Fréttablaðið - 11.01.2006, Page 63
erfitt að fá nógu síða boli,“ segir
Sunna Dögg sem sótti innblástur í
götutísku New York og Japans.
Í hönnun sinni notar hún mjúka
liti ásamt svörtum, gráum og
dökkbláum. Silfurlitur og gylltur
koma líka við sögu. Barnalínan
skartar þó bjartari litum.
„Ég tók fyrst og fremst þátt
til að eiga möguleika á að koma
hönnuninni minni í framleiðslu
því ég sá ekkert nema tækifæri í
þessu.“
10% 70%
60%
50%
40%
30%
20%
Hljóðfærahúsið Laugavegi 176 105 Reykjavík www.hljodfaerahusid.is info@hljodfaerahusid.is Sími 591 5340
KOMIÐ OG GERIÐ FRÁBÆR KAUP.
ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR!
GÍTARAR, TROMMUSETT, UPPTÖKUBÚNAÐUR,
NÓTUR, STATÍF, TÖSKUR OG MARGT FLEIRA
Á FRÁBÆRU TILBOÐSVERÐI!
ÚTSÖLUNNI LÝKUR Á
LAUGARDAGINN!
Systurnar Sveinbjörg og Þórunn
Jónsdætur höfnuðu í þriðja sæti í
keppninni. Línan sem þær hönnuðu
er ætluð börnum allt frá fæðingu
til tólf ára aldurs. Sveinbjörg er
menntaður hönnuður úr Myndlista-
og Handíðaskóla Íslands og frá
skóla í San Diego, og Þórunn er
förðunarfræðingur sem hefur
starfað í London og París. Línunni
er skipt í þrjá flokka: ungabörn,
miður aldur og elstu börnin og þær
systurnar nýttu sér reynslu sína
sem mæður við hönnun hennar.
„Við vildum gera smart föt sem
væru að sama skapi mjög praktísk
og hentuðu íslenskum aðstæðum,“
segir Sveinbjörg. „ Þemað er mjög
þjóðlegt og á að vera skemmtilegt
með dálitlum húmor. Til dæmis
er íslenski vaðfuglinn Tjaldur í
endurskinsmerki á regnúlpunni
og Krummi á gúmmístígvélunum
– og á vinstri fætinum stendur
krummafótur. Náttfötin eru öll
mjúk og hlý og á þeim stendur til
dæmis „Morgunhani“. Náttfötin
handa þeim yngstu eru hönnuð
þannig að það er auðvelt að skipta
á barninu – þú þarft ekki að vekja
það upp til að skipta um bleyju.“
Sveinbjörgu fannst líka ákveðnar
flíkur vanta fyrir hina séríslensku
veðráttu sem börnin leika sér úti
í. „Regngallinn okkar er ekki bara
vörn gegn bleytu, hann er líka
hlýr og er fóðraður með flís-efni,
og það eru endurskinsmerki í bak
og fyrir á flíkunum fyrir íslenska
skammdegið.“ Sveinbjörg starfar
hjá Össuri eins og er og Þórunn
starfar sjálfstætt, en þær hlakka til
að sjá vörurnar fara í framleiðslu.
Hagkaup ætla að víkka út línuna
þeirra sem verður spennandi
að sjá. „Þetta var alveg frábært
framtak hjá Hagkaupum,“ segir
Sveinbjörg. „ Þetta var tækifærið
sem gerði það að verkum að maður
dreif sig í að gera dekurverkefnið
að veruleika.“
ÞÓRUNN OG SVEINBJÖRG JÓNSDÆTUR Þær
höfnuðu í þriðja sæti með praktíska og
smart fatalínu.
Dekurverkefnið
að veruleika
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og upptökur þegar þér hentar
Visir.is er stærsta fréttalind landsins. Þar miðla Fréttablaðið og Nýja fréttastofan fréttum allan
sólarhringinn og nú er NFS í beinni á VefTV frá morgni til kvölds. Þú færð fréttirnar beint í æð
í vinnunni eða heima og upptökur af fréttum dagsins tryggja að þú missir ekki af neinu.
MIÐVIKUDAGUR 11. janúar 2006 27