Tíminn - 31.12.1976, Side 20

Tíminn - 31.12.1976, Side 20
20 Föstudagur 31. desember 1976 Föstudagur 31. desember 1976 21 I. Við þessi áramót er mér efst i hug, hvað áunnizt hef- ur i landhelgismálinu á þessu ári, og raunar á siðast liðnum tuttugu og fimm árum. Það er ævintýri likast. A þessum aldarfjórðungi hefur yfirráðasvæði islenzka rikisins margfaldazt. Frá 1901-1952 var fiskveiðiland- helgi við Island um 25 þúsund ferkilómetrar. Eftir út- færsluna 1952 varð fiskveiðilandhelgin um 43 þúsund ferkilómetrar. Siðan hefur hún verið færð út i áföng- um, eins og kunnugt er, fyrst 1958 i sjötiu þúsund fer- kilómetra, 1972 i 216 þúsund ferkilómetra og nú siðast 1975 i um sjö hundruð fjörutiu og átta þúsund ferkiló- metra. Þessar tölur sýna, hve stækkunin er stórkost- leg, og það er ástæða til að rifja þær upp og festa sér þær i minni. Útfærsla fiskveiðimarkanna hefur átt sér stað i áföngum og i öll skiptin með einhliða ákvörðun Is- lendinga. Enginn áfanginn hefur náðst baráttulaust. Er af þeirri baráttu allri mikil saga, sem hér vinnst ekki timi til að rekja. Er þó ekki vanþörf á að minna á staðreyndir þessara mála ööru hverju, þvi að unnin af- rek gleymast stundum furðu fljótt, og þeir, sem söguna skrifa, láta sundum stjórnast af vilsýni. En hvort sem baráttan hefur staðiö lengur eöa skem- ur i hvert skipti, og hvort sem átökin hafa verið meiri eða minni hverju sinni, hafa deilurnar að lokum i öll skiptin verið settar niöur við samningaborðið, og hefur þá stundum orðið að veita öðrum þjóðum nokkurn að- lögunartima. Samningsaðstaðan hefur jafnan byggzt á frækilegri frammistöðu landhelgisgæzlunnar og óbil- andi viljafestu og samstöðu alls þorra landsmanna. Eftir siðustu útfærslu voru samningar gerðir við nokkrar þjóðir um takmarkaðar veiðiheimildir um sinn, og gilda nokkrir þeirra samninga fram á næsta ár. Bretar sendu hins vegar sem fyrr flota sinn og dráttarbáta inn i fiskveiðilandhelgina og héldu hér uppi veiðum undir herskipavernd. Kom oft til harðra og hættulegra átaka á miðunum, en várðskipin hindr- uðu veiðar hinna brezku lögbrjóta, svo sem kostur var, og var öll þeirra frammistaða svo frábær og árangurs- rik, þó að við flota hennar hátignar væri að eiga, að at- hygli vakti með öðrum þjóðum, Goliat fékk ekki ráðið við Davið. Þegar Bretar sáu, aö i óefni stefndi fyrir margra hluta sakir, féllust þeir á að binda endi á deil- una með samkonulagi, sem gengið var frá i Osló 1. júni sl., en áður hafði það verið undirbúið, m.a. með orð- sendingaskiptum. Fengu Bretar samkvæmt þvi tak- markaðar veiðiheimildir i 6 mánuði, en hétu þvi að stunda eigi veiðar i islenzkri fiskveiðilandhelgi eftir þann tima, nema leyfi islenzkra stjórnvalda kæmi til. Kemur þetta fram i 10. gr. samkomulagsins, sem er kjarni þess, og ákveðin var samkvæmt tillögu ís- lendinga. Þar segir svo: „Samningur þessi skal gilda i 6 mánuði frá gildis- töku. Eftir aðsamningurinn fellur úr gildi, munu brezk skip aðeins stunda veiðar á þvi svæði, sem greint er i hinni islenzku reglugerð frá 15. júli 1975 (þ.e. 200 milna reglugerðinni) i samræmi við það, sem samþykkt kann að verða af Islands háifu.” Skýrari viðurkenningu Breta á 200 milna fiskveiði- landhelginni var eigi unnt að fá, enda sigldu öll brezku skipin út fyrir mörkin 1. desember sl., og hafa ekki sézt á islenzkum fiskimiðum siðan. Það var sögulegur dag- ur. Þá var náð marki, sem flestir hefðu talið draumóra fyrir aldarfjórðungi. Ég held, að ekki sé ofmælt að Islendingar hafi verið forustumenn i þeirri þróun hafréttarmála, sem átt hef- ur sér stað á alþjóöavettvangi á siðustu árum. Enn sér að visu ekki fyrir endann á Hafréttarráðstefnunni, en æ fleiri þjóöir telja sér ekki fært að biða úrslita hennar. Þeim þjóðum fjölgar stöðugt, sem taka sér 200 milna efnahagslögsögu eða gera það nú um þessi áramót. Það gera riki Efnahagsbandalagsins einnig þ.