Fréttablaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 70
11. janúar 2006 MIÐVIKUDAGUR34
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Glæný Ýsa
Hrogn
Lifur
Slagverksdúettinn Steintryggur
heldur til Hollands á fimmtudaginn
þar sem þeir taka þátt í Eurosonic-
hátíðinni. Hún er árlegur viðburður
með yfir 180 uppákomum á 25
tónleikastöðum. Þeir Sigtryggur
Baldursson og Steingrímur
Guðmundsson verða þó ekki
eingöngu tveir því með þeim í för
verða Sören Venema og Roland
Hartwell. Steintryggur verður
þó ekki eina íslenska sveitin sem
treður uppp fyrir Hollendinga því
harðhausarnir í Dr. Spock ætla
enn fremur að stilla magnarana í
botn á þessari sömu hátíð.
Sigtryggur Baldursson var á
faraldsfæti þegar Fréttablaðið
náði tali af honum, einhvers
staðar á rúntinum í Reykjavík
með hálf rafmagnslausan síma.
Því vandamáli var fljótlega
kippt í liðinn þegar splæst var í
hleðslutæki. „Það er boðið á þessa
hátíð og okkur barst slíkt boð þegar
við vorum á tónleikaferðalagi um
Evrópu í haust,“ sagði Sigtryggur
en þeir félagar spiluðu í fimm
Evrópulöndum og kynntu fyrsta
diskinn sinn Dialog. „Við keyrðum
um í bílaleigubílum og flugum með
lággjaldaflugfélögum,“ útskýrir
hann en kvartaði þó sáran yfir
því að engar grúppíur hefðu verið
fyrir hendi. „Annars hef ég aldrei
verið í hljómsveitum sem hafa
verið duglegar í þeim bransa.
Hálfgert klikk,“ sagði Sigtryggur
í gríni og hló.
Eurosonic-hátíðin er um margt
merkileg því þar safnast saman
tónleikahaldarar frá gjörvallri
Evrópu til að finna hljómsveitir
fyrir tónlistarhátíðirnar sem
framundan eru í sumar og hafa
nokkrir íslenskir tónleikahaldarar
lagt leið sína þangað árlega.
Nokkrir íslenskir tónlistarmenn
hafa gerst svo frægir að spila
á þessari hátíð og nægir þar að
nefna Leaves og Mugison. „Við
spilum á einum tónleikum en
reynum síðan að selja okkur eins
mikið og mögulegt er,“ útskýrir
Sigtryggur enda hátíðin góður
söluvettvangur.
Framundan hjá Sigtryggi er að
klára tvær plötur sem dúettinn
er með í smíðum en auk þess
vinnur hann að gerð sinnar fyrstu
kvikmyndatónlistar í samstarfi
við Ástralann Ben Frost. „Hún er
við dvd-disk sem Jóhann Sigfússon
hjá Profilm gerir en þetta eru
náttúrulífsmyndir af Íslandi,“
segir Sigtryggur sem hefur ávallt
mikið á sinni könnu. „Hann verður
til sölu í flugvélum Flugleiða og ég
hugsa til þess með unaðslegum
hryllingi að hann verði kominn
inn á öll þýsk heimili fyrir næstu
jól.“ freyrgigja@frettabladid.is
STEINTRYGGUR Var boðið á tónlistarhátíðina Eurosonic eftir velheppnað tónleikaferðalag um Evrópu nú í haust.
SIGTRYGGUR BALDURSSON: GERIR TÓNLIST VIÐ NÁTTÚRULÍFSMYND
Steintryggur fer á
hollenska tónlistarhátíð
LÁRÉTT
2 afl 6 frá 8 flýti 9 ætt 11 klukkan 12 það að
vera ólæs 14 rót 16 fyrirtæki 17 blundur 18
umhyggja 20 tveir eins 21 vangi.
LÓÐRÉTT
1 drykkur 3 guð 4 inúíti 5 frostskemmd 7
felustaður 10 nálægar 13 forskeyti 15 birta
16 samræði 19 ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 þrek, 6 af, 8 asa, 9 kyn, 11 kl, 12
ólæsi, 14 grams, 16 ms, 17 mók, 18 önn, 20
ii, 21 kinn.
LÓÐRÉTT: 1 kakó, 3 ra, 4 eskimói, 5 kal, 7
fylgsni, 10 nær, 13 sam, 15 skin, 16 mök, 19
nn.
Köld slóð, ný íslensk
sakamálamynd, fer í tökur í næsta
mánuði. Myndin er framleidd
af Saga Film og Birni Br.
Björnssyni auk Angel Production
í Danmörku. Það var í síðustu
viku sem ljóst varð að Norræni
kvikmyndasjóðurinn myndi koma
að fjármögnun myndarinnar og
með því var tryggt að nægjanlegt
fjármagn hefði verið tryggt til að
hefja framleiðslu.
