Fréttablaðið - 04.01.2006, Side 40

Fréttablaðið - 04.01.2006, Side 40
MARKAÐURINN ������������� ����������������������������� ���������������������� ������������������������������������������ ��������������������������� ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Hafliði Helgason RITSTJÓRN: Björgvin Guðmundsson, Eggert Þór Aðalsteinsson, Hólmfríður Helga Sigurðardóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Jónína Pálsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@markadurinn.is og auglysingar@markadurinn.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeypis með Fréttablaðinu á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Markaðurinn áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í staf- rænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. bjorgvin@markadurinn.is l hjalmar@markadurinn.is l eggert@markadurinn.is haflidi@markadurinn.is l holmfridur@markadurinn.is Sögurnar... tölurnar... fólkið... 4. JANÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR16 S K O Ð U N Græðgi er góð The Economist | The Economist segir græðgi af hinu góða, í það minnsta fyrir eldri borgara. Blaðið segir sérstaklega illa komið fyrir eldri borgurum í pólitík og opinbera geiranum. Nýkjörinn formaður breska Íhaldsflokksins, David Cameron, sé aðeins þrjátíu og níu ára gamall. Telur greinarhöfundur að Cameron megi fyrst og fremst þakka sigurinn æskudýrkun samflokksmanna sinna. Þó virðist sem æskudýrkuninni sé ekki fyrir að fara í hópi auðjöfra og múltímilljónera. Þar virðist gamla lögmálið um aldur og visku í fullu gildi. Ástralski fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch er sjötíu og fjögurra ára, gaf nýlega út ævisögu sína í annað sinn. Tveir kappar til viðbótar, báðir á níræðisaldri, eru nefndir til sögunnar; Kirk Kerkorian, oft nefndur konungur Las Vegas, og Sumner Redstone, forstjóri sjónvarpsrisans Viacom. „Af þessu má draga þrenns konar lærdóm; í fyrsta lagi telja hlutafjáreigendur peninga en ekki hrukkur. Í öðru lagi eiga menn aldrei að setjast í helgan stein og síðast en ekki síst er græðgi af hinu góða!“ Netbólan bólgnar á ný BBC | Martin Webber segir á vefsíðu BBC að á nýliðnu ári hafi fjárfestar loks lagt fé í internetfyrirtæki á ný eftir netbóluna svokölluðu, sem sprakk með háum hvelli árið 2000. Bendir Webber á leitarvélina Google máli sínu til stuðnings. Gengi bréfa í fyrirtækinu rúmlega fjórfaldaðist á árinu 2005 og situr nú í fjögur hundruð dölum á hlut. Yfir fjögur hundruð milljónir manna nýta sér nú leitarvél Google daglega. Þá setti fyrirtækið margar nýjar afurðir á markað árið 2005. Þó virðast ekki allir jafn sannfærðir um að netiðnaðurinn hafi loks rankað við sér: „Vissulega hefur fyrirtækjum á borð við Google, eBay og Yahoo vegnað vel. Gengi þessara fyrirtækja mun sveiflast eins og annarra og því mikilvægt að fjárfestar missi sig ekki í bjartsýni,“ sagði Henry Blodgett, internetsérfræðingur og fyrrverandi starfsmaður Merrill Lynch banka. U M V Í Ð A V E R Ö L D Mikill kraftur og útrás einkenndi síðasta ár í íslensku viðskiptalífi. Kaup Íslendinga á fyrirtækjum erlendis hafa aldrei verið meiri og íslenskt athafnafólk var óhrætt við að grípa þau tækifæri sem gáfust á árinu. Árið í ár byrjar með krafti. Þegar hefur verið tilkynnt um frekari kaup íslenskra fjárfesta erlendis í upphafi árs. Það má búast við því að framhald verði á sókninni á þessu ári. Eitt er að kaupa fyrirtæki og annað er að reka þau með góðum árangri og móta skynsamlega framtíðarstefnu fyrir þau. Árið í ár verð- ur sérlega mikilvægt hvað það varðar. Á þessu ári mun líklega koma skýrar fram en áður hvernig mönnum gengur að sigla þeim skipum sem þegar hafa verið keypt. Risafjárfestingar Actavis, Bakkavarar, Baugs og bankanna munu fá á sig skýrari mynd á þessu ári. Oft er það metið sem svo að tólf til átján mánuði taki að innleiða þær breytingar sem menn ætli sér að gera þegar fyrirtæki eru keypt eða sameinuð. Á þessu ári eru einmitt mörg stórverkefni innan þess tímaramma sem gjarnan er settur fyrir verkefni af þessu tagi. Þegar líða tekur á árið mun liggja fyrir hvort og hvernig áætlanir muni standast. Ekki er ástæða til neinnar svartsýni í þeim efnum. Þau fyrirtæki sem fremst hafa farið hafa náð að byggja upp umtalsverða reynslu af því að yfir- taka fyrirtæki og innleiða sína fyrirtækja- menningu. Munurinn nú er að fyrirtækin hafa aldrei verið stærri eða