Fréttablaðið - 11.01.2006, Síða 4
4 11. janúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
EFTIRLAUN Drög að frumvarpi um
breytingar á lögum um eftirlaun
ráðherra hafa verið kynnt for-
mönnum stjórnmálaflokkanna
og er stefnt að því að leggja fram
frumvarp fljótlega eftir að þing
kemur saman. Ekki fást upplýs-
ingar um það út á hvaða tillög-
urnar ganga en ráðherra lofaði
í janúar í fyrra að breyta fyrir-
komulaginu.
Í lögfræðiúttektinni kemur þó
fram að ekki er einfalt að breyta
lögunum, taka þarf meðal annars
tillit til þess hvort menn
hafi hafið töku eftirlauna og hvort
eftirlaunarétturinn sé stjórnar-
skrárvarin eign manna eða ekki.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar,
kveðst líta svo á að málið sé óút-
kljáð, ákveðið hafi verið að setja
það á ís þar til þingið kæmi saman
í janúar. „Við eigum eftir að hitt-
ast og fara aftur yfir málið og
ná lendingu. Málið er í sjálfu sér
lögfræðilega snúið, mistökin eru
þegar gerð. Spurningin er hvernig
hægt sé að vinda ofan af því
þannig að það standist
lögfræðilega og hvað menn vilja
ganga langt,“ segir hún.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri-grænna, segir
óttækt að „menn geti verið á full-
um launum og þegið eftirlaun. Við
erum tilbúin til að greiða fyrir því
að þetta verði að veruleika,“ segir
hann.
Guðjón Arnar Kristjánsson,
formaður Frjálslynda flokksins,
segir að stjórnarandstaðan hafi
talið rétt að fresta málinu fram
í byrjun ársins. „Þannig að við
skildum við hans hugmynd-
ir og sögðum hvorki já né nei við
neinu,“ segir hann og telur að allir
hljóti að sjá og viðurkenna að það
gangi ekki upp að menn fái eftir-
laun samhliða launum. Það verði
að afnema í framtíðinni.
Hjálmar Árnason, formaður
þingflokks Framsóknarflokksins,
kannast við það að breytingatil-
lögur liggi fyrir forsætisnefnd
og telur að þverpólitísk samstaða
hljóti að nást.
ghs@frettabladid.is
Skráning fer fram á www.landsbanki.is og í Þjónustuveri bankans í síma
410 4000. Allar nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara er að finna á
www.landsbanki.is. Í boði er kaffi og veitingar. Fundargestir verða leystir
út með lítilli gjöf.
410 4000 | www.landsbanki.is
Fimmtudagskvöld
eru fjármálakvöld
Fyrirlestur í Íþróttahúsi Breiðabliks í Smáranum, Kópavogi
12. janúar kl. 20
- Efnahagsmál í upphafi árs
- Hvar liggja fjárfestingatækifærin?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
09
11
01
/2
00
6
SUÐUR-KÓREA, AP Suðurkóreski
vísindamaðurinn sem sagðist
hafa klónað stofnfrumur fóstur-
vísa árið 2004 falsaði niðurstöður
sínar á hneykslanlegan hátt og á
það skilið að vera hegnt, að sögn
níu manna nefndar við Háskólann
í Seúl sem Hwang Woo-suk vinn-
ur hjá. Yfirlýsing nefndarinnar,
sem gert var að rannsaka verk
Hwangs, hefur gjöreyðilagt mann-
orð hans sem klónunarsérfræð-
ings, en í síðasta mánuði upplýsti
sama nefnd að hann hefði einnig
falsað niðurstöður rannsókna um
þróun stofnfrumulína ákveðinna
sjúklinga.
Hins vegar segir nefndin að
Hwang hafi í raun klónað fyrsta
hundinn, hinn þriggja ára gamla
Snuppy.
Árið 2004 birti Hwang grein í
bandaríska tímaritinu Science og
hélt því fram að hann hefði klónað
fóstur og tekið úr því stofnfrumur,
en nefndin segir hann ekki hafa
nokkra sönnun fyrir þeim árangri.