á m. Bretar, sem lengst og harðast hafa barizt gegn einhliða útfærslu á fiskveiðilandhelgi annarra þjóða. Og nú nefnir enginn alþjóðalög eða alþjóðadómstól. Skyldu þeir dómendur, sem dæmdu i máli Breta gegn okkur, aldrei eiga andvökunætur? Hver sem úrslit Hafréttar- ráöstefnunnar verða, þá er augljóst, að 200 sjómilna auðlindalögsagan hefur sigraö og nýtur viðurkenning- ar sem alþjóðalög. Efnahagsbandalagið lýsir yfir sameiginlegri 200 sjó- milna fiskveiðilögsögu bandalagsrikjanna frá þessum áramótum. Það fer með fiskveiðimálin fyrir hönd bandalagsrikjanna. Þaö leitar eftir samningum viö aðrar þjóöir um fiskveiðiheimildir, og þá gjarnan á svokölluðum gagnkvæmisgrundvelli. Það hefur leitað eftir samkomulagi við Island um fiskverndarmál og gagnkvæm fiskveiði réttindi, og þá sérstaklega a.m.k. fyrst i stað fyrir Breta. Viröist einhvers konar bráða- birgðaframlenging samkomulagsins vð Breta einkum höfð i huga. 1 samkomulaginu við Breta frá 1. júni er hvorki fyrirheit né skuldbinding til viðræðna eða neins konar samkomulags við Efnahagsbandalagið um þessi mál. Eigi að siður þótti sjálfsagt aö verða við þeirri ósk Efnahagsbandalagsins að eiga viðtöl við fyrirsvars- menn þess um þessi efni. Það er ekki islenzka rikis- stjórnin heldur Efnahagsbandalagið, sem hefur óskað eftir þessum viðræöum. Þetta er rétt að undirstrika. A meðan barátta er háð og marki er ekki náð, getur. það verið stefna að leita eftir samkomulagi. Sam- komulag getur verið úrræöi til aö ná settu marki. Þeg- ar menn hafa náð þvi, sem að var stefnt og fengið viðurkenningu fyrir rétti sinum, getur mótaöilinn sótt á um samninga. Og stundum geta menn taliö ráðlegt eða neyözt til að gera samninga. En að jafnaöi reyna menn þá að standa á rétti sinum eftir þvi sem geta Ólafur Jóhannesson: MÐ ÁRAMÓ T leyfirog skynsamlegt er meö hliðsjón af öllum aöstæð- um. Þegar á þetta er litið, er augljóst hvilikt öfugmæli það er i raun og veru að tala um, að það sé stefna is- lenzku rikisstjórnarinnar að semja við Efnahags- bandalagið um veiðiheimildir innan isienzkrar fisk- veiöilandhelgi. Það hlýtur að vera stefna rikisstjórnar- innar að tryggja Islendingum einum afrakstur is- lenzkra fiskimiða að þvi marki, sem þeir þurfa á að halda og eru færir um að nýta þau. Það er Efnahagsbandalagið, en ekki Islendingar, sem sækjasteftir samningum. Þaðer sjálfsagt aö ræöa það mál og skoða. En eins og sakir standa, virðist ekki grundvöllur fyrir siikum samningum. Aö visu getur samkomulag um fiskverndarmál átt rétt á sér, sem þá væri auðvitað ekki einskorðað við islenzka fiskveiöi- landhelgi eina. En samkvæmt áliti fiskifræðinga, sem ekki verður framhjá gengiö, geta íslendingar veitt all- an þann fisk, sem ráðlegt er að veiða á Islandsmiðum á næsta ári, og á það sérstaklega við um þorsk’veiðarnar. Það eru engar likur að þvi leiddar, að Efnahagsbanda- lagið geti veitt Islendingum fiskveiðiréttindi, sem vegi upp á móti þeim veiðiheimildum, sem bandalagsriki hafa á næsta ári á Islandsmiðum samkvæmt samning- um, sem enn eru i gildi, hvað þá heldur meira. Sé farið fram á frekari veiðiheimildir, og þá sérstaklega fyrir Breta, er þvi i raun réttri farið fram á gjöf, en ekki byggt á gagnkvæmni, sem sagt er þó, að sé stefnu- skráratriði bandalagsins. 