jafn miklir fjármunir í húfi. Takist mönnum vel upp á árinu við að vinna úr þessum stóru fjárfestingum mun það verða til mikilla heilla fyrir íslenskt efnahagslíf. Þegar koma umtals- verðar tekjur af erlendri starfsemi hing- að til lands. Velheppnaðar fjárfestingar skila miklum gjaldeyristekjum. Þannig má gera ráð fyrir að af áætluðum hagnaði KB banka upp á ríflega fjörutíu milljarða komi ríflega þrjátíu milljarðar frá útlönd- um. Stundum er talað um að útrásin og árangur íslenskra fyrirtækja fari í vasa fárra. Þeir sem því halda fram gleyma bæði umtalsverðum skattgreiðslum fyrirtækjanna og því að útrásarfyrirtækin eru flest með hátt hlutfall velmenntaðra sérfræð- inga á sínum snærum sem teljast til hálaunafólks. Þar við bætist að meðal bakhjarla íslensku útrásarinnar eru lífeyrissjóðir landsmanna, sem á þeim uppbyggingartímum sem nú eru hafa skilað ávöxtun langt umfram markmið sín. Hagvöxtur hér á landi hefur verið mikill, jafnvel svo að til vand- ræða gæti horft ef ekki er vel á málum haldið. Við erum í hópi ríkustu þjóða heims þegar horft er á þjóðartekjur á mann. Árið í ár mun ekki færa okkur neðar á þeim lista. Ef vel tekst til og framrás íslenskra fyr- irtækja heldur áfram mun það tryggja þá stöðu okkar um ókomin ár. Það er því full ástæða til bjartsýni um þessi áramót. Vissulega mun einhvern tímann í framtíðinni eitthvað mistakast af þeim verkefnum sem íslensk fyrirtæki ráðast í. Það hefur gerst áður og mun gerast aftur. Staða okkar hefur hins vegar aldrei verið sterkari, hvort heldur litið er til styrks fyrirtækja, fjármálastofnana eða til þeirrar þekking- ar, áræðni og krafts sem býr í atvinnulífinu. Yfir því eigum við að gleðjast og ganga fram hnarreist og af bjart- sýni, án þess þó að glata raunsæinu og almennri varúð. Síðasta ár var kraftmikið í íslensku viðskiptalífi. Árið framundan verður spennandi Hafliði Helgason skrifar Ekki er ástæða til neinnar svart- sýni í þeim efnum. Þau fyrirtæki sem fremst hafa farið hafa náð að byggja upp umtalsverða reynslu af því að yfirtaka fyrirtæki og innleiða sína fyrir- tækjamenningu. Árið sem nú er að líða hefur verið viðburðaríkt á vettvangi viðskipta og fjármála líkt og hin síðari ár. Mikill vöxtur fjármálageirans, útrás fyrirtækja og fjárfestingar erlendis hafa öðru fremur einkennt þróunina. Að sjálfsögðu er þetta mjög jákvætt og m.a. afleiðing þeirra skipulagsbreytinga sem unnið hefur verið að í efnahagskerfinu á undanförnum árum. Í því ljósi þótti mér afar skemmtilegt að heyra af því að á aðalfundi danskra iðnrekenda í haust, sem bar yfirskriftina „Meet the Winners“, hafi verið fjallað um það hvernig við Íslendingar förum að því að ná þeim árangri sem raun ber vitni. Umræðan frá gömlu frændþjóðinni er þó ekki eingöngu jákvæð eins og sjá mátti í dönskum sjónvarpsþætti sem sýndur var nýlega í Sjónvarpinu. Mikilvægt er að slíkum röddum verði svarað þannig að órökstuddar fullyrðingar fái ekki að vaða uppi og hlýtur að vera sameiginlegt áhugamál stjórnvalda og fyrirtækja að svo verði gert. RÍKIÐ ÁÐUR RÁÐANDI Ef litið er til innlends markaðar þá hefur samkeppni aukist á sviðum þar sem ríkisvaldið var áður með ráðandi stöðu, s.s. hvað varðar fasteignalán. Innkoma bankanna þar sýnir glögglega að þeir hafa aukið umsvif sín sem endurspeglast nokkuð í hækkandi gengi hlutabréfa þeirra og væntingum um áframhaldandi vöxt. NEYTENDUR SÝNI ÁRVEKNI Að mínu mati er aukin samkeppni af hinu góða en hún má ekki leiða til fákeppni og of mikillar samþjöppunar. Að því þarf að huga víða, ekki aðeins hjá fjármálafyrirtækjum heldur einnig á matvörumarkaði, fjölmiðla- markaði, í samgöngum o.s.frv. Því er mikilvægt að neytendur og eftirlitsstjórnvöld haldi árvekni sinni. Í því skyni voru fyrr á árinu samþykkt ný samkeppnislög ásamt lögum um Neytendastofu og tals- mann neytenda. Með þeim hefur eftirlit með samkeppnishömlum á markaði verið eflt og störf samkeppnisyfirvalda gerð skil- virkari en áður. Á næsta ári á ég von á að betra jafnvægi náist í þjóðarbúskapnum og að dragi úr einkaneyslu, verðhækkunum íbúðarhúsnæðis og þar með verðbólgu. Með því ætti efna- hagslegur stöðugleiki að vera tryggður. Mikill vöxtur, útrás og uppgangur Valgerður Sverrisdóttir viðskipta- og iðnaðarráðherra O R Ð Í B E L G Mikill vöxtur fjármálageirans, útrás fyrirtækja og fjárfestingar erlendis hafa öðru fremur einkennt þróunina.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.