Fréttablaðið - 04.01.2006, Side 35
MARKAÐURINN
Fyrir um fjórum árum síðan
hrundi efnahagur Argentínu og
þúsundir fyrirtækja fóru á hausinn
í kjölfarið. Þetta varð einnig til
þess að helmingur þjóðarinnar
fór undir fátæktarmörk í þessu
landi sem áður var efnahagslega
sterkast í Suður-Ameríku.
Eitt af þeim fyrirtækjum
sem varð gjaldþrota var
glerverksmiðjan San Justo.
Starfsmenn fyrirtækisins
höfðu ekki fengið borgað í
marga mánuði og þegar
átti að fara að hirða vélar
og tæki verksmiðjunnar
komu fyrrverandi starfmenn
fyrirtækisins í veg fyrir
það. Í ár á eftir vöktuðu
starfsmennirnir verksmiðjuna
allan sólarhringinn til að koma
veg fyrir að tækin væru numin
á brott. Þetta gerðu þeir í ljósi
þess að þeir höfðu átt inni margra
mánaða ógoldin laun og töldu sig
þess vegna eiga forgangskröfu í
verðmæti verksmiðjunnar.
Einu ári seinna samþykkti
dómstóll sjónarmið þeirra og
starfsmennirnir hófu framleiðslu
í verksmiðjunni að nýju.
Í dag er fyrirtækið í það góðum
rekstri að hægt er að borga
starfsmönnum 500 dali í laun á
mánuði en það jafngildir því sem
best gerðist áður en verksmiðjan
fór í þrot. Reksturinn hefur
gengið það vel að tekist hefur
að endurnýja framleiðslutækin
að hluta.
Glerverksmiðjan er ekki eina
tilfellið þar sem starfmenn hafa
tekið málin í sínar hendur og
komið fyrirtækjum í rekstur á
ný. Í dag eru slík fyrirtæki um
hundrað talsins og sjá þau um tíu
þúsund manns fyrir vinnu.
11MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006
E R L E N T
Fyrir um áratug eyðilagðist
uppskera í Norður-Kóreu tvö
ár í röð vegna flóða. Síðan þá
hafa Sameinuðu þjóðirnar sent
matvæli til landsins fyrir meira
en milljarð Bandaríkjadala. Nú
hefur leiðtogi landsins bannað
erlenda matvælaaðstoð og segir
uppskeruna í ár nógu góða til að
fæða 23 milljónir íbúa landsins
en sérfræðingar efast um að
þetta sé satt. Líklegri ástæða
sé að Kim Jong-il vilji einangra
landið enn meira til að koma
í veg fyrir erlend afskipti.
Norður-Kórea á nú í viðræðum
við Suður-Kóreu, Kína, Japan,
Rússland og Bandaríkin um að
Norður-Kóreumenn hverfi frá
kjarnorkuvopnaáætlun sinni
en takmarkaður árangur hefur
orðið af viðræðunum. Kínverjar
og Suður-Kóreumenn óttast
upplausn Norður-Kóreu sem
myndi leiða til þess að flóttamenn
flykktust yfir landamærin í
milljónavís.
Það að Kim Jong-il hefur
hafnað erlendri aðstoð mun
líklega leiða til þess að íbúar
landsins neyðist til að fara út í
skóg í leit að hnetum og fræjum
til að forðast að deyja úr sulti
eins og gerðist fyrir áratug. Þá er
talið að meira en milljón manns
hafi dáið úr hungri í landinu.
Norður-Kórea hafnar aðstoð
FORSETA N-KÓREU MÓTMÆLT Kim
Jong-il hefur líf milljóna samlanda sinna á
samviskunni.
Olíuvinnslufyrirtækið Petrobras,
sem er í eigu brasilíska ríksins,
hefur greint frá nýjum olíufundi.
Olían fannst undan ströndum
borgarinnar Rio de Janeiro
á svipuðum slóðum og helsta
olíuvinnslusvæði Brasilíu er
á. Petrobras áætlar að þessi
nýja olíulind hafi að geyma um
700 milljón tunnur af hráolíu,
sem er einn tíundi af olíulindum
landsins. Talið er að hægt verði
að vinna olíu á nýja svæðinu árið
2011.
Ríkistjórn Brasilíu hefur gert
áætlun um að gera landið sjálfu
sér nægt um olíu og með þessum
olíufundi aukast líkurnar til að
það muni ganga eftir en síðan
2003 hefur 91 prósent af olíu
landsins verið unnið innanlands.
Á svæðinu þar sem olíulindin
fannst eru nú þegar framleiddar
1,1 milljón tunna af olíu á dag.
Sérfræðingar telja að um 75
prósent olíubirgða landsins séu
á yfir 400 metra djúpu vatni.
Petrobras hefur því sérhæft
sig í djúpvinnslu og hefur yfir
flestum olíuborpöllum að ráða af
olíufyrirtækjum heimsins.
Olía finnst
í Brasilíu
OLÍUBORPALLUR
Stutt er í að Brasilíumenn verði sjálfum sér
nógir um olíu.