1 samskiptum við aðrar þjóðir verður jafnan margs að gæta, og einangrun get- ur aldrei orðið okkur tslendingum hagstæð. Við leggj- um mikla áherzlu á góð og vinsamleg samskipti við Breta og viljum mikið á okkur leggja i þvi skyni, en á slikum örlætisgerningi höfum við blátt áfram ekki efni. Það verða Bretar og aðrir Efnahagsbandalagsmenn að skilja. Má og á þá staðreynd benda, að á sl. ári nam innflutningur tslands frá Efnahagsbandalaginu nær 45% af heildarinnflutningi, en á sama tima fór aðeins um 24% af heildarútflutningnum til bandalagsrikj- anna. Ég hefi gerzt hér svo margorður um landhelgismálið — um framvindu þess á árinu og um það við hverju megi búast i þeim efnum — vegna þess að ég tel það mál málanna, og langt yfir öll önnur málefni, sem mörg hver tengjast meir dægurmáiabaráttunni og taka gjarna nokkrum breytingum eftir viðhorfum lið- andi stundar. Það er sannfæring min, að ársins 1976 verði lengst minnzt i tslandssögunni vegna landhelgis- málsins. II. Efnahagsmál svokölluð eru sem endranær ofarlega á baugi við þessi áramót. Sumum finnst e.t.v. að þau mál séu orðin svo flókin og sérfræöileg, að naumast sé á færi annarra en hagfræðinga og sérkunnáttumanna aö brjóta þau til mergjar. Þá er illa komið, þvi að þau mál snerta daglegt lif og afkomu hvers og eins. Það er þvi mikilvægt, að sem flestir láti sig þau nokkru varða og reyni eftirbeztu getu aö átta sig á framvindu þeirra mála — horfist i augu við staðreyndir og geri sér grein fyrir orsökum og afleiðingum. Má raunar á það minna, að naumast er nokkurt mál svo einfalt, að ekki megi gera það flókið, ef þannig er á máli haldið. Efnahagsmál horfa að sjálfsögðu miismunandi við eftir þvi af hvaða sjónarhóli er litið á þau. Dómur at- vinnurekandans um efnahagsástandið er oft annar en launamannsins. Mat hagfræðingsins tekur trúlega fyrst og fremst mið af afkomu þjóðarbúsins — afkomu þjóðarinnar sem heildar. Hver einstaklingur litur gjarna fyrst á það, sem honum er næst — á eiginn hag og afkomu — bóndinn á afkomu bús sins, útgerðar- maðurinn á afrakstur útgerðarinnar, verkamaðurinn á kaupið og kaupmáttinn o.s.frv. Þegar fjallað er um efnahagsmál, verður þvi margs aö gæta, og verða menn liklega seint á eitt sáttir i þeim efnum, láta sig jafnvel hafa það aö neita staðreyndum, ef svo ber und- ir. Þó að talað sé um efnahagsleg lögmál, eru þau held- ur ekki alltaf byggð á visindalegum grundvelli og má vera aö þar gæti meir pólitiskra sjónarmiða. Kenni- setningar, sem eitt sinn voru taldar góðar og gildar týnast stundum i timans straumi. En eitt er held ég öruggt, að efnahagsmálin verða ævarandi viðfangs- efni. Þau eru ekki vandamál eða viöfangsefni, sem leyst verði i eitt skipti fyrir öll. Þetta er hollt að hafa hugfast i almennri umræðu um efnahagsmál og efna- hagsástand. Þaö er ekki ætlunin að ræða almennt um efnahags- mál i þessu áramótaspjalli. Það myndi verða lengra mál en hér væri við hæfi. Hér verður aðeins vikiö að þvi, hvernig til hefur tekizt á árinu um meginstefnumið rikisstjórnarinnará efnahagssviðinu. Segja má, að þar hafi þessi þrjú borið hæst: Ólafur Jóhannesson. 1. Að tryggja atvinnuöryggi. 2. Að hemla verðbólgu, þannig að vöxtur hennar yrði eigi örari hér en i helztu viðskiptalöndunum. 3. Að draga úr viðskiptahalla og bæta gjaldeyrisstöðu. Um fyrsta atriðið er það að segja, að atvinnuástand hefur almennt verið gott á árinu. Timabundiö atvinnu- leysi á einstaka stað er alger undantekning. Verður seint komið i veg fyrir, að slíkt geti átt sér stað. En þegar litið er til landsins alls, hefur atvinna verið góð, og stefnumið stjórnarinnar um atvinnuöryggi hefur verið náð. Það er mest um vert, þvi að atvinnuleysi er þjóðarböl. 