Fréttablaðið - 11.01.2006, Side 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
���������������
��������
�������� ���
��� �����������
����������
�����������������
HEKLA, Laugavegi 174, sími 590 5000
www.hekla.is, hekla@hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 · HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100 · HEKLA, Ísafirði, sími 456 4666
HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100 · HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 · HEKLA, Selfossi, sími 482 1416
600 þúsund bílar seldir
Volkswagen Golf er langvinsælasti bíllinn í Evrópu. Á síðasta ári voru nýskráningar
á Golf um 600 þúsund. Volkswagen er jafnframt með mestu markaðshlutdeild allra
bílaframleiðenda í Evrópu samkvæmt European Automobile Association (ACEA).
Vinsældir Golf og annarra tegunda frá Volkswagen koma okkur ekki á óvart
þar sem framsækin hönnun á traustum grunni er aðalsmerki fyrirtækisins.
Komdu og finndu sjálf(ur) hvað það er sem heillar Evrópubúa.
Aus Liebe zum Automobil
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
3
2
9
4
Trendline-tilboð
Golf 1,6 Trendline. Verð áður 1.890.000 kr.
Tilboðsverð 1.790.000 kr.
10% útborgun og 23.990 kr. afborgun á mánuði*
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d;
á
lfe
lg
ur
o
g
fá
na
sk
re
yt
in
g
Volkswagen Golf
Vinsælasti bíll í Evrópu
* Miðað við bílasamning SP til 84 mánaða.
Fyrir fimm árum gekk ég upp að altarinu í sóknarkirkjunni minni
og gekk í hjónaband með manni sem
ég hafði hitt í Háskólanum áratugi
fyrr. Við tókum tal eftir að hafa
komist að því að við höfðum bæði
verið í kaþólskum klaustrum og það
má nú tala um ómerkilegri hluti en
það. Að lokinni athöfn héldum við
veislu heima hjá okkur og út árið
voru hinir og þessir að óska okkur
til hamingju með ráðahaginn. Það er
gott að aðrir skuli geta glaðst með
manni á stóru stundunum í lífinu.
Þess vegna hryggir mig afstaða
biskups Íslands til hjónabands sam-
kynhneigðra. Í sjónvarpsviðtali við
Sólveigu Kr. Bergmann, fréttahauk
á NFS, sagði hr. Karl Sigurbjörns-
son „að hjónabandið eigi það inni
hjá okkur að við allavega köstum
því ekki á sorphauginn alveg án
þess að hugsa okkar gang“.
ENN og aftur örlar á þeirri skoð-
un að samkynhneigðir séu ekki
þess verðir að sitja við sama borð
og gagnkynhneigðir og eigi að
skammast sín fyrir hvatir sínar.
Íslenskt samfélag er komið mun
lengra en biskupinn gerir sér grein
fyrir því upp til hópa er þessari
þjóð nákvæmlega sama hver elskar
hvern svo framarlega sem styrjald-
ir hljótist ekki af. Í hugum flestra
okkar er trúin og ástin líka sam-
tengd. Vonandi á hr. Karl eftir að
koma til móts við samkynhneigða.
Í sjónvarpsþáttunum Little Britain,
sem Ríkissjónvarpið hefur sýnt,
birtast tvær konur á markaði þar
sem þær eiga að dæma sultur. Þær
bragða á hverri tegundinni á fætur
annarri og finnast þær allar svona
líka ljómandi góðar þar til önnur
þeirra kemst að því að sultan er gerð
af útlendingum eða samkynhneigð-
um. Þá ælir hún herlegheitunum
upp úr sér með þvílíkum bravúr að
viðstaddir þurfa spúlunar við.
Þótt langt sé reyndar seilst í við-
líkingunni er afstaða Þjóðkirkjunn-
ar áþekk. Samkynhneigðir mega
greiða skatta sem renna til hennar
en hjónaband þeirra fær ekki bless-
un. Ég skil því mætavel að nú skuli
samkynhneigðir finnast þeir knún-
ir til að skrá sig úr Þjóðkirkjunni.
Það segir heldur ekkert um trúaraf-
stöðu okkar, enda er Guð alls staðar.
Hann vindur sér inn í hjörtu okkar
svo lítið beri á, hvar sem við erum
stödd. Sjálf hef ég ekki komið við í
sóknarkirkjunni minni nema einu
sinni síðan ég gifti mig. Það var í
sumar og ég fór þangað til að gefa
syni mínum brjóst. Og þar var ekki
bara Guð, heldur líka Þorgrímur
Þráinsson og þá er alltaf gaman að
hitta. ■
Við eigum ást-
ina öll inni