Fréttablaðið - 11.01.2006, Page 2

Fréttablaðið - 11.01.2006, Page 2
2 11. janúar 2006 MIÐVIKUDAGUR Viltu hætta að reykja? Ókeypis aðstoð ÆTTUM SAMAN 800 6030 Reyksíminn SPURNING DAGSINS Björn, er erfitt að vera leikari? „Nei, þetta er frekar þægileg inni- vinna.“ Björn Hlynur Haraldsson verður meðal 20 evrópskra leikara sem kynntir verða á kvik- myndahátíðinni í Berlín sem vonarstjörnur á hvíta tjaldinu. Birni skilst að kynningin gangi út á kokkteilboð, að brosa og vera hress. KJARAMÁL Fjórðungur af öllum leiðbeinendum í leikskólum Kópa- vogs hefur sagt upp störfum sínum og taka uppsagnirnar flestar gildi næstu mánuði nema veruleg brag- arbót verði gerð á launakjörum umræddra starfsmanna. Tæp 60 prósent allra starfs- manna leikskóla bæjarins eru leið- beinendur og ljóst að í óefni stefnir gangi uppsagnir fjórðungs þeirra eftir. Þar að auki hafa níu menntað- ir leikskólakennarar tilkynnt upp- sagnir sínar til leikskólanefndar og munu því alls tæplega 60 manns hætta störfum á næstu misserum. Rúmlega 30 þeirra setja þann fyrirvara á uppsagnir sínar að batni launakjör verulega frá því sem nú er komi til greina að endurskoða upp- sagnirnar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er ekki sjálfgefið að með því einu að jafna samninga þá er Reykjavíkurborg hefur gert og eru hærri en annars staðar í land- inu eins og meirihluti bæjarstjórnar hefur mælt fyrir dugi til enda finnst allnokkrum, sem Fréttablaðið náði tali af, þeir hafi verið dregnir á asna- eyrum of lengi og verðskuldi jafnvel meira. -aöe TÓMLEGT Margir leikskólar í Kópavogi eru undirmannaðir og tæplega 60 starfsmenn hafa tilkynnt formlega um uppsagnir. Frekari lokanir deilda virðast því óumflýjanlegar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Uppnám framundan í leikskólamálum Kópavogs: Sextíu manns hafa sagt upp LÖGREGLA Karlmaður á sextugs- aldri sem lögreglan á Ísafirði hafði til rannsóknar vegna kæra vegna kynferðisbrota svipti sig lífi í gærmorgun. Bróðir mannsins hélt því fram í samtali við fréttastöðina NFS í gær að umfjöllun DV um mál mannsins hefði orðið til þess að hann tók eigið líf. DV birti í gær mynd af manninum á forsíðu. Rannsókn málsins var á frumstigi hjá lögreglu. ■ Kynferðisbrot í rannsókn: Svipti sig lífi ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� ÍSRAEL, AP Líðan Ariels Sharon, forsætisráðherra Ísraels, virð- ist fara hægt batnandi. Læknar hófu á mánudag að vekja hann úr lyfjadái sem honum hefur verið haldið í síðan hann fékk alvarlegt heilablóðfall fyrir viku. Þegar lyfjagjöfin var minnkuð fór hann að anda af sjálfsdáðum og hreyfði hægri hönd og fótlegg. Í gær hreyfði hann svo vinstri höndina og þegar sonur hans talaði við hann, reis blóðþrýstingur Shar- ons örlítið, að sögn lækna. Sharon er ekki lengur talinn í bráðri lífshættu, að sögn lækna hans á Hadassah-sjúkrahúsinu í Jerúsalem, þó ástand hans sé enn alvarlegt. - smk Forsætisráðherra Ísrael: Sharon sýnir örlitla framför Í JERÚSALEM Gyðingar biðja fyrir Sharon. