Tíminn - 31.12.1976, Qupperneq 32

Tíminn - 31.12.1976, Qupperneq 32
32 Föstudagur 31. descmber 1976 Anton AAohr: Árni og Berit Ævintýraför um Asíu iii í. barnatíminn ,, Þessari næturf erð gleymi ég aldrei”, hugs- aði Berit. Hún var niður- brotin og sorgmædd. Hún var ekki að syrgja það, þótt þau væru tekin höndum af illræðis- mönnum i ókunnu landi. Oft hafði áður litið illa út fyrir þeim i þessari löngu ferð, en alltaf höfðu þáu bjargazt. Hún minntist þess, er þau féllu i hendur dverg- anna, sem grófu Árna i jörðina og létu aðeins höfuðið standa upp úr, en fjötruðu hana sjálfa við trjástofn. Nei, það var ekki handtakan, sem hryggði hana. Það var dauði frænda hennar ofurstans. Hann var dá- inn, horfinn. Aldrei framar myndu þau njóta hans hollu ráða og föð- urlegu hlýju. Hvernig skyldi þeim nú vegna? Hún var sljó og utan við sig. Þau fengu ekki einu sinni tima til að grafa lik vinar sins, eða manna hans. Hún sá i huganum, hvernig hræfuglar og villidýr streymdu að tjaldstaðnum. Nei, það var of hræðilegt að hugsa til þess. Berit reyndi að lita i kringum sig. Ennþá var svo dimmt, að hún gat ekki greint, hve margir ránsmennirnir væru en af hófataki hestanna og frýsi gat hún áætlað, að þeir væru um þrjátiu talsins. En hvert skyldu þeirhalda með þau. Hún vissi það eitt, að alltaf var haldið upp i móti. Þau fóru eftir troðning- um sem lágu i mörgum hlykkjum upp á hálend- ið. Einu sinni fór Ámi að reyna að átta sig eftir stjörnunum, en það mis- tókst, af þvi að vegurinn lá svo hlykkjótt. Að lokum birti af degi. Þá gátu þau loks séð framan i illræðismenn- ina. Ekki var hægt að segja, að þeir vektu traust eða tiltrú við fyrstu sýn. Þeir voru tuttugu og sjö að tölu, allir riðandi og vel vopn- aðir. Aldrei fannst Berit að hún hefði séð menn harðneskjulegri eða villtari á svipinn. En þrátt fyrir það, voru þeir i raun og veru glæsilegir og hefðu sómt sér á leik- sviði eða i konungshirð fremur en hér úti i fjallaauðninni. Allir voru þeir háir og vel vaxnir, i hárauðum stig- vélum, hnéháum og samlitum þröngum bux- um og fagurbláum jökk- um, skreyttum með gylltum snúrum og borðum. Á höfðinu var stór vefjarhöttur, að sið Araba, og við beltið skeiðarhnifur, sverð og marghleypa. Og þótt þessi fatnaður væri hvorki nýr eða hreinn, þá voru þeir þó glæsileg- ir i þessum búningum. Siðskeggjuð andlitin og fagurlimaðir, knálegir reiðskjótarnir full- komnuðu myndina. Seinna frétti Árni að þessir ránsmenn væru af þjóðflokki sem kall- aðir væru „lúrarar”, það er launsátursmenn eða njósnarar, og væru þeir þekktir um Vestur- Asiu fyrir ósvífni,rán og grimmd. Er sagt að brjóstgæða geti menn eins vænzt af hungruðu tigrisdýri og „lúrara” i ránsferð. Heimkynni þeirra eru aðallega i há- fjöllum austan við Bagdad, en oft fara þeir i langferðir til rána. Stundum alla leið suður undir Indlandshaf. Það var i slikri „langferð” sem þeir hittu á þetta ferðafólk og handtóku suma, en drápu hina. Allan daginn var þeyst eitthvað inn á hálendið sem leit út fyrir að vera nær þvi óbyggt og gróð- urlaust. Hvað eftir ann- að var farið fram hjá klettóttum, gróðurlaus- um fjallatindum. Milli fjallgarðanna voru viða djúpir, þröngir dalir og sjóðheitir. Eftir dölun- um rann ætið lækur eða litil á, og meðfram ánni talsverður gróður. Hér voru fátækleg bændabýli á við og dreif. I kringum fátækleg bæjarhúsin ræktuðu bændurnir bygg, hrisgrjón og syk- urrófur. Auk þess fylgdu hverju býli nokkur pálmatré með döðlum og appelsinutré. Þegar Berit sá I fyrsta sinni þessa gullnu ávexti fullþroskaða rétt hjá götunni, gat hún ekki staðizt freistinguna, en sneri hestinum út af veginum og ætlaði að slita eina appelsinu, en i sama bili hvein við i svipuól, sem skall bæði á henni og hestinum, og hún var rekin áfram upp á veginn aftur. „Ó, hve appelsina hefði verið kærkomin”, hugsaði Berit. Hún harkaði af sér sársaukann eftir svipuólina en tárin blik- uðu á hvörmunum. Þá sýndi einn ræning- inn það, að hann hafði mannlegar tilfinningar. Er hann sá hvað Berit var sárþjáð af þorsta, þá sneri hann hesti slnum út úr götunni, braut grein af einu trénu með ávöxtum áogfékk Berit. Seinna náði hann lika i ávexti fyrir öll hin. Við þetta hresstust þau öll mikið. En þessar appelsinur voru það eina matar- kyns sem þeu fengu að bragða allan daginn. Annars héldu þau áfram hvildarlaust langt fram yfir sólsetur, og stönz- uðu aðeins til að vatna hestunum. Oftast fóru þau á hröðu brokki. öll voru þau þvi örmagna af þreytu, er loks var num- ið staðar um kvöldið. Nú fengu þau lika fyrstu máltiðina þennan langa dag. Það var eins konar grautur, búinn til úr hrisgrjónum, byggi, hveiti og uppbleyttu brauði. Með þessum graut fengu þau nóg af mjólkurlausu kaffi, sætu. Þau fengu leyfi til að nota eitt af sinum eig- in tjöldum til að sofa i um nóttina. Þau fleygðu sér öll út af i öllum föt- um. 2. Fyrir sólaruppkomu var aftur haldið af stað. Áður en lagt var upp, fengu þau brauð, döðlur og svart kaffi. Siðan var stigið á bak. Fætur Árna voru ekki f jötraðir undir kvið á hestinum, eins og daginn áður. Ræn- ingjarnir töldu það ó- þarft þar sem þeir voru komnir svo langt inn i landið. Auk þess höfðu þeir tekið af honum marghleypuna. Allt var annars með liku sniði og daginn áður. Aftur sáu þau gróðurlaus, há fjöll og fóru yfir djúpa þrönga dali, þar sem hitinn var óþolandi. Ber- it hélt að þetta ferðalag og þetta óbreytanlega landslag ætlaði aldrei að taka enda. t Og ennþá var hún sárhrygg yfir örlögum frænda sins og vinar. Ekki hafði hún fengið að segja eitt ein- asta ástarorð við hann, áður en hann lézt, og þau höfðu ekki einu sinni fengið að jarða hann. Þarna lá hann eftir liðið lik. Þessi sorglega sýn hvarf ekki frá augum hennar. Þegar leið að hádegi varð hitinn nær óþol- andi. Ekkert þeirra var útbúið i svona langferð á hesti, og öll fengu þau ó- Dúfa ...HVER fJÐ Aerr/7 l//£Ri /ifíA/OSLY5 ?

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.