Fréttablaðið - 11.01.2006, Side 38
MARKAÐURINN
F Ó L K Á F E R L I
11. JANÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR14
F Y R I R T Æ K I
Intrum Justitia var stofnað í Svíþjóð árið 1923
af Sven nokkrum Göranson, upphaflega sem
lögmannsstofa. Fyrirtækið fór þó ekki að taka
á sig endanlega mynd fyrr en Bo Göranson,
sonur stofnandans, tók við rekstrinum rúmum
þrjátíu árum síðar. Göranson breytti Intrum
úr lögmannsstofu í alhliða ráðgjafar- og
innheimtufyrirtæki. „Þá er ekki lengur um að
ræða lögmannsstofu af gamla skólanum heldur
fyrirtæki sem fylgir öllu ferlinu. Allt frá því
reikningur er gefinn út og þar til fjárhæðin
kemur aftur í kassa kröfuhafa,“ segir
Sigurður Arnar Jónsson
forstjóri.
Intrum Justitia
er í dag alþjóðlegt
fyrirtæki með útibú
í tuttugu og einu
Evrópulandi auk þess að
vera í samstarfi við hundrað
og tuttugu umboðsskrifstofur. Hjá
fyrirtækinu starfa tvö þúsund og fjögur
hundruð manns víðs vegar um Evrópu.
Upphaf Intrum á Íslandi má rekja til árs-
ins 1980, þegar Ásgeir Thoroddssen lögmað-
ur, sem er í dag stjórnarformaður Intrum
á Íslandi, stofnaði Lögheimtuna ásamt
Ingólfi Hjartarsyni. Árið 1984 hitti Ásgeir
Bo Göranson í Lundúnum og gerði við hann
umboðssamning.
KÚNNAHÓPURINN ENDURSPEGLAR BANKA-
MARKAÐINN
Árið 1995 var ákveðið að stofna sérstakt
fyrirtæki á Íslandi utan um svokallaða
milliinnheimtu, ferlið sem kemur á milli
lögfræði og bankainnheimtu, og var þá tekið
upp nafnið Intrum Justitia. Skömmu síðar
keypti Intrum Justitia, sænska móðurfélagið,
tuttugu prósent í Intrum á Íslandi.
Intrum á Íslandi hefur þá sérstöðu innan
Intrum-fjölskyldunnar að vera eina fyrirtækið
sem fær að nota vörumerki og þekkingu
Intrum Justitia án þess að vera í meirihlutaeigu
móðurfélagsins. „Intrum-menn töldu
íslenska markaðinn einfaldlega ekki
nægilega stóran til að nokkuð væri
upp úr honum að hafa. Þeir höfðu þó
þann metnað að hafa flagg á öllum
Norðurlöndunum. Ég held að þeir hafi
nú séð eftir þessu síðan.“
Í dag eiga KB banki, Landsbankinn,
tuttugu sparisjóðir og Intrum Justitia
bv. sinn hvern fjórðungshlutinn.
Gagnrýnisraddir hafa heyrst og
telja einhverjir að eignarhaldið
gefi Intrum ósanngjarnt forskot.
Samkeppnisstofnun hefur rannsakað
fyrirtækið en engin niðurstaða fengist.
„Það er útbreiddur misskilningur að
fyrirtækið grundvallist á viðskiptum
við bankana, en staðreyndin er sú
að samlögð viðskipti allra hluthafa
félagsins eru innan við tuttugu og fimm
prósent af veltunni,“ segir Sigurður.
UPPHRÓPUN GEGN RÍKJANDI GILDUM
Sigurður segir nafn fyrirtækisins, Intrum
Justitia, vera lýsandi fyrir hugmyndafræði
þess en nafnið er fengið úr latínu og merkir
„réttlæti fyrir alla“. Kjörorð Intrum eru „fair
pay“. Það er fengið að láni úr knattspyrnunni
en Alþjóðaknattspyrnusambandið hefur
lengi hamrað á „fair play“ hugmyndinni, að
knattspyrnan skuli leikin drengilega.
