Fréttablaðið - 11.01.2006, Page 67

Fréttablaðið - 11.01.2006, Page 67
MIÐVIKUDAGUR 11. janúar 2006 31 FÓTBOLTI Knattspyrnumaðurinn Gylfi Einarsson hefur skrifað undir nýjan samning við enska liðið Leeds United. Samningurinn, sem handsalaður var í gær, er til tveggja og hálfs árs. Í samtali við Fréttablaðið sagð- ist Gylfi sáttur við nýja samning- inn. „Þetta hefur verið í burðar- liðnum í nokkurn tíma og ég er mjög ánægður með að hafa skrif- að undir.“ Aðspurður um hvort hann sjái fram á að spila mikið segir Gylfi að það sé stefnan. ,,Það er ljóst að ég hefði ekki skrifað undir nýjan samning nema ég fengi vilyrði fyrir því að ég fengi eitthvað að spila. Það er liggur líka í augum uppi að þeir láta mig nú ekki hafa samning upp á tæp þrjú ár nema þeir ætli sér að nota mig. Ég er auðvitað ekki búinn að spila síðan í október á síðasta ári þannig þeir hljóta að hafa einhverja trú á mér fyrst þeir semja við mig núna,” segir Gylfi en Leeds hefur gengið afar vel á síðustu vikum og fyrir vikið hefur Gylfi ekki verið í leikmannahópi liðsins eftir að hann varð aftur leikfær eftir meiðsli. Gylfi hefur verið meiddur tölu- verðan hluta þessa tímabils en hann er allur að koma til um þess- ar mundir. „Liðinu gengur vel eins og er þannig að maður bíður bara eftir sínu tækifæri. Maður hoppar ekki bara beint inn í þetta,“ sagði Gylfi. - toh Landsliðsmaðurinn Gylfi Einarsson verður áfram í herbúðum Leeds: Gylfi fær nýjan samning hjá Leeds LEEDS Hefur samið aftur við miðvallarleikmanninn Gylfa Einarsson. KNATTSPYRNA Framherji Arsenal, Robin van Persie, kom illa út úr viðureign Arsenal og Cardiff í enska bikarnum um síðustu helgi. Þrátt fyrir að van Persie hafi klárað leikinn fyrir Arsenal kom seinna í ljós að kappinn mun hafa tábrotnað í leiknum. Af þeim sökum gat hann ekki tekið þátt í deildarbikarleik Arsenal gegn Wigan í gærkvöldi. Forráðamenn Arsenal segja að Van Persie muni ekki þurfa að sitja á hliðarlínunni í mjög langan tíma. „Þetta eru ekki alvarleg meiðsli. Hann mun vafalaust ná sér nokkuð fljótlega,“ sagði Arsene Wenger, þjálfari Arsenal. - toh Robin van Persie: Tábrotnaði gegn Cardiff VAN PERSIE Tábrotnaði í leik gegn Cardiff án þess að taka eftir því. FÓTBOLTI Knattspyrnustjóri Burton Albion, Nigel Clough, hefur viður- kennt að Burton eigi ekki minnstu möguleika á að vinna Manchester United á heimavelli þeirra Old Trafford þegar liðin mætast aftur þann 18. janúar næstkomandi. „Það hefði verið skelfilegt ef United hefði jafnað undir lokin, hryllilegt óréttlæti. Það er stór- kostlegt að hálfatvinnumannalið skuli ná markalausu jafntefli við Manchester United. Ég er viss um að við eigum eftir að tapa seinni leiknum en ég er jafn viss um að leikmennirnir hafa enn meira gaman að þeim leik en þessum.“ Ljóst er að með jafnteflinu er fjár- hagslegu hliðinni borgið hjá Bur- ton Albion næstu árin þar sem lið í bikarkeppninni skipta með sér gróða af miðasölu. - toh Nigel Clough stjóri Burton: Vinnum aldrei á Old Trafford NIGEL CLOUGH Er ekki allt of jákvæður á að sínir menn beri sigur af hólmi á Old Trafford. KNATTSPYRNA Manchester United gekk í gær frá kaupum á franska landsliðsbakverðinum Patrice Evra frá Monaco. Hinn 24 ára gamli Evra skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við United eftir að hafa komist klakklaust í gegnum læknisskoðun á Old Trafford. Talið er að kaupverðið sé í kringum 5 milljónir punda. Fer Evra beint inn í hóp liðsins sem mætir Blackburn í deildarbikarnum í dag. Alex Ferguson var mjög ánægður með kaupin á bakverð- inum efnilega. „Hann er á mjög góðum aldri og er enn að þroskast sem leikmaður. Við höfum verið að fylgjast með honum allt tíma- bilið og hann er frábær leikmaður. Þetta eru því mjög góð kaup fyrir Manchester United.“ Inter Milan hafði einnig áhuga á að landa leik- manninum en tilboð Manchester United upp á fimm milljónir virt- ist of stór biti fyrir þá ítölsku. - toh Evra skrifar undir: Beint í hópinn gegn Blackburn Enski deildabikarinn: WIGAN-ARSENAL 1-0 1-0 Paul Scharner (77.). Iceland Express-deild karla: HÖTTUR-KEFLAVÍK 73-108 ÚRSLIT GÆRDAGSINS FÓTBOLTI Spútniklið Wigan hafði betur gegn Arsenal í fyrri við- ureign liðanna í undanúrslitum deildabikarsins í gær, 1-0. Það var Paul Scharner sem skoraði eina mark leiksins þegar rúmur stund- arfjórðungur var eftir með falleg- um skalla. Það er óhætt að segja að Wigan átti sigurinn fyllilega skilinn þar sem leikgleðin og baráttan var í fyrirrúmi hjá leikmönnum liðsins. Það sama er ekki hægt að segja um leikmenn Arsenal, þeir náðu sér engan veginn á strik og virk- uðu áhugalausir en þó ber að geta þess að Arsene Wenger stillti ekki upp sínu besta liði. Liðin mætast á ný að tveimur vikum liðnum og þá á Highbury. - vig Enski deildabikarinn: Baráttusigur hjá Wigan

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.