Fréttablaðið - 11.01.2006, Side 22

Fréttablaðið - 11.01.2006, Side 22
[ ] “Kom skemmtilega á óvart. Mjög vel skipulögð og góð kennsla. Frábær kennari og gott námsefni!” Aldís Einarsdóttir, 39 ára Háskólanemi. ...næsta námskeið hefst 30. janúar ...SELFOSS 25. janúar Skráning er hafin á www.h.is og í síma 586-9400. Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið: Frábært, markvisst, hnitmiðað, nytsamlegt, áhugavert, krefjandi, skemmtilegt, mjög gott, þægilegt, lipurð, skipulagning, einbeiting, jákvæðni, mikil aðstoð, góður kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta. Námstækninámskeið - 2 vikna - hefst 14. janúar (nokkur sæti laus). Vorönn 2006 Viltu rifja upp grunnskólafögin? Í prófadeild Námsflokkanna er kennd enska, danska, íslenska og stærðfræði á grunnskólastigi. Grunnnám samsvarar 8. og 9. bekk og fornám samsvarar 10. bekk. Námið er ætlað þeim sem ekki hafa lokið grunnskólaprófi eða vilja upprifjun frá grunni. Vantar þig áfanga í heilbrigðisgreinum? Nokkrir áfangar í heilbrigðisgreinum verða kenndir á vorönn; NÆR 103 • LYF 113 • ASU 104 • ÖLD 105 • SÁL 123 • FOS 104 • FTL 103 Áfangar á grunn- og framhaldsskólastigi eru kenndir er í Mjódd frá 16. jan. Skólagjöld miðast við kennslustundafjölda. Innritun fer fram frá 6. jan. kl. 9:00-16:00 í Mjódd, Þönglabakka 4 og í síma 567 7050. Viltu bæta lestrar- og skriftarkunnáttu þína? Námsflokkarnir veita greiningu í lestri og sérkennslu í lestri, ritun og stafsetningu þar sem hverjum og einum er mætt þar sem hann er staddur. Upplýsingar veitir María I. Hannesdóttir lestarsérkennari í síma 551 2889 og Björg Árnadóttir forstöðumaður Námsflokkanna í síma 411 7000. Íslenska fyrir útlendinga Námsflokkarnir standa fyrir íslenskukennslu fyrir útlendinga í samvinnu við Mími-símenntun. Innritun og upplýsingar hjá Mími-símenntun í síma 580 1800. www.namsflokkar.is • nfr@namsflokkar.is Djúpt í ölduna er yfirskrift námskeiðs í fimm rytma dansi sem verður haldið í Fólkvangi á Kjalarnesi helgina 20. til 22. janúar. Sigurborg Kr. Hannes- dóttir veit meira um það. „Fimm rytma dans er góður fyrir líkama og sál og er iðkaður við margs konar tónlist. Ef ég á að skilgreina hann nánar get ég sagt að hann sé nær jóga en hefðbundnum dansi. Í rytmunum fimm þarf ekki að læra nein spor en í þeim er mismunandi öndun, hreyfing og orka og þetta er sérlega áhrifarík leið til að opna fyrir tjáningu og losa um hindranir.“ Sigurborg lýsir því síðan hvernig dansað er í gegnum þessa fimm rytma sem kallast flæði, stakkató, kaos, lýrík og kyrrð. „Það er byrjað hægt og farið mjúkt af stað en keyrt smám saman upp þar til hápunkti er náð – sem er kaos – og svo er farið hægt niður aftur. Þetta gerist eiginlega af sjálfu sér og þegar dansað er í gegnum þessa röð myndar dansinn öldu.“ Leiðbeinandi á námskeiðinu er Alain Allard frá Bretlandi. Að sögn Sigurborgar er þetta fimmta námskeið hans hér á landi, það fyrsta var árið 2000. „Alan hefur mikla reynslu af kennslu og er það vinsæll að hann er bókaður allt að ár fram í tímann,“ segir hún. Hún segir námskeiðið henta öllum, án tillits til aldurs, kyns, lögunar eða reynslu. Það eina sem þurfi sé löngun til að einbeita sér að hreyfingunni. En er það meiningin að dansa alla helgina? „Það er alveg frjálst. Annaðhvort er að dansa alla helgina eða mæta bara á föstudagskvöldið. Það er svo magnað að þó að maður sé að niðurlotum kominn eftir öldudal í dansinum öðlast maður nýja orku, bæði líkamlega og tilfinningalega og getur haldið áfram. Þannig yfirstígur maður hindranir og sú reynsla nýtist manni líka í daglegu lífi. Dansinn tengir líkama og sál og það eru svo yndislegir hlutir sem gerast í dansinum, kannski strax og kannski síðar. Það er eins og opnist blóm.“ Sigurborg gefur nánari upplýsingar um námskeiðið í síma 866 5527. ■ Dans sem tengir líkama og sál Endurmenntunarstofnun verð- ur með sjálfsstyrkingarnám- skeið fyrir konur í janúar. Námskeiðið heitir Sjálfsstyrking og samskipti fyrir konur og er þar aðaláhersla lögð á að auka sveigjanleika og sjálfsöryggi í samskiptum. Námskeiðið verður haldið 16.-23. janúar og er kennt á mánudögum og miðvikudögum frá klukkan 16.30-19.00. Kennarar á námskeiðinu eru Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal, sérfræðingar í klínískri sálfræði, og námskeiðsgjald er 32.800 krónur. ■ Námskeið fyrir konur „Sumir stunda hugleiðslu, aðrir fara út að skokka en dansinn er mín leið til að rækta sjálfa mig,“ segir Sigurborg. Alain Allard hefur mikla reynslu í að kenna hreyfingu og hefur UKCP-réttindi í sálfræðimeðferð. Sjálfstraust er mikilvægt í samskiptum. Vatn er bráðnauðsynlegt öllum námsmönnum. Með því að drekka mikið af vatni má meira að segja halda sér vakandi heilu næturnar. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.