1 þessu efni erum við ólikt betur staddir en margar aörar þjóðir, og það meira að segja sumar ná- grannaþjóðir okkar. öðru stefnumarkinu hefurekki verið náð. Það hefur ekki tekizt að koma verðbólgunni niður á sama stig og hjá viðskiptaþjóðunum. En það hefur samt tekizt að hægja nokkuð á verðbólguhraðanum. Samkvæmt sið- ustu spá Þjóöhagsstofnunar verður verðbólga hér á ár- inu 25-30% á móti 35-37% árið áður. Hér hefur þvi þok- azt i rétta átt. En i þessu efni þarf að gera betur á kom- andi ári. Þess er þó að gæta, aö stökkbreytingar á þessu sviði eru ekki æskilegar. Þeim fylgir mikil rösk- un. Nú talar enginn um stöðvun verðbólgu, en það þarf jafnt og þétt og i áföngum að draga úr hraða hennar svo að við séum á svipaðri bylgjulengd á þessu sviði, eins og nálægar þjóðir og helstu viðskiptalönd. Niður- staðan er þvi sú, að þvi er stefnumark tvö varðar, að um er að ræða umtalsverð batamerki, en um áfram- haldandi bata er allt i óvissu. Framvindan á þessu sviði er háð mörgum óráðnum atvikum. A árinu 1976 hefur tekizt að draga úr viðskipta- hallanum. Þjóðhagsstofnunin segir, að viðskiptahall- inn, sem hlutfall af þjóðarframleiðslu, lækki úr 11,5% á árinu 1975 i 3,6% á árinu 1976. Mikil breyting til batnað- ar hefur þvi átt sér stað. Samt þarf að gera betur. A næsta ári eru taldar horfur á áframhaldandi bata á þessu sviði, en þó hvergi nærri nægilegum að minu mati, miðað við aðstæður. Ég veit satt að segja ekki hvernig færi, ef snögglega skipti um til hins verra um viðskiptakjör. Dómsorð Þjóðhagsstofnunar um þjóöarbúskapinn á þvi ári, sem er að kveðja, eru þessi: ,,A árinu 1976 hef- ur þvi miðað ótvirætt i jafnvægisátt i þjóðarbúskapn- um, þegar á heildina er litið. Enn er þó viö alvarlegan verðbólguvanda og viðskiptahalla að etja”. Kaupgjalds- og kjaramál eru snar þáttur efnahags- mála og hafa margslungin áhrif á þeim vettvangi. Kjarasamningar þeir, sem gerðir voru á árinu voru að mörgu leyti skynsamlegir i meginatriðum, að minum dómi, þó að lengi megi deila um prósentustig I áfanga- hækkunum. Þrátt fyrir umsamdar kjarabætur tala margir um kjaraskerðingu. Vafalaust er þaö rétt, sé miðað við velgengnisár fyrrverandi stjórnar. Og i öll- um samanburði á lifskjörum skiptir meginmáli við hvaða timamörk er miðað, auk þess, sem taka verður tillit til ýmissa atriða. Hver og einn miðar sjálfsagt viö reynslu af eigin afkomu. Skal eigi dregiö i efa, að mörgum veitist erfitt að ná endum saman. Og það er óreiknanlegt dæmi, hvernig menn lifa af lægstu um- sömdum daglaunum eða fastakaupi. Það fer ekki á milli mála, að mikil spenna er nú rikjandi á kjara- málasviði. Má þvf sjálfsagt gera ráð fyrir kröfum um verulegar kaupgjaldshækkanir i næstu kjarasamning- um, en aðalsamningar renna út 1. mai og i júni lok á næsta ári. Allir góðgjarnir menn hljóta að vona, að þau mál leysist án þess að til vinnustöövana komi og án þess að batamerkjum i þjóðarbúskapnum sé stefnt i hættu. En hvað segir hin kalda tölvisi um þessi mál? 1 skýrslu Þjóöhagsstofnunar nr. 6 frá 7. desember segir svo á bls 9: „Viö lok ársins 1976 verða kauptaxtar laun- þega 13-14% hærri en meðaltal ársins og er hækkunin svipuð hjá flestum starfsstéttum. Verðlag veröur um sama leyti rúmlega 12% hærra en ársmeðaltalið, og kaupmáttur kauptaxta verður þvi heldur meiri en að meðaltali á árinu”. Vilji menn kalla siðustu kjarasamninga varnar- samninga, verður varla annað sagt, en að