Fréttablaðið - 04.01.2006, Blaðsíða 34
MARKAÐURINN 4. JANÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR10
F R É T T A S K Ý R I N G
Besta hlutabréfaár Íslandssögunnar er að
baki en Úrvalsvísitalan hækkaði um tæp
65 prósent í fyrra. Enn og aftur sýndu
íslensk hlutabréf langbestu ávöxtun í
samanburði við erlend hlutabréf og aðra
fjárfestingarkosti.
Þegar litið er eitt ár til baka verður
að telja að þessi mikli kraftur markað-
arins hafi komið öllum á óvart, enda var
almennt álitið að íslensk hlutabréf ættu
ekki svona mikið inni eftir gríðarlegar
hækkanir á árunum 2003 og 2004.
Frá ársbyrjun 2003 til loka ársins 2005
hefur Úrvalsvísitalan hækkað um 303
prósent.
BANKARNIR EIN BILLJÓN
Bankar, fjárfestingarfélög og stór
útrásarfyrirtæki ruku upp úr öllu valdi
og náðu óþekktum stærðum. Tvö af
þessum fyrirtækjum náðu 100 prósenta
hækkun á árinu 2005; Bakkavör Group og
Landsbankinn.
Í ársbyrjun 2005 voru aðeins þrjú félög
í Kauphöll Íslands meira en eitt hundrað
milljarða virði; Actavis, Íslandsbanki og
KB banki, en um nýliðin áramót voru þau
orðin sex. FL Group, Landsbanki Íslands og
Straumur - Burðarás höfðu bæst í hópinn.
KB banki, stærsta félagið í Kauphöllinni,
vantar lítið upp á ná markaðsvirði upp á
hálfa billjón.
Markaðsvirði viðskiptabankanna
þriggja í Kauphöll Íslands er orðið meira
en sem nemur landsframleiðslu síðasta
árs. Tölur fyrir landsframleiðslu árið
2005 liggja ekki fyrir fyrir en í mars en
áætluð landsframleiðsla ársins 2004 var
um 870 milljarðar króna. Markaðsvirði
bankanna er komið yfir eina billjón - eitt
þúsund milljarða. Að viðbættum stóru
fjárfestingarfélögunum; Straumi - Burðarási
og FL Group, liggur heildarmarkaðsvirði
banka og fjárfestingarfélaga í 1.270
milljörðum króna, sem er meira en hreinar
eignir lífeyrissjóðanna. Þær voru 1.100
milljarðar í lok ágúst.
STÖÐUGAR HÆKKANIR 2005
Hlutabréfamarkaðurinn fór mjög vel af
stað í janúar fyrir ári síðan, um sama
leyti og fyrstu uppgjör bárust í hús. Hafði
Úrvalsvísitalan hækkað um sex hundruð
stig á fyrstu sex vikum ársins. Svona hélt
þetta áfram að undanskildum fáeinum
dögum í september þegar markaðurinn
lækkaði.
Þegar litið er á hvern ársfjórðung fyrir
sig sést að verðhækkanir á markaðnum
voru svipaðar á fyrsta, þriðja og fjórða
ársfjórðungi, um það bil 17-18 prósent.
Annar ársfjórðungur skar sig úr en þá
hækkaði vísitalan aðeins um 5,5 prósent,
sem þykir samt sem áður góð ávöxtun á
þriggja mánaða tímabili.
Þessi stöðugi stígandi kemur Jónasi G.
Friðþjófssyni, hjá Greiningu Íslandsbanka,
svolítið á óvart. „Þetta er meiri hækkun
en við spáðum um þetta leyti í fyrra að
yrði yfir árið 2005. Þá reiknuðum við með
því að Úrvalsvísitalan myndi hækka um
fimmtán prósent yfir árið og töldu margir
það nokkuð bjartsýnt á þeim tíma. Annað
hefur komið í ljós,“ segir Jónas. Hann
bætir við að hækkunin hafi verið nær
samfelld. „Við sáum ekkert raunverulegt
tímabil lækkunar á síðasta ári, ólíkt því
sem við sáum á árinu 2004, en í október
það ár lækkaði markaðurinn um nær 18
prósent á nokkrum vikum.“
ALLIR FÓRU ÞEIR Í VÍKING
Eitt það helsta sem stendur upp úr á síðasta
ári, að mati Jónasar, er kaup innlendra
félaga á erlendum fyrirtækjum og vöxtur
þessara félaga erlendis. Öll stóru fyrirtækin
hafa stækkað með því að hasla sér völl á
erlendri grundu. Innri vöxtur var einnig
umtalsverður hjá þessum félögum á síðasta
ári. Í öllu þessu breytingaferli á síðasta
ári voru afkomutölur góðar. „Uppgjörin
hafa almennt verið yfir væntingum og
spám. Breytingarnar á félögunum hafa
hins vegar verið svo örar að maður þarf að
hafa sig allan við að endurskoða verðmat
hvers félags.“
Tíðindi af útrásinni einkenndu
viðskiptalífið á síðasta ári og átti hún
mikinn þátt í þeirri spennu sem skapaðist
í Kauphöllinni. Stórfyrirtæki sóttu hratt
fram. Actavis skipaði sér í hóp fimm stærstu
samheitalyfjafyrirtækja heims með kaupum
á Amide og samheitalyfjahluta Alpharma.