Lögfræðiinnheimta er dýr,
segir Sigurður, og á að
vera lokaúrræði. „Þar
sem markaðurinn
er vanþróaður er
algengt að forvinnan
sé ekki unnin nægilega
vel áður en kröfur lenda í
lögfræðihöndum. Hafi þessi vinna
verið unninn, gerist það oftar en ekki á allt of
löngum tíma. Þetta gengur þvert á hugmynd
okkar um fair pay,“ segir hann.
Sigurður telur það sanngjarnt að kröfur
séu efndar og útlagður kostnaður greiddur.
Hins vegar snúi sanngirnin ekki síður að
greiðanda en kröfuhafa. Ekki eigi að líta á
greiðanda sem glæpamann heldur annan aðila
viðskiptasambands. Það sé því yfirlýst stefna
Intrum að þóknun eigi að taka mið af þeirri
vinnu sem raunverulega var lögð í að ná
efndum kröfunnar. „Það er raunar einungis
hægt að réttlæta það að tvenns konar kröfur
fari í lögfræðiinnheimtu, þegar greiðandi
hefur ekki greiðslugetu og þegar hann hefur
ekki greiðsluvilja. Ef menn eru að missa aðrar
kröfur í lögfræðiinnheimtu er það vísbending
um að eitthvað megi betur fara í ferlinu.
Það má segja að Intrum sé upphrópun gegn
þeim gildum sem ríktu þegar lögfræðingar
einokuðu markaðinn.“
Lögfræðingar hafa talsvert gagnrýnt
Intrum. Samkvæmt lögum um lögmenn frá
árinu 1998 er einungis lögmönnum heimilt að
eiga hlut í lögmannsstofum og engum öðrum,
sama hversu lítill sá hlutur kann að vera. Þá
hindrun yfirstíga Intrum-menn með samstarfi
við nokkrar lögmannsstofur. Umfangsmest er
samstarfið við Lögheimtuna sem er í eigu
Bjarna Þ. Óskarssonar hæstaréttarlögmanns.
RÉTTARKERFIÐ AÐ BREGÐAST
Sigurður telur íslenskt lagaumhverfi ýta undir
einokun lögmanna. Víða í kringum okkur,
til að mynda í Svíþjóð, sé leyfilegt að fara
með svokallaðar óumdeildar kröfur í gegnum
réttarkerfið, kröfum sem ekki er mótmælt
af hálfu stefnda, án þess að njóta aðstoðar
lögmanns. „Við erum endalaust að senda
háskólamenntað fólk út um borg og bí til að
rúnta með kröfur þar sem allir eru sammála
um hver skuldar hverjum hvað.“
Sigurður segir mikinn viðskiptakostnað
fólginn í því að þurfa að senda lögmann í
réttarsal í hvert skipti sem krafa er tekin
fyrir, jafnvel þótt hún sé óumdeild. „Þarna
vil ég meina að íslenska réttarkerfið og
upplýsingasamfélagið, sem Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra og fleiri hafa viljað standa
fyrir, sé algerlega að bregðast. Afleiðingarnar
eru hærri viðskiptakostnaður, bæði í formi
hærri kostnaðar greiðanda og hins vegar að í
sumum tilfellum kann krafa að vera svo lág að
ekki sé áhættunnar virði að taka hana gegnum
dómskerfið. Í þessu er að mínu mati ekki fólgið
mikið réttlæti.“
Hjá Intrum starfa hundrað og tíu manns
í sjö starfsstöðvum víðs vegar um landið.