þeir standi undir nafni. Allir virðast sammála um, að kaup hinna lægst launuðu þurfi að hækka. Um nauðsyn þess hafa þegar verið höfð nógu mörg orð. Nú gildir að láta verk- in tala. En verður ekki að horfast i augu við þá stað- reynd, að það verður naumast gert án þess að þeir, sem hærri laun hafa slaki nokkuð á sinum kröfum? Er þó launamunur hér liklega minni en viðast hvar annars staðar. Ekki er vafi á þvi, að mál þessi verða i brenni- punkti á komandi ári og framvinda i efnahagsmálum ræðst mjög af þvi, hvernig til tekst um lausn þeirra. III. Á þvi ári, sem nú er senn á enda, hefur orðið meiri umræða um dómsmál og löggæzlumálefni en oftast nær áður. Þaö er eðlilegt. Dómsmálum, bæði á sviði einkamála og opinberrar sýslu hefur fjölgað mjög á siðustu árum. Afbrotaalda hefur flætt yfir landið. Hef- ur þar að sumu leyti verið um nýja og áöur óþekkta misgerninga að tefla, svo sem fikniefnamál og fjársvik ýmiss konar, sem önnur afbrot hafa svo stundum sprottið af. Áfengisneyzla hefur og farið vaxandi og átt sinn þátt i umferðarbrotum, slysum, smygli og öðru misferli, sem hér verður ekki tiundað. Breyttar lifsað- stæður, uppeldishættir og þjóðbrautarlega og sitt hvað fleira koma hér og við sögu. Segja má, að þessi óhugnanlega afbrotaalda hafi borizt að tslandsströndum erlendis frá. Glæpa- og hryðjuverkafaraldur hefur um skeiö hrjáð margar þjóðir, bæði nær og fjær. Sá faraldur hefur nú að ein- hverju marki borizt hingað. Verkefni þeirra, sem fást við dómsmál og löggæzlu, hafa þvi margfaldazt að undanförnu. Má sjálfsagt segja, að starfsliði þar hafi ekki veri fjölgað og starfs- aðstaða bætt, svo sem þurft hefði. Þó hefur margt færzt i betra horf á þessu sviði á undanförnum árum, bæði i mannahaldi og aöbúnaði. Lögreglumönnum hefur verið fjölgað, bæði við rann- sóknarstörf og i almennri löggæzlu. Löggæzlan er nú alfarið á vegum rikisins, en var áður nokkuð þung byrði á sveitarfélögum. Dómurum hefur verið fjölgað, bæði sjálfstæðum dómurum og fulltrúum. Sérstökum dómi og rannsóknardeild i fikniefnamálum hefur verið komið á fót. Ný löggjöf um fangelsi og vinnuhæli hefur verið sett. Umbætur i refsi- og réttarfarslöggjöf mætti einnig nefna, þótt ekki séu þær þess eðlis, að almenna athygli veki. Nýlegasta dæmið er löggjöfin um stofnun sérstakrar rannsóknarlögreglu undir stjórn sjálfstæðs rannsóknarlögreglustjóra. Þar er stigið stórt skref til umbóta, ef vel tekst til um framkvæmd. Að þvi er hið ytra varðar, má nefna hina glæsilegu lögreglustöð i Reykjavik og viöbótarbyggingu við Vinnuhælið á Litla- Hrauni. Fjárveitingar og lánsheimildir til fangelsa eru riflegri en nokkru sinni fyrr. Er fyrst og fremst stefnt að byggingu gæzluvarðhaldsfangelsis af hóflegri stærð, sem þó gæti einnig rúmað einhverjar aðrar deildir, t.d. kvennadeild. Ég hefi hér sieppt að minnast á löggæzluna á hafinu — landþelgisgæzluna. Ég vona, að þau máiefni séu mönnum i fersku minni, þ.á.m. efling landhelgisgæzl- unnar. Hér hefur ekkert verið greint á milli þess, sem gert hefur verið i minni tið sem dómsmálaráðherra og þess, sem fyrirrennarar minir i þvi starfi hafa unnið að, enda er þar i sumum tilfellum erfitt að skilja á milli. Ég geri ráð fyrir, að við höfum allir borið svipaða um- hyggju fyrir þessum málum og haft af þeim álika áhyggjur. En sannleikurinn er sá, að fjárveitingavald- inu hafa oft verið önnur mál hugstæöari, þegar tak- mörkuðu fjármagni hefur þurft aþ skipta. Er þaö ekki sagt því til áfellis. Ég hefi rifjað upp framangreind atriði, af þvi að mér 'hefur fundizt, að gagnrýni á löggæzlu, dómstóla