Vísindaheimurinn varð uppnum-
inn yfir rannsóknum Hwangs
því miklar vonir eru bundnar við
notkun klónaðra stofnfruma til
lækninga á sjúkdómum svo sem
Parkinsons og sykursýki.
Hwang hefur viðurkennt mis-
tök en segir óvini sína hafa eyði-
lagt rannsóknina og fullyrðir að
hann búi yfir þekkingu til að geta
klónað stofnfrumur. - smk
Suðurkóreski vísindamaðurinn svindlaði:
Klónaði ekki stofnfrumur
WOO-SUK MEÐ HUNDINN Ekki er efast um
að hinn þriggja ára gamli Snuppy sé fyrsti
hundurinn sem var klónaður.
NOREGUR Íslenskur maður er meðal
fjögurra skipstjóra sem játað
hafa að hafa staðið fyrir umtals-
verðu smygli á áfengi og tóbaki til
Noregs síðustu þrjú árin.
Eru mennirnir skipstjórar á
tveimur flutningaskipum Hans-
eatic fyrirtækisins og hafa stund-
að að kaupa sígarettur og sterkt
áfengi í Hollandi og Þýskalandi
og smyglað til Noregs en smygl
til landsins hefur margfaldast síð-
astliðin ár. Dómur ætti að liggja
fyrir yfir mönnunum eftir í lok
mánaðarsins.
Smygl á áfengi og tóbaki:
Íslendingur
handtekinn
VENESÚELA, AP Einn ástsælasti
söngvari Bandaríkjanna lýsti for-
seta sínum, George W. Bush, sem
„skæðasta hryðjuverkamanni
heims“ í útvarps- og sjónvarps-
viðtali í Venesúela um helgina.
„Íslandsvinurinn“ Harry Bela-
fonte kallaði Bush harðstjóra,
sakaði hann um að hunsa fátæka
landsmenn sína og að hafa hafið
stríð á hendur Írökum á röngum
forsendum.
Belafonte var í heimsókn hjá
Hugo Chavez, forseta Venesúela,
sem hefur látið senda eldsneytis-
olíu á niðurgreiddu verði til fátæk-
ari svæða Bandaríkjanna. - smk
Ádeila á Bandaríkjaforseta:
Kallar Bush
harðstjóra
HARÐAR ÁSAKANIR Söngvarinn ástsæli
Harry Belafonte og Hugo Chaves, forseti
Venesúela.
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 10.01.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 60,84 61,14
Sterlingspund 107,6 108,12
Evra 73,62 74,04
Dönsk króna 9,869 9,927
Norsk króna 9,238 9,292
Sænsk króna 7,869 7,915
Japanskt jen 0,5325 0,5357
SDR 88,29 88,81
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
103,2039
DÓMSMÁL Tæplega þrítugur maður
hefur verið dæmdur í fjögurra
mánaða fangelsi fyrir fólskulega
árás fyrir utan skemmtistaðinn
Rex í Austurstræti í ágúst 2004.
Árásin var að mati dómsins
„einkar fólskuleg og lítilmann-
leg.“ Orðaskipti höfðu átt sér stað
milli mannsins og annars um
fertugt. Báðir voru drukknir. Sá
yngri felldi hinn í jörðina og sló
ítrekað í andlitið „jafnvel eftir að
ljóst var orðið sá eldri var hætt-
ur að sýna nokkur viðbrögð.“ Sá
sem fyrir árásinni varð kjálk-
abrotnaði, missti tönn og átti lengi
í meiðslum sínum. Dómurinn er
skilorðsbundinn í tvö ár. - óká
Sekur um fólsku og lítilmennsku:
Margbarði
liggjandi mann
Breytingar á eftirlaunum
ræddar í forsætisnefnd
Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um eftirlaun ráðherra liggja fyrir forsætisnefnd Alþingis en Halldór Ás-
grímsson forsætisráðherra hefur látið gera lögfræðiúttekt á því hvaða leiðir eru færar til breytinga á lögunum.