Tíminn - 31.12.1976, Page 3
Föstudagur 31. desember 1976
3
Stjarnfræðingurinn telur þetta
hafa verið tunglið, en ég
er ósammdla honum
segir Stefán Guðmundsson,
HV-Reykjavik — Ég hef átt við-
ræftur við Þorstein Sxmunds-
son, stjarnfræðing, um Ijósafyr-
irbrigöi þetta. Hann telur vist,
að það sem við sáum hafi veriö
lungiið, en ég get ekki sætt mig
við þá skýringu, þvi tungliö tek-
ur ekki á rás um himingeiminn,
likt og þetta gerði, sagði Stefán
Guðmundsson, Flókagötu 54, i
viðtali við Timann í gær.
Fyrirbrigði það, sem Stefán
talar um, er ljósfyrirbæri, sem
hann og fjölskylda hans sáu og
fylgdust með á vesturhimni yfir
Reykjavik siðastliðið sunnu-
dagskvöld.
— Við vitum, að hér sjást allt-
af öðru hvoru ljósfyrirbæri á
himni, sagði Stefán ennfremur i
gær, og að mörg þeirra virðast
óútskýranleg. Ég setti þetta ljós
ekki i samband við neinar
kynjaverur frá öðrum sólkerf-
um, eða neitt slikt, en ég er þess
fullviss, að þetta var ekki tungl-
ið. Að minnsta kosti ein fjöl-
skylda önnur sá þetta og þeirra
lýsing á þvi kemur heim og
saman við okkar. bau héldu i
fyrstu, likt og viö, að þetta væri
tunglið.enégerþess fullviss, að
þetta var eitthvað annað. —
Meðferð
skraufelda og
áramóta-
sprengja
Timanum hefur borizt
eftirfarandi frá iæknum
hey rna rdeildar Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavik-
ur:
Við læknarnir, og heyrnar-
deild Heilsuverndarstöðvar
Reykjavikur, fáum til með-
ferðar marga, einkum börn
og unglinga, sem orðið hafa
fyrir meira eða minna
heilsutjóni að völdum ýmis-
konar skrautelda og spreng-
inga um þetta leyti árs. Það
er þvi full ástæða til að vara
alla við hættunni. Það er
stórhættulegt og beinlinis
glæpsamlegt að kasta „kin-
verjum” og álika sprengjum
að fólki.
Verði sprenging nærri
eyra má búast við varanlegri
heyrnarskemmd, jafnvel
einnig gati á hljóðhimnu.
Flugeldar geta sprungið
þegari'þeim er kveikt . Gætið
þess að andlit eða hendur
lendi ekki i stróknum frá eld-
flaug.
Blinda, brunasár og
varanleg örorka hefur þrá-
faldlega hlotist af óaðgætni
við tendrun eldflauga, og
annars þess háttar.
Aldrei er of varlega farið
með þessa hluti og best að
hafa þá ekki um hönd. Eink-
um þurfa foreldrar og for-
ráðamenn barna og unglinga
að vera vel á verði og reyna
að sjá til þess að þetta unga
fólk hafi ekki sprengjur um
hönd, en þær valda einkum
alvarlegu og varanlegu
heilsutjóni.
Margir hafa komið til okk-
ar á heyrnardeild Heilsu-
verndarstöðvar
Reykjavikur með skerta
heyrn og sködduð eyru á
undanförnum árum. Látum
það ekki koma fyrir i þetta
sinn.
Ymsir munir úr Snæfelli
settir á minjasafn og
vélin gefin til kennslu
— rætt um að sökkva skrokknum
á hafi úti
K.S. Akureyri — Nýlega var
ákveðið af forráðamönnum KEÁ
að gefa Akureyrardeild Vélskóla
tslands aðalvél gamla Snæfells,
en það er 600 hestafla Wickman-
vél, sem i framtiðinni verður not-
uð til kennslu i Vélskólanum.
Snæfelli EA-740 var lagt i nóvem-
ber 1973 og við athugun á skipinu
kom i ljós, að það þarfnaðist það
mikilla viðgerða, ef útgerð þess
ætti að halda áfram, að ekki þótti
svara kosnaði að leggja i þær við-
gerðir.
Þá mun fyrirhugað að varö-
veita á minjasafni ýmsa muni úr
skipinu, en um endalok skipsins
er ckki full ákveðið, en heyrzt
hefur, að þvi verði sökkt á hafi
úti.