og réttarkerfið almennt hafi oftast verið fremur neikvæð. Gagnrýni á löggæzlu og meðferð dómsmála, eins og á aðra opinbera sýslu, er sjálfsögð og eðlileg. Hún getur veitt nauðsynlegt aðhald og verið gagnleg. Hún getur m.a. orðið hvati að endurbótum. En það er æskilegt, að gagnrýnendur þessara mála hafi nokkra þekkingu á þeim grundvallarreglum rannsókna og réttarfars, sem viðurkenndar eru i réttarrikjum. Ennfremur þurfa þeir að hafa i huga, að þeir eru stundum að skrifa um harmsögulega samtimaviðburði og eiga ekki að taka dómsvaldið i sinar hendur, á meðan mál eru á rann- sóknarstigi. Sumt i,gagnrýni’um þessi mál hefur að minu mati einkennzt meir af fullyrðingum en rödstuddum mál- flutningi. Mér hefur oft þótt gæta þar meir getsaka og dómgirni en umbótaáhuga. En sleppum þvi. Sinum augum litur hver á silfrið. Aðalatriðið er, að ég tel ásakanir á hendur starfsliði i dómgæzlu og lögreglu al- mennt ómaklegar. Auðvitað verða öllum á mistök. Og oft er seinagangur i rannsókn og dómsmálum meiri en æskilegt er. Mestu skiptir þó jafnan, að rétt niðurstaða fáist. Ég er þeirrar skoðunar, að rækileg rannsókn myndi leiða i ljós, að langflest meiri háttar sakamál upplýsist hér á landi að lokum og sekir hljóti sinn dóm. Það má fyrst og fremst þakka dugmiklu starfsliði, sem að þessum málum vinnur. Auðvitað eru til undantekning- ar. Sum mál upplýsast aldrei, eða a.m.k. ekki á þann hátt, að sekt sé sönnuð. En af tvennu illu vil ég þó held- ur, að sekur gangi laus en saklaus maður sé dæmdur. Hitt er svo annaö mál, hvort náðunum er beitt hér i of rikum mæli. Mat á þvi er ekki hvað sizt viöfangsefni fyrir félagsfræðinga og sakfræðinga. En hitt er vist, að náðanir hafa hér tiðkazt um langa hrið, og að i þvi efni hefur verið farið eftir nokkuð föstum reglum. Ég hefi talið rétt að minnast hér lauslega á þessi mál, sem svo mjög hafa verið á vörum manna á árinu. Ég hefi þó ekki viljað ræða þau i neinum þrætubókar- stil, heldur hefi ég kosið aö koma á framfæri fáeinum almennum hugleiðingum um þessi vandasömu mál, svo sem þau horfa við frá minum bæjardyrum séð. Við þurfum að horfast i augu við þá staðreynd, að i brotamálum og misferli margs konar er miklum vanda að mæta. Viö þeim vanda ber að snúast af ein- beitni og með viðeigandi úrræðum, þ.á m. með aukinni löggæziu og refsingum. En hitt er ekki siöur mikilvægt að kanna hinar félagslegu orsakir og reyna að byrgja brunninn, áður en barnið er dottið ofan i hann. Þar er margs að gæta, svo sem þjóðlifsháttá, lífsþæginda- kapphlaups, uppeldis- og skólamála, t.d. hvort skyldu- námið sé ekki komið út i öfgar að magni námsefnis og lengd skólatima, og þannig mætti lengi telja. En i þessu sambandi er ekki hægt að fara nánar út i slikt, heldur rétt aðeins nefna þessi atriði, eins og innan sviga. Ég hefi þá trú, að mál þau, sem mest hafa verið höfð á oddi, upplýsist, söguburðurinn hjaðni og sannleikur- inn sigri. Ég tek mér þvi i munn hið fornkveðna: „Spyrjum að leikslokum, en eigi að vopnaviðskipt- IV. Við íslendingar erum fámenn þjóð. Hvert mannslif og þroski sérhvers manns, sem elst upp hér á landi, er okkur þeim mun meira virði. 