Óhætt er að segja að mikið vatn hafi runnið til
sjávar síðan Sigurður hóf störf í maí 1997. „Ég
kom hingað inn sem framkvæmdastjóri og réð
þá yfir einni óléttri skrifstofustúlku. Þá var
þetta nú eiginlega frekar viðskiptahugmynd en
fyrirtæki. Það er varla hægt að segja annað en
að við höfum veitt lélega þjónustu hérna fyrstu
tvö árin, en ég held að ég geti sagt að tryggustu
viðskiptavinir okkar hafa uppskorið ríkulega
fyrir sýnda þolinmæði.“
Sigurður segir Íslendingunum í
fyrstu hafa verið tekið með kostum
og kynjum þegar þeir sýndu sig í
höfuðstöðvunum í Svíþjóð. Nú séu hins
vegar breyttir tímar. Landsbankinn
sé orðinn stærsti einstaki hluthafinn í
sænska móðurfélaginu, ráði tæplega
sautján prósenta hlut, og Sigurjón
Árnason bankastjóri hafi tekið sæti í
stjórn. „Þeir eru hættir að hlægja að
okkur úti í Svíþjóð og fáum við nú
höfðinglegar móttökur enda erum við
á margan hátt leiðandi í grúppunni.
Við erum þó hvergi nærri hættir og
munum opna skrifstofu í Færeyjum
áður en langt um líður. Það verður
fyrsta skrefið í frekari útrás.“
Upphrópun gegn ríkjandi gildum
Sigurður Arnar Jónsson er forstjóri Intrum Justitia á Íslandi. Starfsmannafjöldi fyrirtækisins hefur
hundraðogtíufaldast síðan Sigurður tók við árið 1997 og rekur Intrum nú sjö starfsstöðvar víðs vegar
um landið. Jón Skaftason spjallaði við Sigurð í höfuðstöðvum Intrum að Laugavegi 99.
SIGURÐUR ARNAR JÓNSSON FORSTJÓRI INTRUM Intrum Justitia er að sjötíu
og fimm prósenta hlut í eigu íslenskra bankastofnana. Sigurður segir gagnrýni sem
beinist að eignarhaldinu til komna vegna vanþekkingar.
Intrum Justitia
Eigendur: Landsbankinn 25%,
KB banki 25%, tuttugu sparisjóðir 25% og
Intrum Justitia bv. 25%.
Starfsmenn: 110.
VALDÍS ARNARDÓTTIR hefur verið ráðin
kynningarstjóri Atorku Group. Valdís
útskrifaðist úr
viðskiptafræði frá
Háskóla Íslands
1998 og lauk
meistaraprófi í
viðskiptafræði frá
sama skóla 2004.
Valdís hefur unnið
síðastliðin þrjú
ár í markaðsdeild Sjóvá. En þar áður
vann hún hjá IMG og Landsbanka
Íslands. Eiginmaður Valdísar er Þorlákur
Runólfsson og eiga þau tvo drengi.
Harpa Hermannsdóttir hefur verið
ráðin í greiningu og eignastýringu
Atorku Group.
Harpa útskrifaðist
úr viðskiptafræði
frá Háskólanum
í Reykjavík 2002.
Harpa hefur unniðð
við fjárstýringu hjá
Sparisjóðabanka
Íslands síðastliðin 3
ár. Maður Hörpu er Jón Gunnar Geirdal
og eiga þau eina dóttur.
Um áramótin urðu þær breytingar á
yfirstjórn eignarhaldsfélagsins L&H,
móðurfélags lyfja-
verslana Lyfja &
heilsu, að Hrund
Rudolfsdóttir, sem
starfað hefur sem
framkvæmdastjóri
Lyfja & heilsu, hefur
snúið sér alfarið að
framkvæmdastjórn
móðurfélagsins.
Mun hún leiða áframhaldandi fram-
sækni félagsins og auka umsvif og vöxt
dótturfyrirtækjanna. Hjalti Sölvason
hefur tekið við framkvæmdastjórnar-
starfi Lyfja & heilsu í hennar stað.
Þá hefur Arnar Hallsson tekið við starfi
rekstrarstjóra af Hjalta Sölvasyni og
Rúnar Höskuldsson tekur við starfi
markaðsstjóra.
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og
upptökur þegar þér hentar