Fréttablaðið - 11.01.2006, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 11.01.2006, Qupperneq 34
MARKAÐURINN 11. JANÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR10 F R É T T A S K Ý R I N G Með sölu Straums á tæplega fjórðungshlut í Íslandsbanka til nokkurra fjárfesta virðist loksins hafa tekist að skapa kjölfestuhóp eigenda bankans sem stefnir í sömu átt. Karl Wernersson hefur leitt þá vinnu sem leiddi til sölu Straums á hlut sínum. Hann leiðir fjárfestingarfé- lagið Milestone, en tvö systkina hans eru meðeigendur hans í því félagi. Hann hefur um langt skeið unnið með Björgólfi Thor Björgólfssyni í stjórn Actavis og var lykilmaður, sem stór eigandi Delta, í því ferli að sam- eina Delta og Pharmaco sem leiddi til uppbyggingar stórfyrirtækis í samheitalyfjageiranum. Upp á síðkastið hefur Karl aukið samstarf sitt við Baug og Jón Ásgeir Jóhannesson, en ákveðin togstreita hefur verið á milli stórveldanna Bónussfeðga og Björgólfsfeðga undan- farna mánuði og tengsl Karls við báða þessa aðila hafa sennilega haft mikla þýðingu um það að lending náðist með sölu hlutar Straums. BJARNI LEITAR HLUTHAFA Samstarf Karls Wernerssonar og Bjarna Ármannssonar, forstjóra bankans, hefur gengið mjög vel og hafa þeir staðið saman um stefnu og stjórn bankans gegnum þykkt og þunnt. Bjarni hefur búið við ósætti á heimilinu um langt skeið og á tímabili var hann með bankaráð yfir sér þar sem meirihlutinn hafði horn í síðu hans. Bjarna var nauðsyn á því að fá sterka hluthafa inn í bankann sem myndu styðja stefnu hans. Fjársterkir aðilar voru ekki á hverju strái, þótt þeim hafi farið fjölgandi að undanförnu, og meðal þeirra sem Bjarni fékk til liðs við bankann voru Karl, Steinunn Jónsdóttir úr Bykofjölskyldunni og Jón Snorrason, sem er kenndur við Húsasmiðjuna. Einar og Benedikt Sveinssynir studdu Bjarna, enda hafði Bjarni staðið með þeim í hræringum þegar Björgólfsfeðgar keyptu hvert fyrirtækja Kolkrabbans á fætur öðru. Sameining Sjóvár og Íslandsbanka var klár varnarað- gerð, en án hennar hefðu aðilar tengdir Landsbankanum komist yfir fyrirtækið, líkt og Eimskip og fleiri félög sem féllu nóttina sem kölluð hefur verið “Nótt hinna löngu bréfahnífa,” þegar stórfyrirtæki landsins skiptu um eigendur. ÁSÓKN LANDSBANKANS Björgólfsfeðgar voru ekki hættir. Þeirra vilji stóð til þess að sameina Landsbankann og Íslandsbanka. Landsbankinn og Burðarás keyptu hlut í Íslandsbanka og var hugsunin sú að ýta á eftir slíkri þróun. Þessi leið mætti andstöðu hjá Bjarna og Einari Sveinssyni formanni bankaráðsins. Landsbankinn varð að koma þessum hlutum frá sér og Helgi Magnússon, sem verið hafði í bankaráði bankans og naut þar fulltingis Lífeyrissjóðsins Framsýnar og fleiri, keypti hlut í bankanum fyrir tíu milljarða með framvirkum samningum og Orri Vigfússon keypti fyrir fimm milljarða, einnig með framvirkum samningi. Þótt þeir eigi báðir vel til hnífs og skeiðar, þá voru þeir í það minnsta ekki á þessum tíma taldir til milljarðamæringa. DANSAÐ VIÐ VÍS Í ljósi þess að Karl hafði unnið með Björgólfsfeðgum töldu margir að hann myndi á endanum ganga í lið með þeim. Landsbankamenn töldu í það minnsta sjálfir að þeir hefðu meirihlutafylgi í hluthafahópnum. Í það minnsta töldu þeir sig hafa svo sterka stöðu að lagt var á ráðin um að sameina Vátryggingafélag Íslands og Íslandsbanka. Þegar til átti að taka höfðu þeir ekki það afl í hluthafa- hópnum sem þurfti til eignasölu sem var nauðsynlegur undanfari sameiningar. Karl keypti hins vegar Sjóvá og styrkti enn stöðu sína. Mikil læti urðu í kringum kaupin og sauð upp úr á milli Straums og meirihluta stjórnenda Íslandsbanka. Fulltrúar Straums í stjórninni voru ósáttir og Steinunn Jónsdóttir mun einnig hafa verið ósátt með aðdraganda viðskiptanna. Viðskiptin gengu hins vegar í gegn án athugasemda þar til bærra yfirvalda. STRANDAR Á KB BANKA Viðskiptin nú eiga sér töluverðan aðdraganda. Straumur hafði leitað hófanna víða með sölu á sínum hlut. Ólafur Ólafsson var heitur á tímabili og meðal þess sem Straumur hefði fengið sem greiðslu í þeim viðskiptum hefði verið Olíufélagið með Esso vörumerkið innan- borðs. Slík býtti voru inn í myndinni rétt fyrir jól þegar til stóð að Ólafur tæki stóran hlut ásamt Karli, Jóni Ásgeiri og FL Group. Straumur krafði FL Group um öll bréf þeirra í KB banka, en menn voru ekki tilbúnir að láta þau öll af hendi. Upp úr viðræðunum slitnaði milli jóla og nýárs. FUNDUR SETUR ALLT AF STAÐ Karl hitti síðan Björgólf Thor eftir áramótin og þá komst skriður á málið sem lauk um helgina með sölu Straums. Eftir viðskiptin stendur Karl Wernersson sterkur í íslensku viðskiptalífi og er klárlega kominn í hóp þeirra stóru þar. Karl hefur verið í fjárfestingum í smásölu í Bretlandi bæði einn og með öðrum, meðal annars með Baugi. Margir búast við því að tengsl Karls og Baugs eigi eftir að eflast og í því liggi tækifæri, bæði fyrir bankann og þá sjálfa. Eitt er víst að þeir sem nú kaupa bréf fyrir tugi milljarða í Íslandsbanka eru ekki fyrir kyrrstöðu né eru sérlega hægfara í fjárfestingum. Því má búast við að bankinn fari fram með meiri hraða og styrk en áður og spennandi að fylgjast með fléttunum í framhaldinu. Eitt er víst að viðskipti helgarinnar voru fyrsti þáttur nýs kafla í átakasinfóníunni Íslandsbanki. Næsti kafli Íslandsbankasinfóníunnar Saga Íslandsbanka undanfarinna ára hefur verið eins og í margslunginni átakasinfóníu. Kaflaskil urðu um síðustu helgi og búast má við að leikið verði á strengina í næsta þætti af samhentari sveit en upp á síðkastið þegar ómstríðari hljómar hafa einkennt sinfóníuna. Hafliði Helgason rifjaði upp nokkra takta í aðdraganda kaflaskiptanna. GLAÐIR Á GÓÐRI STUND Karl Wernersson stærsti hluthafi Íslandsbanka og Bjarni Ármannsson hafa verið einhuga um störf og stefnu Íslandsbanka. Ný staða í hluthafahópnum opnar ný tækifæri fyrir bankann.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.