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FÉLAGSMÁL Arnþór Helgason, sem í fyrradag var fyrirvaralaust sagt upp störfum sem framkvæmda- stjóri Öryrkjabandalags Íslands, hefur ákveðið að ráðfæra sig við lögfræðing vegna starfslokanna. „Mér var eindregið ráðlagt að leita til lögfræðings og fá hann til að gera starfslokasamning fyrir mig. Enda liggur það í hlutarins eðli að þegar Öryrkjabandalagið er með lögfræðing á sínum vegum þá hlýtur lögfræðingur að koma að slíkum starfslokasamningi á mínum vegum,“ segir hann. Arnþór segir sögusagnir um samstarfssörðugleika milli hans og Sigursteins rangar: „Ég studdi Sigurstein með ráðum og dáð og hvatti hann áfram frekar en hitt. Ég hlakkaði til að taka þátt í þess- um skipulagsbreytingum.“ Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalagsins, segir skipu- lagsbreytingarnar einu ástæðu uppsagnarinnar. „Þegar gerðar eru grundvallarskipulagsbreyt- ingar verður að gera breytingar á starfi framkvæmdastjórans líka.“ Arnþór hafi því ekki getað sinnt því starfi áfram. Sigursteinn þakkar Arnþóri óeigingjarnt starf í þágu fatlaðra og segir nýjan framkvæmdastjóra verða ráðinn. Fréttastofan NFS greindi frá því að Hafdís Gísladóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Hverfamiðstöðvar Miðbæjar og Hlíðahverfis, taki við starfinu. Sigursteinn segir rétt að hún komi til greina. Hins vegar sé ekki búið að ganga frá ráðningu nýs fram- kvæmdastjóra. - gag ARNÞÓR HELGASON Fyrrum framkvæmda- stjóri Öryrkjabandalagsins segir að hann hafi hlakkað til að taka þátt í skipulags- breytingunum. Nýr framkvæmdastjóri verður ráðinn til Örykjabandalagsins: Arnþór leitar til lögfræðings SIGURSTEINN MÁSSON Formaður Öryrkja- bandalagsins segir að nauðsynlegt hafi verið að segja Arnþóri upp þar sem breyta átti starfi hans. SJÁVARÚTVEGUR Hrun stofnsins eða breyttar göngur eru mögu- legar ástæður þess að ekki hefur fundist loðna í leit Hafrannsókna- stofnunar. Árni Friðriksson RE, rannsóknarskip Hafró, er nú víð síldarleit, en leit að loðnu var hætt um síðustu helgi og ákveðið að opna ekki fyrir veiðar að sinni. „Það er samdóma álit þeirra sem þátt tóku í leitinn og okkar hér á Hafrannsóknastofnun að skynsamlegt væri að gefa þessu nokkra daga áður en farið yrði af stað aftur með leit, í þeirri von að eitthvað breyttist í millitíð- inni,“ segir Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri á nytjastofnasviði Haf- rannsóknastofnunar. Hann segir ekki endanlega ákveðið hversu lengi verði beðið þar til leit heldur áfram. „Þrjú skip með tilrauna- veiðileyfi líta reglulega í kringum sig og um leið og eitthvað heyrist frá þeim förum við strax af stað. Að öðrum kosti förum við ekki að hugsa um þetta fyrr en undir eða eftir helgi.“ Þorsteinn segir ekki ljóst af hverju engin finnst loðnan, en fræðimenn vilji, að svo stöddu, ekki leggja út frá því að stofninn sé hruninn. „Breytingar á göngu- mynstri og útbreiðslu hennar hafa verið slíkar síðustu ár,“ segir hann og bendir á að Ísland sé á suðurmörkum útbreiðslusvæðis loðnunnar. Af þeim sökum segir hann alla hlýnun sjávar hafa nei- kvæð áhrif á loðnuna hvað varði komu hennar á Íslandsmið. „Vís- bendingar eru um að ungloðnan hafi fært sig vestar og í kaldari sjó við Vestur-Grænland og af því að við höfum ekki náð að mæla ungloðnu af þessum árgangi sem við erum að fara að stunda veiðar úr höfum við ekki treyst okkur til að segja af eða á um þessi mál. Þetta er bara algjör óvissa.