1 augum umheimsins er- um viö harla smáir og sjálfsagt ekki metnir á marga fiska. En það gefur okkur þó gildi, að við erum sérstök þjóð með gamalgróna þjóðmenningu, og þannig erum við einn strengur i hörpu veraldarinnar. Vegna fæðar okkar og smæðar verðum við að ætlast til meiru af hverjum og einum heldur en gengur og gerist. En fæð okkar og smæð má ekki leiða til neins konar minni- máttarkenndar. Við verðum þvi umfram allt að eiga einhverjar þær hugsjónir, sem auka reisn okkar og efla dáð okkar. Þvi megum við ekki gleyma á kaldrifjaðri efnishyggjuöld. Það er engin hugsjón að berjast þindarlaust fyrir meiri lifsgæðum handa sér og sinum. Það kann að vera mannlegt, en flokkast þó undir breyskleika, einna helzt sérgæzku og ágirnd, þegar þeir, sem nóg hafa fyr.ir eða meira en það, vilja samt keppa eftir enn þá meiru á skiptavelli þjóðfélagsins. Réttmætt er aftur á móti aö halda sinum hlut fram, og meira að segja sjálfsagt, þegar i hlut eiga þeir, sem við þröngan kost búa. Það er ekki heldur nein hugsjóna- barátta að streitast við að koma andlitinu á sjálfum sér á framfæri og keppa með öllum ráðum eftir frægð og frama. Það eru verkin ein, sem geta helgað orðstir og upphefð — verk manna sjálfra. Það er dyggð að vinna hvert eitt verk svo vel sem hæfileikar leyfa, og það er hugsjón að skila landinu betra og byggilegra i hendur niðjanna en við þvi var tekið — ylja það og lýsa, rækta þaö byggja, og prýöa, án þess að þeir, sem þar leggja hönd að verki hugsi fyrst og fremst um það, að hve miklu leyti þeir njóta þess sjálfir. Það er hugsjón að efla þjóðlega reisn, glæða þjóðarvitund og treysta þá samhygö, sem ekki þolir, að einum sé misboöiö öðrum til hagnaðar. Ræktun lands og lýðs var kjörorð ungmennafélag- anna og það kjörorð er enn i fullu gildi og lýsir þvi i stuttu máli, sem ætti að vera leiðarstjarna okkar. Ung- mennafélögin hafa verið sökuð um oröagjálfur og vafalaust hefur kveðið talsvert að þvi. En eigi að siður var þessi grundvallarhugsun runnin mörgum i merg og blóð. Hún var aflvaki, og það mun koma æ betur i ljós, þegar könnuð eru rök þess, hverju tslendingar fengu áorkað i fátækt sinni framan af þessari öld. Það var sönn og ómenguð hugsjón, an fyrirvara eða bak- þanka um eiginn hagnað/sem knúði fólk til margvis- legra samtaka i þágu samfélags sins. Og það var ósvikin fórnarlund, sem upp af þessu hugarfari spratt, þegar bláfátækar vinnukonur, rauðeygðar af eldhús- reyk og með vinnulúnar hendur af ævilöngum þræl- dómi, tóku aurana, sem þær höfðu dregiö saman á ára- tugum, til þess að kaupa fyrir þá hlutabréf i Eimskipa- félaginu, ekki af þvi að þær væntu sér hagnaðar af þvi, heldur af þvi að þær vildu leggja sitt til þess, að þjóðin eignaðist sjálf skip og gæti hrundið af sér oki útlendra skipafélaga. Það var voldug húgsjón, sem bar uppi góðtemplararegluna i kringum síðustu aldamót, sem varð meiri félagsmálaskóli en flest annað á þeim tima. Og kannski rennir okkur ekki einu sinni grun i, hvaða þrek og áræði fátækir og skuldugir bændur þurftu að hafa til að bera til þess að brjóta af sér einokun og skuldaklafa selstöðu verzlunarmanna meö stofnun samvinnufélaganna. A sama hátt eigum við nú bágt með að gera okkur rétta grein fyrir þvi, hvaða manndómi þeir verkamenn, sem fyrstir efndu til verkalýðssamtaka við fullan f jandskap ráðandi manna i landinu, urðu að vera gæddir. Hvað segir þetta okkur, sem i rauninni höfum flest allt til alls, að minnsta kosti miðað við fyrri tið? Hvers ættum við ekki að vera umkomin, ef við vildum eitt- hvað viðlika á okkur leggja fyrir framtiöina? Vitaskuld lifum við á breyttum timum, og hugsjónir okkar þurfa ekki endilega að miða sérstaklega að meira rikidæmi. Lifshamingja er æðri peningum, sem eru umfram raunverulegar þarfir, og hugsjónir nú- timamanna eiga ekki siður að stefna að þvi að tryggja og auka þau gæði, sem eru mikils virði, þótt öröugt sé að meta þau til fjár, en eru samt undurstaða þess, að fólki geti liðið vel, og geta orðið