Fréttablaðið - 04.01.2006, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 04.01.2006, Blaðsíða 21
[ ] Ný verslun með skírnarkjóla og sængurgjafir hefur verið opnuð í Listhúsinu í Laugardal. Anna Sigurjónsdóttir er eigandi hennar. Skírn heitir nýja verslunin og er trúlega með mesta úrval lands- ins af skírnarkjólum. Verslunar- stjórinn Anna breiðir úr síðum og glæsilegustu kjólum sem hún fær frá Ameríku, Belgíu og Eng- landi. Þeir eru fáan- legir í nokkrum stærðum og n o k k r u m verðflokk- um líka því verðið er frá 10.000 upp í 36.000. „Þetta eru satín- og silkikjól- ar,“ segir hún og sýnir líka svokallað- an eftirskírn- arfatnað, bæði stutta kjóla og silkimatrósaföt á stráka. „Sumir vilja líka skíra börnin í svona fötum, ekki síst ef athöfnin er heima,“ bætir hún við. Skírn selur líka amerískar vöggur, bæði með hefðbundnu lagi og líka kringlóttar. Þær eru fallega skreyttar og sumar eru með næturljósi, leikfangi og músík. „Það vantar ekkert nema fjarstýringu á snuðið,“ segir Anna hlæjandi þegar bent er á öll þægindin og segir vöggurnar kosta frá 11.500 til 29.000. Meðal þess sem Anna er með til sængurgjafa eru svokallaðir startpakkar með fimm upp í fimmtán stykki. Það eru bolir, sam- fellur, teppi, handklæði og þvottastykki. Annar pakki er með fötum til að klæða barn- ið í þegar það fer heim af fæðingar- deildinni, í honum eru teppi, húfa sokkar og galli. Nýja verslun- in heitir Skírn og er opin frá 12-18 á virk- um dögum og 11-15 á laugardög- um. NFS ER Á VISIR.IS NFS í beinni á VefTV og upptökur þegar þér hentar Visir.is er stærsta fréttalind landsins. Þar miðla Fréttablaðið og Nýja fréttastofan fréttum allan sólarhringinn og nú er NFS í beinni á VefTV frá morgni til kvölds. Þú færð fréttirnar beint í æð í vinnunni eða heima og upptökur af fréttum dagsins tryggja að þú missir ekki af neinu. Laugavegi 51 • s: 552 2201 Útsalan hófst í morgun 40% afsláttur Laugaveg 53 s. 552 3737 Opið mán. - föst. 10 -18 • Laugard. 10 -16 Útsalan er hafin Eitt nýjasta tæknileikfangið er 80 cm löng risaeðla sem gerir ýmsar kúnstir. „Það eru milljón skynjarar í þessu dýri,“ segir Steinar Sigurðsson í heildversluninni Item þegar hann byrjar að lýsa nýjasta tækniundri í leikfangadeild Dótabúðanna. Hann heldur áfram. „Risaeðlan bregst við hljóðum og snertingu og hún sér þannig að hún gengur ekki á neitt heldur stoppar eða beygir framhjá. Þegar ekkert er að gerast og hún stendur á gólfinu þá fer hún í hvíld en ef einhver labbar fram- hjá þá skynjar hún hreyfinguna og gerir vart við sig. Sé gripið hastarlega í skottið á henni þá reynir hún að bíta en ef henni er klappað undir hökuna þá verður hún blíð og gælin og allt að því malar.“ Risaeðlan kom á markað í haust. Eðla sem heyrir og sér Höfundur Paddingtons var Bretinn Michael Bond og birtist fyrsta sagan um þenna geðþekka björn árið 1958 og fyrsta bókin í íslenskri þýðingu kom út árið 1971. Í sögunni er sagt frá því að Brown- fjölskyldan finnur þennan sérstæða björn á Paddington-lestarstöðinni í London. Björninn segist koma frá Perú en að nafnið sé of flókið til þess að bera fram og því ákveður Brown- fjölskyldan að nefna björninn eftir lestarstöðinni. Paddington reynist blíður og góður björn en virðist eiga létt með að koma sér í vandræði þótt hann reyni allt sem í hans valdi stendur til þess að gera hlutina rétt. Björninn Paddington SÖGURNAR UM HINN SÆTA OG MANNLEGA BJÖRN, PADDINGTON, ERU HOLLAR ÖLLUM BÖRNUM Risaeðlan ROBORAPTOR fæst í Dótabúðunum Kringlunni, Smáralind, Glæsibæ og Spönginni. Hattar fylgja með. skírnar- kjólunum. Skírnarkjólar, sæng- urgjafir og vöggur Kennsla hefst aftur í dag í flestum grunnskólum landsins. Vonandi eru allir nemendur búnir að hrista af sér jólaslenið og komnir aftur í námsgírinn. Anna selur meðal annars vel búnar vöggur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Matrósafötin fást líka í svörtu. Stuttur „eftir- skírnarkjóll“ með tilheyrandi. Drengirnir eru fínir í matrósaföt- um úr silki. Blúndur setja svip á hvíta kjólana. bækur } 1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.