“ Fordæmi eru fyrir því að loðna finnist ekki þar sem menn ætla. að hún sé. Haustið 2004 hafi staðið yfir umfangsmikil leit að sögn Þor- steins. „Þá var leitað með mörgum skipum án árangurs, en svo kom hún bara upp úr hafinu, og enginn veit með vissu hvaðan, 6. janúar í fyrra. Núna eru tveir möguleikar í stöðunni. Annars vegar að stofn- inn sé hruninn og hins vegar að umhverfisaðstæður valdi því að loðnan komi seint inn og eftir leið- um sem við ekki þekkjum.“ Gunnþór B. Ingvason, aðstoð- armaður forstjóra hjá Síld- arvinnslunni í Neskaupstað, segir menn ekki enn orðna verulega áhyggjufulla vegna þess að loðnan hafi ekki fundist. „En auðvitað er öll óvissa til að plaga menn,“ bætir hann við og segir alla hljóta gera sér ljósan alvarleika þess ef ekki finnst loðnan. „Óhemjuverðmæti fara þá forgörðum og fjöldi fólks bæði til sjós og lands verður fyrir tekjumissi. Öll keðjan verður fyrir gríðarlegum skelli, fyrirtæki, starfsfólk og þjóðarbúið allt.“ olikr@frettabladid.is LOÐNUSKIP Í NORÐFJARÐARHÖFN Hlé hefur verið gert á leit að loðnu en hjá Hafrann- sóknastofnun segjast menn gera sér grein fyrir því hversu miklir hagsmunir séu í húfi og því verði ekki beðið lengi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Óvissa ríkir um af- drif loðnustofnsins Hafrannsóknastofnun hefur gert hlé á loðnuleit, en hún hefur staðið yfir án ár- angurs. Annaðhvort er stofninn hruninn eða hlýnun sjávar hefur breytt göng- um. Sjávarútvegsfyrirtæki eru í uppnámi. Leit hefst aftur um eða eftir helgina. VIÐSKIPTI Áfrýjunarnefnd sam- keppnismála hefur nú til skoðun- ar kaup FL Group á flugfélaginu Sterling. Athugunin beinist að því hvort kaupin hafi verið tilkynn- ingarskyld hér á landi en ekki var leitað álits samkeppnisyfirvalda áður en þau voru gerð. Kaupin voru tilkynningar- skyld í mörgum öðrum löndum en stjórnendur FL Group mátu að svo væri ekki hér á landi. Verði niðurstaða samkeppnisyf- irvalda sú að fyrirtækinu hafi borið að tilkynna um kaupin er hægt að rannsaka hvort þau hafa neikvæð áhrif á samkeppni hér á landi. ■ Samkeppnisyfirvöld: Skoða kaup FL á Sterling SVEITARSTJÓRNARMÁL Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri Fjarða- byggðar, hefur ákveðið að láta af starfi bæjarstjóra að loknu kjör- tímabilinu í vor. „Ég byrjaði af krafti í bæjarmál- unum í Neskaupstað árið 1973 og hef verið bæjarstjóri Neskaup- staðar, og síðar Fjarðabyggðar, frá árinu 1991. Mér finnst einfaldlega kominn tími til að hleypa öðrum að,“ segir Guðmundur. Þann 9. júní í sumar munu Fjarða- byggð, Austurbyggð, Fáskrúðs- fjarðarhreppur og Mjóafjarð- arhreppur renna saman í eitt sveitarfélag. Guðmundur segir ákvörðun sína ekki tengjast sam- einingunni á nokkurn hátt og hann segist rísa ánægður úr stóli bæj- arstjóra. - kk Fjarðabyggð: Bæjarstjórinn hættir í vor GUÐMUNDUR BJARNASON Hefur gegnt bæjarstjórastöðu síðan 1991.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.