Köld slóð segir frá íslensk-
um blaðamanni sem rannsakar
dularfullt dauðsfall á virkjunar-
svæði uppi á hálendi Íslands. Það
er Þröstur Leó Gunnarsson sem
leikur aðalhlutverkið en auk hans
fara þau Elva Ósk Ólafsdóttir, Helgi
Björnsson og Hjalti Rögnvaldsson
með stór hlutverk. Þá mun Anita
Bríem einnig leika í myndinni
en þetta verður hennar fyrsta
hlutverk í íslenskri kvikmynd. Þá
leikur hinn danski Lars Brygman
í myndinni.
Að sögn Lárusar Halldórssonar,
markaðsstjóra hjá Saga Film, er
undirbúningur núna í fullum gangi
og er reiknað með að tökur fari af
stað strax í byrjun febrúar. „Hún
verður að mestu leyti tekin upp við
Búrfellsvirkjun,“ útskýrir Lárús
og segir þá vera alls óhrædda við
vetrarhörkurnar. „Við viljum bara
veturinn,“ bætir hann við. Köld
slóð hefur þegar verið seld til TV 2
í Danmörku og segir Lárus að hið
danska framleiðslufyrirtæki hafi
nýst vel í þeim samningaviðræðum
en áætlað er að myndin verði
frumsýnd í lok þessa árs hér á
landi. - fgg
Köld slóð á leiðinni í tökur
ÞRÖSTUR LEÓ GUNNARSSON Leikur
harðsnúinn blaðamann sem rannsakar
dularfullt andlát við virkjun á hálendinu.
HRÓSIÐ
...fær Björn Hlynur Haraldsson
fyrir að vera kynntur á
„European Shooting stars“
hátíðinni í Berlín.
Slapp nokkuð vel
Nei, ekki séns. Enda
bara held ég að ég hafi
komið nokkkuð vel út úr
þessu. Ég missti mig alveg
ágætlega í jólaátinu eins
og aðrir en mér sýnist
þetta hafa sloppið.
Magni Ásgeirsson
söngvari.
Hreyfi mig reglulega
Ekkert frekar. Ég held ég
fari jafn mikið í ræktina
fyrir og eftir jól. Eru ekki
konur alltaf í einhverju
átaki? Það er í kjólinn
fyrir jólinn og bikiníið fyrir
sumarið. Ég tek þetta
bara jafnt og þétt og
hreyfi mig reglulega.
Sigrún Bender
fegurðardrottning.
Bý á fimmtu hæð
Nei, ég geri það nú ekki.
Ég er allt of löt við að
hreyfa mig. En ég bý í
fjölbýlishúsi á fimmtu
hæð og það er mín
hreyfing.
Sóley Kristjánsdóttir,
plötusnúður.
ÞRÍR SPURÐIR: LÍKAMSRÆKTARSTÖÐVARNAR FYLLAST AF FÓLKI ÞESSI MISSERIN
Ferð þú í átak eftir allt jólaátið?
FÓLK Í FRÉTTUM
Spennan magnast enn í kringum Sundance-hátíðina þar sem Baltasar
Kormákur sýnir mynd sína A Little Trip
to Heaven. Sigurjón Sighvatsson, fram-
leiðandi myndarinnar, ætti einnig að
vera spenntur því auk A Little Trip verður
Destricted sýnd á hátíðinni en Sigurjón
er aðalframleiðandi þeirrar myndar. Um
er að ræða sex erótískar stuttmyndir
eftir unga og upprennandi
leikstjóra en meðal
þeirra eru Matthew
Barney, betur þekkt-
ur sem maðurinn
hennar Bjarkar, og
Larry Clarke, sem á
heiðurinn af kvikmynd-
um á borð við Kids
og Ken Park. David
Poland, þekktur
bandarískur kvik-
myndarýnir, velur
nokkrar athyglis-
verðar myndir á
heimasíðu sinni
fyrir hátíðina
og þessar tvær
myndir eru á
meðal þeirra.
NFS ER Á VISIR.IS
Íslenska kvikmyndin Strákarnir okkar, í leikstjórn Róberts Douglas, verður sýnd
í Panorama-flokknum á kvikmyndahátíð
Berlínar í byrjun febrúar en hátíðin er ein
af þeim allra stærstu í Evrópu og meðal
þeirra virtustu í heimi. Hún þykir standa
Cannes lítt að baki hvað gæði varðar þó
að glamúrinn sé auðvitað fyrirferðarmeiri
á Ríveríunni. Samkynhneigðu knattspyrnu-
kapparnir keppa um Panorama-áhorf-
endaverðlaunin en árlega taka um 18
þúsund manns þátt í þeirri kosningu en
myndin verður í mjög góðum félagsskap
þar. Leikstjórar á borð við Michel Gondry,
Neil Jordan og John Hillcoat eru allir með
verk sín í þessum flokki og má búast við
miklum stjörnufans þegar myndir þeirra
verða frumsýndar enda stórleikarar í hverri
rullu. Aðstandendur myndarinnar hljóta
gleðjast yfir góðu gengi myndarinnar á
erlendri grundu því eins og greint var frá í
Fréttablaði gær-
dagsins þá er
aðalleikari
Strákanna
okkar,
Björn
Hlynur
Haraldsson,
ein af von-
arstjörnum
Evrópu á hvíta
tjaldinu sem
verða kynntar
við þetta
tæki-
færi.