Fréttablaðið - 19.01.2006, Side 2
2 19. janúar 2006 FIMMTUDAGUR
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
SLÖKKVILIÐ Flytja þurfti mann á
sjúkrahús vegna reykeitrunar,
eftir að eldur kom upp í sumar-
bústað skammt frá Flúðum um
miðnætti í fyrrakvöld. Fjórir voru
í bústaðnum, maðurinn, kona hans
og vinahjón þeirra.
Jóhann Marelsson, slökkviliðs-
stjóri á Flúðum, segir slökkviliðið
hafa komið á vettvang um tíu
mínútur yfir miðnætti, sex mínút-
um eftir útkall. „Þeir sem voru í
bústaðnum höfðu haldið eldinum
niðri með vatni en kviknað hafði í
þaki út frá reykröri frá arni sem
er í bústaðnum.“
Skemmdir á bústaðnum eru
töluvert miklar. - gag
Bústaður brann á Flúðum:
Maður fékk
reykeitrun
KÍNA, AP Þjóðir heims hafa brugðist
snarlega við hvatningu alþjóða-
stofnana um að leggja fé í alþjóða-
sjóð til að verjast fuglaflensu og
hafa nú þegar 1,9 milljarðar Banda-
ríkjadollara safnast í sjóðinn, um
117 milljarðar króna. Þar af eru um
900 milljónir dollarar í formi lána,
en afgangurinn í styrkjum.
Sjóðurinn var samþykktur í
Peking í Kína í gær á lokadegi
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um
fuglaflensufaraldurinn sem um
700 manns frá 100 löndum sóttu.
Meirihluta fjárins verður varið til
heilsugæslu og dýralækninga í því
skyni að koma í veg fyrir að veiran
stökkbreytist og berist mann frá
manni, auk rannsókna á veirunni.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
hefur staðfest lát 79 manna úr veiru-
stofninum H5N1 á síðustu þremur
árum. Ef veiran stökkbreytist gæti
hún valdið heimsfaraldri og orðið
jafnvel milljónum manna að bana.
Í gær staðfestu stjórnvöld í Írak
lát 14 ára stúlku og er það fyrsta
mannslátið af völdum veirunnar
þar í landi. Óttast er um líf fimm
ára tyrknesks drengs sem liggur
á sjúkrahúsi í Austur-Tyrklandi,
en systir hans lést úr veikinni á
sunnudag. Jafnframt leikur grunur
á að 11 ára telpa hafi látist úr veir-
unni í Tyrklandi í gær. Fjölmörg
börn voru lögð inn á sjúkrahús í
gær í Tyrklandi, grunuð um að hafa
sýkst af veirunni. Flestir sem sýkst
hafa í Tyrklandi eru börn og ungl-
ingar. - smk
Alþjóðlegar varnir gegn útbreiðslu fuglaflensu:
Þjóðir heims heita stórfé
KJARAMÁL Starfshópur sá er Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir borgar-
stjóri kom á fót fyrir áramót að
kröfu leikskólakennara vegna
óánægju með starfskjör hefur
lokið störfum án þess að komast
að niðurstöðu.
Bundu margir leikskóla-
starfsmenn á höfuðborgarsvæð-
inu vonir við að starfshópurinn
kæmist að niðurstöðu fyrir fund
launanefndar sveitarfélaganna
sem fram fer á föstudaginn. Var
sú krafa gerð að hann yrði settur
á laggirnir fyrir þann tíma til að
koma í veg fyrir uppsagnir fjöl-
margra leikskólakennara innan
Félags leikskólakennara.
