Fréttablaðið - 19.01.2006, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
DEKKJAÞJÓNUSTA I LÁGMÚLA 9
SALA: 5-333-999 [GSM: 896-0578]
Verkstæði: 5-333-997 [GSM: 899-2844]
����������
����������
Það er lúmskur rígur á milli kristinna söfnuða. Margir álíta
að þeir séu í „Hinum eina og sanna
söfnuði“ en aðrir í misjafnlega
röngum. Hvernig er hægt að vera
á móti þeim sem í grundvallar-
atriðum trúa á það sama og maður
sjálfur? Ég er kaþólskur en ég
hef ekkert á móti mótmælendum,
hvítasunnufólki eða aðventistum.
Er þetta ekki allt bara kristið fólk
sem trúir á sama Jesús og ég þótt
það tilbiðji hann á ólíkan hátt?
KRISTIN trú er kærleikstrú. Hún
gengur ekki út á ytra útlit heldur
inntak. Ég held að þessi sundrung
sé sprottin af hroka. „Ég er heilag-
ari en þú!“ hugsunarhátturinn. Það
er sérstaklega óviðeigandi því inn-
tak þess að vera kristinn er að vera
þjónn. Og kristinn söfnuður hefur
fyrst og fremst skyldur við þá sem
ekki eru í honum, týnda sauði.
ALLIR kristnir menn viðurkenna
að kristinn maður á persónulegt
samband við Jesús. Jesús er per-
sónulegur guð. Hvað segir að hann
þurfi að eiga eins samband við
alla? Ég á til dæmis mjög mismun-
andi samband við vini mína. Og ég
krefst þess ekkert að allir aðrir
geri nákvæmlega það sama og ég.
KRISTINN maður hefur auðmýkt
sig og er orðinn þjónn. Og ekki
bara hvaða þjónn sem er. Hann á
að reyna að vera góður þjónn. Á
góðum veitingastað eru þjónarnir
ekki að kýta úti í horni og rífast
hver við annan og metast um það
hver sé bestur og mestur heldur
leggjast þeir á eitt við að þjónusta
viðskiptavinina sem eru allir sem
eru ekki þjónar.
OG góðir þjónar þurfa að hafa
umburðarlyndi, þolinmæði og enda-
lausa þjónustulund til að bera.
KRISTNIR menn eru eins og þjón-
ar sem beðnir eru um að þjóna í
veislu konungs. Þeim ber að standa
saman og styðja hver annan. Ef
þeir standa í sífelldum erjum eða
metast um það hver þekki kónginn
best og sé í uppáhaldi hjá honum, þá
misferst þeim starf sitt hrapalega.
Gestunum verður ekki þjónað til
borðs. Veislan er ónýt. Allt er unnið
fyrir gýg. Kóngurinn verður aðeins
reiður út í lélegu, sjálfselsku þjón-
ana. Og engum er skemmt nema
óvinum kóngsins.
HVER þjónn er ólíkur trúflokkur
og ber fram ólíka rétti handa mis-
munandi kúnnum. En allir réttirnir
koma frá Kokkinum í Eldhúsinu.
Maturinn er góður. En ef þjónustan
er léleg þá koma engir kúnnar. ■
Kristilegur
kærleikur