niðjum okkar góður arfur. Þar á meðal er ræktun eða glæðing þess hugar- fars, aö hver og einn kjósi sér ööru fremur að vera nýtur þegn á þeim vettvangi, er hann hefur valið sér eö; lifið skákað honum á — þegn með fullri reisn og sjálfs- vitund og frjálsu og fordómalausu skyni og vilja til þess að láta gott af sér leiða — ekki eðeins fyrir sina nánustu, heldur einnig aðra. Hugarfar, sem metur og viðurkennir hvert það starf, sem samfélaginu er nauð- synlegt eða til heilla en lokast ekki innan einhvers hrings þröngra sérhagsmuna. Gerum fyrst kröfur til okkar sjálfra siðan til annarra. Stöndum samfélaginu skil á skuld okkar við það, áður en við gerum kröfur á hendur þvi. Þá hugsun þarf að rækta með þjóðinni. Þá dafnar hér traust og „gróandi þjóðlif”. Jæja, þá er hann nú farinn að predika, segja menn. Já, vist má það til sanns vegar færa. Og ætli það sé þá ekki bezt að vitna til Predikarans: „Varpa þú brauði þinu út á vatnið, þvi þegar margir dagar eru um liðnir, munt þú finna það aftur. Skiptu hlutanum sundur i sjö eða jafnvel átta, þvi aö þú veizt ekki, hvaða ógæfa muni koma yfir landið.” „Sá sæöi þinu að morgni og lát hendur þinar eigi hvilast að kveldi, þvi að þú veizt ekki, hvað muni- heppnast, þetta eða hitt, eða hvort hvort tveggja verður gott”. Þetta er forn speki, sem nútimamanni kann að koma undarlega fyrir sjónir. En ég held, að þarna sé hinn spaki maður i raun og veru að boða fyrirhyggjuna, sem vill vera viðbúin þvi, sem að höndum ber. Þessi kenn- ing um fyrirhyggjuna á brýnt erindi til okkar. tslend- ingar eru áhlaupamenn, en trúa meira en góðu hófi gegnir á slembilukkuna, uppgripin og þvi, sem þau gefa af sér. Sáðu og biddu uppskerunnar með þolin- mæði, þótt svo hún falli þér ekki i skaut, heldur þeim, sem eftir þig koma, og vertu viðbúinn hverju sem að höndum ber — þetta er hugsunin bak við ivitnuð orð hins spakvitra höfundar þeirra. An fyrirhyggju megum við íslendingar sizt af öllu vera á komandi ári. Við eigum að minnast fortiðarinnar og læra af sigrum og ósigrum fyrri manna, en lifa i nútiðinni með framtiðina i huga. Og hennar verður dómurinn um verk okkar. „Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur it sama, en orðstirr deyr aldregi hveim er sér góðan getur”, segir i Hávamálum, og það er orðstirinn einn, sem eftir stendur, þegar fram liða stundir. Það er þó ekki fyrst og fremst vegna hans, heldur vegna þess gildis, sem verk okkar og viðhorf hafa fyrir ókomna tið, að við verðum aö fella lif okkar og gerðir i þann farveg, að við höfum betur lifað en ekki. Að þessu skulum við hyggja á komandi ári. An hugsjóna, umbótavilja og fórnarlundar, verður lifið fátæklegra, hvað sem öllum lifsþægindum og ytri gæöum liöur. Lifshamingjan er ekki hvað sizt fólgin i réttu gildismati. V. Brátt gengur gestur i garð — árið 1977. Viö heilsum þvi og bjóðum það velkomið. Enginn veit, hvað það hefur i fórum sinum. En allir bera fram óskir um, aö það veröi gott ár og farsælt. Ég vona, að það verði ár hófsemi á sem flestum svið- um. Ég vona að þaö verði ár jafnvægis, bæði út á við og inn á við. Sú er min von og bæn, að gerningahrið glæpa og alvarlegra afbrota sloti á árinu. Ég vona og bið þess, að reynt verði aö afstýra hvers konar slysum eftir þvi, sem i mannlegu valdi stendur. Megi friður rikja um heimsbyggðina, og samábyrgðar tilfinning mannkyns vaxa. Ég lýk þessum áramótahugleiðingum meö því aö flytja Framsóknarmönnum þakkir fyrir samstarf á árinu. Landsmönnum öllum óska ég góðs og farsæls nýs árs.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.