Björg Bjarnadóttir, formaður
félagsins, segir nú boltann hjá
sveitarstjórnum. Starf hópsins sé
ekki alveg fyrir bí þar sem fjöl-
margar tillögur og hugmyndir
hafi verið reifaðar og geti komið
að gagni á fyrirhugaðri launa-
málaráðstefnu. „Það er brýnt að
tekið sé á málinu og gerðar ráð-
stafanir sem duga til að koma á
friði í leikskólunum.“ -aöe
Vinnuhópur er skipaður var til lausnar deilna leikskólakennara í Reykjavík:
Lauk störfum án niðurstöðu
TILKYNNT UM STARFSHÓPINN Borgar-
stjóri tilkynnti reiðum leikskólakennur-
um að orðið yrði við kröfum þeirra um
starfshóp til að fara yfir kjaramál þeirra
fyrir áramót. Hópurinn hefur lokið
störfum án árangurs.
FUGLAFLENSA Svanur breiðir úr vængjum
sínum í Kosovo í gær. Um 117 milljarðar
íslenskra króna hafa safnast í alþjóðasjóð
til að verjast fuglaflensu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SLYS Ökumaður ók inn í snjóflóð sem
fallið hafði á veginn undir Óshlíðí
gærmorgun. Vegfarendur, sem komu
fljótlega að, hjálpuðu ökumanninum
úr bifreiðinni en skömmu síðar var
komið með snjóruðningstæki til að
losa bifreiðina.
Geir Sigurðsson, rekstrarstjóri
Vegagerðarinnar á Ísafirði, segir að
mikið hafi snjóað um þetta leyti og
var vegurinn lokaður um tíma. Hann
segir að snjóflóðið hafi fallið á þeim
stað þar sem fyrirhugað sé að gera
jarðgöng samkvæmt tillögum rík-
isstjórnarinnar. Hann segir þó ekki
svo algengt að snjóflóð falli þar og
sýni þetta því hversu aðstæður séu
ófyrirsjáanlegar á þessu svæði. - jse
Snjóflóð í Óshlíð:
Ökumaður
lenti í snjóflóði
STRASSBORG, AP Wolfgang Schüssel,
kanslari Austurríkis sem nú gegn-
ir formennsku í Evrópusamband-
inu, lagði í gær til að fjármögnun
sambandsins verði komið í fastari
skorður með því að því verði eyrna-
merktur sérstakur skattur sem inn-
heimtur yrði í öllum aðildarríkjun-
um. Schüssel bar tillöguna fram í
ræðu þar sem hann kynnti dagskrá
formennskumisseris Austurríkis
fyrir Evrópuþinginu og virtist til-
lagan hugsuð til að sefa áhyggjur
af langtímafjárhag sambandsins.
Sagði Schüssel að hægt væri að
leggja þennan „ESB-skatt“ á flug
og skammtímafjármagnsflutninga
til að aftengja tekjulindir sam-
bandsins sveiflukenndum fjárlög-
um aðildarríkjanna. ■
Schüssel kynnir formennsku:
ESB fái eigin
skatttekjur
AUSTURRÍKISKANSLARI Wolfgang Schüssel
talar í Evrópuþinginu í Strassborg í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL „Umfang mála úr
barnaverndar- og réttarvörslu-
kerfinu, sem snerta kynferðisbrot
gegn börnum, hafa nær tvöfaldast
á tíu árum á sama tíma og sakfell-
ingum fjölgaði aðeins um eina,“
sagði Jóhanna Sigurðardóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar, í
fyrirspurnartíma á Alþingi í gær.
Hún beindi fyrirspurn sinni
til dómsmálaráðherra og sagði að
málum hefði að jafnaði fjölgað úr
123 á ári í 222 frá árinu 2002. Sak-
fellingum hefði aðeins fjölgað úr
16 í 17 á sama tíma.
„Forstöðumaður Barnaverndar-
stofu hefur haldið því fram að breyt-
ing sem gerð var 1999 um meðferð
opinberra mála hafi haft óheppileg
áhrif í réttarvörslukerfinu,“ sagði
Jóhanna.
Breytingin sem um ræðir fól
meðal annars í sér að sakborningur
og verjandi í kynferðisbrotamálum
gegn börnum fengu heimild til
þess að vera viðstaddir framburð
barnsins.
