
���
1/2 - MMJ
Kvikmyndir.com
���
- Topp5.is
Sýnd kl. 8 og 10.20
Sýnd kl. 6, 8 og 10
...áhugaverð og fáguð
kvikmynd sem veitir
ferskum straumum
inn í íslenska
kvikmyndagerð
����
- HJ MBL
Stórkostleg ævintýramynd frá meistara
Terry Gilliams byggð á hinum frábæru
Grimms ævintýrum með Matt Damon og
Heath Ledger í aðalhlutverkum