Fréttablaðið - 04.01.2006, Blaðsíða 18
[ ]
Ath skráning er hafin í vinsælu
námsferðirnar fyrir 12-15 ára
Uppl. og skráning í síma 8917576 og
erlaara@simnet.is
Enskuskóli Erlu Ara
Enskunám í Hafnarfirði
• Enska fyrir fullorðna
• 10 getustig
• Áhersla á tal
Enskunám í Englandi
• Fyrir fullorðna og unglinga
• Hópar og einstaklingar
Skráning hafin
Kennsla hefst
9. janúar
enskafyriralla.is
elcyork.com
kentschoolofenglish.com
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Bergþóra Reynisdóttir býður
upp á sjálfsstyrkingarnám-
skeið fyrir konur austur í
Fljótshlíð. Námskeiðið tekur
eina helgi og styrkir bæði lík-
ama og sál.
,,Námskeiðið gengur fyrst og
fremst út á að kenna konum
grunnþekkingu í sjálfsstyrkingu
og sjálfsþekkingu,“ segir Berg-
þóra Reynisdóttir geðhjúkrunar-
fræðingur. ,,Námskeiðin standa
yfir heila helgi, frá föstudegi til
sunnudags, og eru haldin austur í
Fögruhlíð í Fljótshlíð. Þarna eiga
konurnar heima meðan á nám-
skeiðinu stendur og er boðið upp
á notalega gistingu og grænmetis-
fæði.“
Námskeiðin byggjast fyrst og
fremst á fyrirlestrum. ,,Konurn-
ar setja sér ákveðin markmið, til
dæmis að vera öruggari í sam-
skiptum, reyna að staðsetja sig
sem einstaklinga eða leysa ágrein-
ingsmál við vinnuveitanda, eig-
inmann eða börn. Síðan eru þær
að vinna að þessum verkefnum
alla helgina undir minni leiðsögn
ásamt fyrirlestrum.“
Bergþóra segir konurnar ekki
fela neitt hver fyrir annari. ,,Ég
ræði við konurnar í einrúmi ef þær
óska eftir því en það hefur aðeins
gerst í undantekningartilfellum.
Konurnar eru aðeins sex til átta
talsins og fara strax að treysta
hver annarri. Samstaða myndast
í hópnum og frá konunum stafar
óskaplega mikill kraftur.“
Bergþóra segir þátttakendurna
vera á aldrinum 18 til 70 ára. ,,Þeir
eru í raun þverskurður af flórunni
á Íslandi, koma alls staðar að af
landinu og eru af öllum stéttum
og stigum. Það er svo skemmti-
legt að þrátt fyrir að konurnar séu
svo ólíkar eiga þær sameiginlegt
tungumál sem allar skilja.“
Bergþóra kveðst hafa séð mik-
inn árangur. ,,Ég hef séð konur
hætta að nota róandi lyf og þung-
lyndislyf. Þær hafa losnað gjör-
samlega við kvíða, eru sterkari
og ákveðnari í samskiptum og fá
stöðuhækkanir á vinnustöðum
vegna þess að þær hafa getað
fylgt þeim eftir. Ennfremur hefur
sumum þeirra tekist að skapa
alveg nýtt andrúmsloft á heimil-
inu enda er konan mikill áhrifa-
valdur innan fjölskyldunnar, hún
er svo mikill klettur,“ segir Berg-
þóra hlæjandi.
Annar þáttur í námskeiðunum
er útivist og hreyfing. ,,Við förum
í léttar gönguferðir milli fyrir-
lestra og höfum gengið allt að 20
kílómetra yfir eina helgi. Hreyf-
ing, næring og hvíld eru náttúr-
lega þessir grundvallarþættir
fyrir andlega og líkamlega heilsu.
Ef þáttunum er fullnægt er fólk
oft í þokkalega andlegu og líkam-
legu jafnvægi.
Karlmenn verða ekki alveg
útundan á námskeiðunum. ,,Í mars
verð ég með hjónanámskeið og fæ
Halldór Reynisson með mér sem
leiðbeinanda. Þar verður áhersla
lögð á siðfræði og samskipti milli
hjóna.“
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðið er að finna á vefsíðunni
www.liljan.is eða í síma 863 6669.
mariathora@frettabladid.is
Tungumál sem allir skilja
Skrautlegir pennar geta gert heimanámið
meira spennandi fyrir þá sem yngri eru. Litríkir penn-
ar gera glósur þeirra sem eldri eru aðgengilegri og
auðveldari yfirferðar.
Bergþóra Reynisdóttir hefur séð mikinn árangur af námskeiðum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Konurnar gista heila helgi í Fögruhlíð í
Fljótshlíðinni.