„Engar rannsóknir liggja fyrir
um að séu sakborningur og verj-
andi viðstaddir, leiði það til þess að
ekki sé sakfellt í máli,“ sagði Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra.
Fram kom einnig í máli hans
að breytingin á lögunum árið 1999
væri í anda 6. greinar mannrétt-
indasáttmála Evrópu. „Þetta var
talið börnum til hagsbóta til þess
að þau þyrftu aðeins einu sinni að
koma fyrir dóm,“ sagði Björn.
Kolbrún Halldórsdóttir, þing-
maður Vinstri grænna, sagði í
hæsta máta óeðlilegt að meintur
ofbeldismaður væri viðstaddur.
„Sjöttu grein mannaréttindasátt-
mála Evrópu er ekki ætlað að auð-
velda ofbeldismanni að hagaræða
málflutningi sínum,“ sagði Kol-
brún. Hún taldi eðlilegt að meintur
ofbeldismaður fengi að skoða gögn
þolanda eftir að hann hefði sjálfur
borið vitni.
Fram kom í máli dómsmálaráð-
herra að lög um meðferð opinberra
mála eru nú til endurskoðunar og
að umræddur þáttur laganna yrði
einnig athugaður áður en frum-
varpið fengi endanlegan búning.
Fram kom í máli Rannveigar
Guðmundsdóttur, Samfylkingunni,
að rannsóknir lækna á börnum,
sem grunur léki á að hefðu verið
beitt kynferðisofbeldi, hefðu legið
niðri í eitt og hálft ár.
johannh@frettabladid.is
Brotum fjölgar en
sakfellingum ekki
Þótt fjöldi kynferðisbrotamála hafi tvöfaldast hefur sakfellingum ekki fjölgað.
Jóhanna Sigurðardóttir bendir á galla í réttarvörslukerfi barna. Dómsmálaráð-
herra segir engar rannsóknir á bak við ályktanir Jóhönnu.
Kviknaði í Kádilják Eldur kviknaði
í mælaborði nýlegs bíls í Hveragerði í
fyrradag. Verið var að gangsetja bílinn
þegar kviknaði í honum. Lögreglan telur
að bilun hafi orðið í rafkerfi bílsins.
Á ferð án réttinda Tveir próflausir
ökumenn voru stöðvaðir í reglubundnu
umferðareftirliti lögreglunnar á Selfossi í
gær. Báðir voru þeir á miðjum aldri.
LÖGREGLUFRÉTTIR
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR, SAMFYLKINGU Brotalamir eru í réttarvörslu kynferðisbrota-
mála að mati Jóhönnu.
BJÖRN BJARNASON DÓMSMÁLARÁÐ-
HERRA Lög um meðferð opinberra mála
eru til endurskoðunar.
DÓMSMÁL Ingvi Hrafn Jónsson,
Sigurður G. Tómasson og Arn-
þrúður Karlsdóttir hafa náð sátt-
um í málum sem Ingvi Hrafn og
Sigurður höfðuðu gegn Arnþrúði
og Útvarpi Sögu, en Ingvi og Sig-
urður töldu sig eiga peninga inni
hjá útvarpsstöðinni síðan þeir
voru þar starfsmenn.
Ingvi Hrafn, Sigurður og lög-
maður þeirra óskuðu eftir því að
ná sáttum um málið utan réttar
og féllst Arnþrúður á það. - mh
Ingvi Hrafn og Arnþrúður:
Sættast um mál
Útvarps Sögu
SPURNING DAGSINS
Guðlaugur, á ekki að friða
nefið líka?
Það hlýtur að koma að því fyrst menn
eru byrjaðir. Ég vil að minnsta kosti
ekki virkja það.
Nýlega voru Guðlaugstungur friðaðar og nú
verður lögð fram þingsályktunartillaga um
að stækka friðland Þjórsárvera enn frekar.
Guðlaugur Þór Þórðarson er formaður
umhverfisnefndar.