Snæfell var smiðað i skipa-
smiðastöð KEA á árunum 1941-
1943. Skipasmiðameistari þess
var Gunnar Jónsson. Snæfell er
165 t. að stærð, smiðað úr eik, og
erstærsta skip sem smiðað var i
skipasmiðastöðKEA. Er það fór i
reynsluferð sina, 1. júli 1942, var
mörgum framámönnum boð’ið
með, sem enn i dag minnast
þeirrar ferðar og sennilega ekki
sizt vegna þess, að allir höfðu þeir
eftir ósk og áskorun reynds út-
gerðarmanns, fórnað Ægi höfuð-
fötum sinum Snæfelli til heilla.
En svo sem kunnugt er reyndist
Snæfell alla tið hið mesta heilla-
og happaskip, og var um fjölda
ára eitt aflasælasta skip islenzka
fiskveiðiflotans.
m------------->■
Snæfell Timamynd: K.S.
Almannavarnir:
Sérstakar aðgerðir við
stórbruna og sprenging-
ar í mannmörgum húsum
Gsal-Reykjavik. — í því
neyðarskipulagi fyrir
Reykjavík, sem verið er að
Ijúka við, er gert ráð fyrir
sérstökum aðgerðum,
þegar um stórbruna eða
sprengingar er að ræða í
mannmörgum húsum,
sagði Guöjón Petersen
fulltrúi Almannavarna
ríkisins i samtali við
Timann.
— Varðandi brunann i Æsufelli
2, hélt Guðjón áfram, var haft
samband við Almannavarnir og
fulltrúi frá okkur fór ásamt fram-
kvæmdastjóra Rauða krossins
upp i Fellahelli, en Rauði
krossinn sér um þann þátt i þessu
, skipulagi, sem flokkast undir að
sjá um heimilislausa — veita
þeim húsaskjól og þess háttar.
'Þeir könnuðu hvort einhverjir
ibúa Æsufells 2 hefðu ekki höfði
sinu að halla einhvers staðar, og
voru gerðar ráðstafanir til þess
að hafa laust pláss á Hótel Loft-
leiðum, en ekki þurfti til þess að
koma.
— Hvert er hlutverk Almanna-
varna við stórbruna eða
sprengingar i fjölbýlishúsum
samkvæmt neyðarskipulaginu?
— Það er ekki gott að lýsa þvi i
stuttu máli, en ef stórbruni
verður á þvi stigi, samkvæmt
okkar skipulagi, aö nauösynlegt
sé að virkja meira hjálparstarf
heldur en hinar daglegu öryggis-
stofnanir ráða við, — er það eins
og i öðrum neyðaráætlunum,
aukið er við liði, opnaðar eru
fjöldahjálparstöðvar, fæði og
húsaskjól veitt og fleira og fleira.
1 stuttu máli, almennt björgunar-
og hjálparstarf.
2 skip
leita
loðnu
— strax eftir
áramót
gédé Rvik — Það er unnið að
áætlun skipa Hafrann-
sóknarstofnunar núna, og
þvi liggur hún ekki fyrir enn,
sagði Jón Jónsson forstöðu-
maöur stofnunarinnar i gær.
Jón sagði, að þó væri
ákveðið, að tvö rannsóknar-
skipanna færu að fylgjast
meö loðnugöngu stras eftir
árainótin, annað vestur fyrir
land en hitt austur.
Það er rannsóknarskipið
Bjarni Sæmundsson, sem
mun halda vestur fyrir land i
loðnuleit, og verður Hjáimar
Vilhjálmsson fiskifræðingur
leiðangursstjóri þar um
borð. Rannsóknarskipið Arni
Friðriksson fer á loðnumiðin
fyrir Austurlandi og verður
Eyjólfur Friðgeirsson fiski-
fræöingur leiðangursstjóri.
Um aðrar rannsóknar-
ferðir hefur enn ekki verið
tekin endanleg ákvörðun.
MIKLAR SKEMAADIR
— í bruna í Hafnarfirði á
miðvikudagskvöld
HV-Reykjavik. — Rétt um klukkan 21 á miðvikudagskvöld, var til-
kynnt uni eld i risi hússins að Strandgötu 50 I Hafnarfirði, sem er
gamalt timburhús. Slökkvilið Hafnarfjarðar kom á staðinn, en þar
sem erfiölega gekk að komast að eldinum stóð slökkvistarf fram
undir miðnætti og miklar skemmdir urðu af völdum vatns I fjórum
íbúöum I húsinu.
Skemmdir af völdum eldsins sjálfs urðu mestar i risinu sem er
geymsluris, en mikill hluti þaksins brann. Þó tókst eldinum að kom-
ast gegn um gólf og valda nokkru tjóni í einni íbúö.
Ekki lá Ijóst fyrir i gær hvað valdið hefði eldinum, en taliö var
óliklegt að það væri af völdum rafmagns. (Timamynd G.E.)