Bakkavör Group gekk frá kaupum
á breska matvælaframleiðandanum
Geest fyrir tæpa 74 milljarða króna á
vormánuðum. FL Group hélt uppteknum
hætti í easyJet og jók við hlut sinn
auk þess sem félagið festi kaup á
lággjaldaflugfélaginu Sterling.
Icelandic Group (áður SH) keypti
allt hlutafé í Pickenpack, þýsku
framleiðslufyrirtæki á sviði sjávarafurða.
Íslandsbanki hélt áfram að styrkja
starfsemi sína í Noregi með kaupum á
verðbréfafyrirtækinu Norse Securities en
KB banki, sem átti um fimmtungshlut í
Singer&Friedlander um þarsíðustu ára-
mót, eignaðist allan bankann.
Landsbankinn fékk fimmtungshlut
í Carnegie þegar Burðarás var
stokkaður upp. Bankinn festi kaup
á fjármálafyrirtækjunum Teather &
Greenwood, Kepler Equities og Merrion
Capital á árinu sem er liðið og Össur
stækkaði talsvert með kaupum á stuðnings-
tækjaframleiðandanum Royce Medical
fyrir fjórtán milljarða króna.
MIKIL TRÚ Á OFURFJÁRFESTA
Jónas segir að fjárfestar hafi mikla trú
á sterkum einstaklingum og séu tilbúnir
að greiða hátt verð fyrir hlutabréf í eigu
þessara aðila til að vera í samfloti með
þeim inn í komandi framtíð. Oft er talað
um svokallað „Björgólfsálag“ í höfuðið á
Björgólfsfeðgum og virðast fjárfestar hafa
mikla trú á félögum sem þeir stýra. Þegar
Burðarás sameinaðist Landsbankanum
og Straumi hafi gengi sameinaðra félaga
hækkað við það að skipta hlutabréfasjóði
á milli tveggja banka. Björgólfur kom
fram á sviðið og varð stjórnarformaður
Straums - Burðaráss.
Annað dæmi er FL Group þar sem
styrk staða Hannesar Smárasonar og
Jóns Ásgeirs í hluthafahópnum mótar
væntingar annarra fjárfesta um hvers sé
að vænta af félaginu á næstu árum. Miklar
hækkanir voru á gengi FL Group frá
miðjum nóvember, er nýtt hlutafé var selt
fyrir 44 milljarða, fram til áramóta.
Jónas segir að Greining Íslandsbanka
muni seinna í vikunni birta spá um afkomu
helstu félaganna í Kauphöllinni. Einnig mun
deildin á sama tíma birta spá sína um þróun
hlutabréfaverðs á árinu. Allar forsendur
eru fyrir því að árið verði líkt og hið síðasta
viðburðaríkt á innlendum hlutabréfamarkaði.
Af hækkunum á bréfum í fjármálastofnunum
má dæma að fjárfestar hafi trú á að
endurskipulagning bankakerfisins heima
fyrir og breytt eignarhald geti hækkað
verðmæti þeirra meira.
FÉLÖGUM FÆKKAR
Jónas segist vera viss um að fækkunarhrinu
félaga úr Kauphöll Íslands sé ekki lokið.
Hann spáir því að félögum, sem eru
undir 10-15 milljarðar að markaðsvirði,
muni fækka á markaði á árinu en eitt
og eitt stórt félag komi í þeirra stað.
„Það er ekkert slæmt að félögum fækki í
Kauphöllinni. Þegar maður horfir á fjölda
viðskipta og veltuna þá eru það bara þessi
stóru sem standa á bak við megnið af
viðskiptunum. Það væri best að vera með
10-15 félög með mikla veltu og virka
verðmyndun.“ Gríðarleg spurn var eftir
hlutafé í nýju félögunum, Avion Group og
Mosaic Fashions, í útboðum sem fram fóru
á síðasta ári og þarna var um áhugaverð
félög að ræða sem starfa í geirum sem
ekki voru fyrir í Kauphöllinni.
LANDSBANKINN HÆKKAÐI MEST Í KAUPHÖLL Landsbankinn hækkaði mest allra félaga í Kauphöll Íslands árið 2005, um 112 prósent. Björgólfur Guðmundsson,
formaður bankaráðs, Halldór J. Kristjánsson bankastjóri, Kjartan Gunnarsson bankaráðsmaður og Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri hafa ástæðu til að fagna góðum árangri
bankans á síðasta ári.
Fjórföldun á þremur árum
Úrvalsvísitalan hækkaði um 65 prósent í fyrra, sem var langt umfram væntingar. Bankarnir eru komnir yfir
eina billjón að markaðsvirði, sem er meira en landsframleiðslan. Trú fjárfesta á ofurfjárfesta er rík á markaði
og bjartsýni ríkjandi á framhaldið. Eggert Þór Aðalsteinsson fer yfir besta hlutabréfaár Íslandssögunnar.