Fréttablaðið - 11.01.2006, Qupperneq 55
MIÐVIKUDAGUR 11. janúar 2006 19
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.942 -0,42% Fjöldi viðskipta: 782
Velta: 14.059 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 56,70 +1,10% ... Atorka 6,85 +0,00% ...
Bakkavör 54,90 +1,30% ... Dagsbrún 5,99 -0,99% ... FL Group 21,60 +2,90% ...
Flaga 4,38 -5,00% ... Íslandsbanki 19,10 +0,00% ... KB banki 787,00 -1,30% ... Kög-
un 63,20 -1,40% ... Landsbankinn 26,60 -0,80% ... Marel 71,00 -0,70% ... Mosaic
Fashions 19,50 +0,00% ... SÍF 4,17 +4,30% ... Straumur-Burðarás 17,30 -1,70% ...
Össur 118,00 +0,00%
MESTA HÆKKUN
SÍF +4,25%
FL Group +2,86%
Bakkavör 1,29%
MESTA LÆKKUN
Flaga -4,99%
Straumur -1,71%
Kögun -1,40%
nánar á visir.is Umsjón:
Þýski bílaframleiðandinn BMW
mun leggja flugvélaframleiðand-
anum Airbus lið við að hanna inn-
viði nýrrar þotu. Fyrirtækin tvö
vilja sem minnst segja um sam-
starfið.
Hlutverk BMW mun meðal
annars vera að gera farþegum
ferðalagið þægilegra. Áætlað er
að fyrsta þotan sem hlotið hefur
nafnið A350 fari í loftið árið 2010
og liggja þegar fyrir 172 pantanir.
Nýja þotan frá Airbus er í
beinni samkeppni við Jetliner-þot-
una frá Boeing sem mun koma á
markað árið 2008. 185 pantanir af
henni liggja fyrir. ■
BMW hannar
innviði þotu
Eftir fimm daga hækkan-
ir lækkuðu hlutabréf á Wall
Street þegar fjárfestar leystu
út söluhagnað.
Dow Jones-vísitalan fór á
mánudaginn í fyrsta skipti í
fjögur og hálft ár yfir ellefu
þúsund stig en lækkaði í gær
niður fyrir markið.
Allar helstu hlutabréfavísi-
tölur Evrópu lækkuðu einn-
ig eftir töluverðar hækkanir
undanfarið. Ekki var um mikl-
ar lækkanir að ræða þar sem
búist er við frekari fréttum af
samrunum og yfirtökum á evr-
ópskum stórfyrirtækjum.
Einkum lækkuðu í verði
hlutabréf fjármálafyrirtækja.
- eþa
Vísitölur lækka
FRÁ INDLANDI Mikil bjartsýni ríkir meðal
Indverja um horfur í viðskiptum á nýhöfnu
ári, samkvæmt könnun Grant Thornton.
Bandaríkjamenn og Bretar eru hins ekki
jafn bjartsýnir.
Indverjar eru bjartsýnastir
þjóða á viðskiptahorfur næstu
tólf mánaða samkvæmt árlegri
könnun Grant Thornton. Bjart-
sýni Indverja mæltist níutíu og
þrjú stig en var áttatíu og átta í
fyrra. Írar urðu í öðru sæti með
áttatíu og fjögur stig, Suður-Afr-
íkumenn í því þriðja og Kína í
fjórða.
Athygli vakti slæm útkoma
Bandaríkjanna og Bretlands.
Bjartsýni Breta hríðféll úr fjöru-
tíu og sex stigum í átta og Banda-
ríkjamanna úr sextíu og tveimur
í þrjátíu og tvö stig. Bros Japana
og Þjóðverja, sem hafa verið
með svartsýnni þjóðum í und-
anförnum könnunum, virðist þó
vera smám saman að breikka því
bjartsýni beggja þjóða tók stökk
upp á við. Bjartsýni Japana
mælist þó enn neikvæð.
Könnunin tekur til þrjátíu
landa og jókst bjartsýni í þrettán
þeirra. -jsk
Bjartsýniskönnun Grant
Thornton
Fimm bjartsýnustu þjóðir:
1. Indland 93
2. Írland 84
3. Suður-Afríka 80
4. Kína 77
5. Filippseyjar 71
Fimm svartsýnustu þjóðir:
1. Frakkland 1 stig
2. Ítalía -8
3. Botsvana -12
4. Japan -14
5. Taívan -19
Indverjar
bjartsýnastir