Plötusala dróst saman um sjö
prósent á milli áranna 2004 og
2005. Tónlist sem halað var
niður af netinu
tvöfaldaðist
hins vegar
á milli ára
sem vegur
upp á móti
m i n n k a n d i
p l ö t u s ö l u
fyrir tónlistar-
iðnaðinn.
Lög sem
halað var
niður af
netinu gegn
greiðslu voru
tæplega 333
milljónir
talsins á móti
134 milljónum
árið 2004.
Geisladiskar:
Sala geisladiska
fer minnkandi
Síðan Verkamannaflokkurinn
tók við völdum í Englandi hafa
styrkir til Skotlands hækkað um
helming. 4.500 milljarðar runnu
til Skotlands á meðan skatttekjur
ríkisins þaðan voru 3.700
milljarðar. Mismunurinn nemur
250 þúsund krónum á hvern íbúa
í Skotlandi. Hlutfall ríkisútgjalda
af heildarefnahag landsins
er 52,2 prósent, sem er hærra
en meðaltal Norðurlandanna
og kemur Skotlandi í fjórða
sæti yfir þau lönd sem hæstu
ríkisútgjöldin hafa. Aðeins í
Svíþjóð, Frakklandi og Danmörku
er hlutfall ríkisútgjalda hærra.
Frá árinu 1997 hefur hagvöxtur
í Skotlandi verið 1,7 prósent á ári
að meðaltali á meðan vöxturinn
hefur verið 2 prósent að meðaltali
í Evrópusambandinu.
Veikburða efnahagur
ABERDEEN Skotar þiggja háa styrki frá
Englandi.
Kanadamenn berjast gegn því
að togveiðar verði bannaðar á
alþjóðlegum hafsvæðum. Lítið er
fylgst með togveiðum á alþjóð-
legum hafsvæðum. Nær engar
togveiðar eru stundaðar innan
200 mílna lögsögu Kanada af
þarlendum sjómönnum en troll-
veiðar eru 28 prósent af þeim
afla sem landað er í kanadísk-
um höfnum. Togveiðar eru einnig
mikið stundaðar á rækjumiðum
rétt utan lögsögunnar, meðal ann-
ars af Íslendingum, Færeyingum
og Portúgölum. Bann Sameinuðu
þjóðanna á togveiðum er ekki
bindandi en töluverður þrýsting-
ur er á að þeim sé framfylgt.
Greenpeace hefur, ásamt
fimmtíu öðrum umhverfisverndar-
samtökum, þrýst á Sameinuðu
þjóðirnar að banna togveiðar á
alþjóðlegum hafsvæðum.
Umhverfisverndarsinnar líkja
togveiðum við jarðýtur sem skafi
upp botninn og eyðileggi kóralla og
annað sem er mikilvægt í lífkeðju
hafsins. Náttúruverndarsamtök
halda því fram að 250-300 tog-
skip séu að veiðum á alþjóðlegum
hafsvæðum og valdi mikilli eyði-
leggingu.
Kanada styður ekki bann á
veiðarfærum af neinni tegund
fyrr en vísindaleg staðfesting
fæst á skaðsemi þeirra að sögn
talsmanns Kanadastjórnar.
Kanada gegn
togveiðibanni
TORONTO Í KANADA Kanadamenn leggj-
ast gegn banni Sameinuðu þjóðanna.
Ágúst Agnarsson
skrifar
Kínversk stjórnvöld hafa í hyggju að láta gengi
gjaldmiðils síns, yuan, ráðast meira á markaði
en áður. Gagnrýnt hefur verið hingað til að með
aðgerðum kínverskra stjórnvalda hafi gjaldmiðillinn
verið stórlega vanmetinn.
Kínversk stjórnvöld endurmátu viðskiptagengið
síðasta sumar þegar gengi yuansins var hækkað
um 2,1 prósent og fasttenging við dollarann var
afnumin. Genginu hefur verið leyft að styrkjast
eða veikjast gagnvart körfu gjaldmiðla sem nemur
0,3 prósentum á dag. Gengið hefur samt aðeins
styrkst um 0,48 prósent frá því þessar nýju reglur
tóku gildi því stjórnvöld hafa enn sterkt taumhald
á gjaldmiðli landsins.
Fréttir hafa borist af því að Citibank hafi fengið
samþykkt tilboð sitt í 85 prósenta hlut í kínverskum
ríkisbanka. Kínversk stjórnvöld þurfa hins vegar að
gefa grænt ljós á kaupin þar sem kveðið er á um að
erlend fyrirtæki geti ekki eignast meira en tuttugu
prósenta hlut í kínverskum bönkum. Kínverjar
sækja það fast að ganga í Alþjóða viðskiptaráðið
en til þess að það gangi eftir verða stjórnvöld að
afnema kvaðir sem takmarka erlenda eignaraðild í
kínverskum fjármálafyrirtækjum.
Aukið frjálsræði á
kínverskum gjald-
eyrismarkaði
Tilslakanir í gengi yuansins og opnun fyrir erlenda
fjárfestingu í fjármálafyrirtækjum meðal umbótaverkefna.
KÍNAMÚRINN Stjórnvöld hafa enn sterkt taumhald á gjaldmiðli
landsins.
Starfsmenn grípa til sinna ráða
MARADONA Besti knattspyrnumaður
heims fyrr og síðar er argentískur.