Fréttablaðið - 04.01.2006, Side 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
HEKLA, Laugavegi 174, sími 590 5000
www.hekla.is, hekla@hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 · HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100 · HEKLA, Ísafirði, sími 456 4666
HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100 · HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 · HEKLA, Selfossi, sími 482 1416
600 þúsund bílar seldir
Volkswagen Golf er langvinsælasti bíllinn í Evrópu. Á síðasta ári voru nýskráningar
á Golf um 600 þúsund. Volkswagen er jafnframt með mestu markaðshlutdeild allra
bílaframleiðenda í Evrópu samkvæmt European Automobile Association (ACEA).
Vinsældir Golf og annarra tegunda frá Volkswagen koma okkur ekki á óvart
þar sem framsækin hönnun á traustum grunni er aðalsmerki fyrirtækisins.
Komdu og finndu sjálf(ur) hvað það er sem heillar Evrópubúa.
Aus Liebe zum Automobil
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
3
2
9
4
Trendline-tilboð
Golf 1,6 Trendline. Verð áður 1.890.000 kr.
Tilboðsverð 1.790.000 kr.
10% útborgun og 23.990 kr. afborgun á mánuði*
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d;
á
lfe
lg
ur
o
g
fá
na
sk
re
yt
in
g
Volkswagen Golf
Vinsælasti bíll í Evrópu
* Miðað við bílasamning SP til 84 mánaða.
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
����������
����������������
������������
Í fyrsta sinn strengdi ég áramóta-heit nú á gamlárskvöld. Þótt ég hafi
velt því fyrir mér áður hef ég alltaf
gleymt mér í töfrum augnabliksins
á miðnætti á gamlárskvöld og þess í
stað óskað mér einhvers sem ég vildi
að rættist á hinu nýja ári.
ÉG veit að það er eintóm sjálfs-
elska fólgin í því að óska sér ein-
hvers. Það krefst einskis að vænta
þess að maður fái eitthvað upp í
hendurnar. Ármótaheitin fela hins
vegar í sér jákvæða breytingu
á lífi manns og krefjast þess að
maður leggi eitthvað á sig til þess
að halda þau. Ég ætla mér alls ekki
að óska mér einhvers á áramótun-
um, heldur bara gerist það. Tólfta
högg kirkjuklukknanna dynur og
algleymið nær yfirhöndinni.
MÉR til varnar er að þessar óskir
mínar eru ekki af veraldlegum
toga spunnar heldur hef ég óskað
heilbrigðis fyrir mig og fjölskyldu
mína, hamingju, jákvæðni, lífsgleði
og fleiru í þá áttina. Kannski er
allt í lagi að leyfa sér það á annarri
eins töfrastundu en samt sem áður
ákvað ég að beita mig hörðu um
þessi áramót. Þegar klukkan sló tólf
og nýja árið gekk í garð hét ég því
að ég skyldi leggja mig alla fram á
þessu ári að verða betri manneskja.
Ég skyldi gæta sérstaklega að því að
koma vel fram við þá sem ég elska
og minna mig á, dag hvern, hversu
heppin ég er að eiga jafngóða
ástvini og raun ber vitni.
ÉG hét sjálfri mér því að leggja
mig sérstaklega fram við að sýna
ástvinum mínum þá ást, hlýju,
umhyggju, þolinmæði, kurteisi, ein-
lægni, hreinskilni og alúð sem þeir
eiga skilið. Ég hef nefnilega staðið
sjálfa mig að því að leyfa mér ýmsa
framkomu við ástvini mína sem ég
myndi aldrei leyfa mér gagnvart
kunningjum eða starfsfélögum.
Kannski er ég svo örugg um að
ástvinirnir fyrirgefi mér miklu
meira en þeir sem standa mér fjær,
og því hef ég ósjálfrátt gengið á
lagið með það. Leyft mér að pirrast,
sýna ósanngirni eða óþolinmæði
þegar enginn á það skilið frá mér. En
það er einmitt það sem maður á ekki
að gera. Því hvað er mikilvægara
í lífinu en þeir sem standa manni
næst? Og hví gerir maður ekki sömu
kröfur til sín í samskiptum við þá
eins og maður gerir í samskiptum
sínum við ókunnugt fólk?
ÞESSAR spurningar komu upp
í huga mér nú um jólahátíðina og
því ákvað ég að strengja þess heit
um áramótin að á árinu 2006 skyldi
ég gera meiri kröfur til mín í sam-
skiptum mínum við ástvini mína og
leggja mig fram við að koma enn
betur fram við þá. Og vonandi verð
ég betri manneskja fyrir vikið. ■
Heit og óskir